Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019
✝ Ágústa varfædd 23. apríl
1935 í Bæ, Trékyll-
isvík í Árneshreppi,
Strandarsýslu. Hún
lést 12. september
2019 á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
urlands, Akranesi.
Foreldrar Ágústu
voru Samúel Sam-
úelsson, f. í Skjalda-
bjarnavík 4.12.
1907, d. 20.2. 1942, og Anna Jak-
obína Guðjónsdóttir, f. í Skjalda-
bjarnavík 6.10. 1913, d. 4.10.
2006.
Dætur Önnu og Samúels: Þor-
björg Samúelsdóttir, Ágústa
Guðrún Samúelsdóttir, Sig-
urvina Guðmunda Sam-
úelsdóttir, Bjarnveig Sigurborg
Samúelsdóttir og Selma Jóhanna
Samúelsdóttir. Fóstri þeirra
4.2. 1956, Anna Ragna, f. 6.2.
1958, Guðbjörg Guðmunda, f.
16.10. 1959, Guðni, f. 10.8. 1965,
d. 16.10. 1965, Jón, f. 14.7. 1968,
og Guðni, f. 25.8. 1969.
Barnabörnin eru fimmtán og
barnabarnabörnin 22.
Ágústa og Benjamín hófu bú-
skap á Seljanesi, Ströndum, árið
1953, og fluttust að Stóru-
Reykjum, Fljótum, árið 1967. Þar
starfaði Ágústa sem matráður í
Sólgarðaskóla og starfaði við það
í mörg ár. Ágústa var með græna
fingur, og ræktaði fallegan garð
og hafði gróðurhús, þar sem hún
ræktaði hin ýmsu blóm og mat-
jurtir. Einnig voru þau hjón með
hefðbundinn búskap. Eftir að
Benjamín lést flutti hún suður til
Hafnarfjarðar, og starfaði á
Hrafnistu í nokkur ár. Eftir að
hún flutti suður kynntist hún
Gesti Bergmanni Magnússyni og
hófu þau sambúð í Hafnarfirði.
Fluttust þau síðar á Laugarbraut
21, á Akranesi, þar sem Ágústa
bjó til æviloka.
Útför Ágústu fer fram í Akra-
neskirkju í dag, 27. september
2019, klukkan 13.
systra og seinni eig-
inmaður Önnu Jak-
obínu var Kristinn
Hallur Jónsson, f. í
Litlu-Ávík, Ár-
neshr., Strand-
arsýslu 8.9. 1912, d.
9.8. 2000.
Börn Önnu og
Kristins: Jón Krist-
insson, Sveinn
Kristinsson, Sólveig
Stefanía Kristins-
dóttir, Arngrímur Kristinsson,
Elías Svavar Kristinsson, Guð-
mundur Óli Kristinsson, Guðjón
Stefán Kristinsson, Benjamín
Kristinsson og Óskar Kristinsson.
Eiginmaður Ágústu var Benja-
mín Jóhannes Jónsson, f. í Teiga-
stöð, Árneshreppi, Strand-
arsýslu, 30.8. 1927, d. 16.12. 1992.
Börn þeirra: Samúel Óskar, f. og
d. 24.12. 1954, Sólveig Stefanía, f.
Elsku mamma, þá ertu farin í
ferðalagið sem á fyrir okkur öll-
um að liggja. Nú hefurðu hitt
pabba og litlu strákana þína tvo,
ömmu, afa og alla hina í sum-
arlandinu. Það hafa orðið fagn-
aðarfundir.
Elsku mamma, þú ert laus
undan veikindum sem hafa hrjáð
þig síðasta árið, þú stóðst þig
eins og hetja, kvartaðir ekki,
hélst skopskyninu fram á síðustu
stundu og tókst veikindum þín-
um með æðruleysi. Þú varst al-
veg tilbúin til að flytja í aðra
heima.
Elsku mamma, þú varst
snilldarkokkur og bakari, þið
pabbi voruð miklir gestgjafar og
hrókar alls fagnaðar. Þú varst
mikill listamaður, hvort sem þú
saumaðir, prjónaðir eða málaðir,
það lék allt í höndunum á þér.
Þú hafðir gaman af því að
ferðast, hvort sem það var innan
eða utan landsteinanna. Þú fórst
til margra landa, en okkur er
sérstaklega minnisstætt þegar
þú fórst til Finnlands, og pabbi
sagði að þú hefðir farið til að láta
lappa upp á þig.
Elsku mamma, við viljum
þakka þér fyrir allt og allt, það
er mikið að þakka og margs að
minnast. Þú varst móðir, kona,
meyja, glæsileg á velli, glaðlynd
og víkingur til allra verka. Þú
varst meira en bara móðir, þú
varst besta vinkona og vildir allt
fyrir alla gera. Þín verður sárt
saknað.
Við kveðjum þig að sinni,
elsku mamma, þar til næst
Kveðja,
Sólveig, Anna Ragna, Guð-
björg (Gugga), Jón, Guðni og
makar.
Kæra Ágústa amma mín.
Fimmtudaginn 12. september
kvaddir þú heiminn og fjölskyldu
þína. Ekki komst ég í tæka tíð til
þín til að kveðja þig en ég samdi
stuttu eftir andlát þitt ljóð svo ég
gæti kvatt þig.
Um ókomna tíð á ég eftir að
minnast þín og ég á margar góð-
ar minningar um þig. Þú átt eftir
að lifa í minningum fjölskyldu og
vina þinna, ég hlakka til að fá að
sjá þig einn daginn.
Í svartnætti geislar hin bjartasta
stjarna
sú sem er á himnum og horfir til mín
amma, þú varst sól allra þinna barna
þó þú sért farin ertu stjarnan sem
skín.
Ómögulega gæti ég þakkað þínar gjaf-
ir.
Þín ást og umhyggja var mér ávallt
nóg.
Nú hvarfstu til heima sem allir eru
glaðir.
Nú hefur þú fundið hina dýrðlegu ró.
Með söknuð í hjarta, ég kveð þig nú
amma.
Á hverjum degi ég mun hugsa til þín.
Í mætti minningar þú lifir hér áfram
mun heyra nafn þitt í vindi sem hvín.
Auðmjúkur er ég en sár kveðjan mun
reynast.
Andinn þinn lifir í hjarta mínu enn
hittumst við seinna, munum þá heils-
ast
því við vitum það bæði, þangað fara
allir menn.
Nú lifir þú áfram í andans ljóma
í hjarta mínu verður þú geislandi sól
farin þar sem allt er í eilífum blóma
en lifir í mínum minningum þó.
Kær kveðja,
Elís.
Elsku amma mín.
Þú varst einstök kona, eins
og allir vita sem voru svo lán-
samir að þekkja þig. Þú varst
með hjarta úr gulli, fórnfús,
virðuleg, falleg og bjóst yfir
miklum þokka.
Síðastliðnar vikur hef ég ver-
ið að hugsa til baka, til allra
stundanna sem við áttum sam-
an. Ég fyllist af hlýju, kærleik
og ást.
Ég er svo þakklát að hafa
fengið svona sterka fyrirmynd,
þú hefur sýnt mér hvernig kona
ég vil vera. Þú hefur gefið mér
svo dýrmæta gjöf, þú gafst mér
af hjarta þínu. Jafnvel þó að þú
sért horfin úr þessum heimi, þá
ertu ekki horfin mér, hluti af
þér mun ávallt lifa í mér. Allt
það sem þú kenndir mér og allt
það sem þú gafst mér mun ætíð
vera í hjarta mér og vera hluti
af mér.
Ljósið sem bjó í hjarta þér,
mun lýsa mér alla vegi, alla tíð.
Hjartans þakkir fyrir sam-
leiðina.
Ég elska þig, amma, hvíldu í
friði.
Nafna þín,
Ágústa Líf Jónsdóttir.
Í dag kveðjum við þig í hinsta
sinn elsku hjartans amma
Gústa. Það eru ótal hugsanir og
minningar sem streyma í gegn-
um hugann þessa dagana.
Skemmtilegu ferðirnar í sum-
arbústaðinn, spilakvöldin, spá-
dómarnir, ævintýralegu sög-
urnar sem þú samdir fyrir
okkur, tímarnir okkar saman á
Stóru-Reykjum og svo margt
fleira. Þú gerðir svo marga litla
hluti sem skiptu okkur, afkom-
endur þína, svo miklu máli. Ég
man til dæmis hvað það var
ótrúlega mikið sport að fá að
gista hjá þér, elsku amma mín.
Þá fékk ég morgunmat í rúmið á
fallegum bakka og stundum
leyndist súkkulaðimoli eða
brjóstsykur á koddanum. Það
var sérstaklega gaman að gista
hjá þér í desember, þá heyrði ég
sögurnar um jólasveina mömmu
og jólasveina pabba, þú horfðir
með mér á jóladagatalið og svo
fékkst þú líka í skóinn alveg
eins og ég. Þú sagðir mér nefni-
lega að þegar maður væri orð-
inn gamall fengi maður aftur í
skóinn.
Þú varst alveg einstök kona,
amma mín, þú vissir alltaf á
undan mér þegar ég var með
barni og giskaðir á rétt kyn í
hvert einasta skipti. Þú varst
með svo ótrúlega góða og hlýja
nærveru og þú varst og munt
alltaf vera kjarnakona, enda
ekki kölluð amma dreki fyrir
ekki neitt. Þínar dyr voru ætíð
opnar öllum og þú lagðir mikið
upp úr því að enginn færi
svangur heim.
Ég mun sakna þess að geta
ekki hringt í þig þegar mig
vantar ráðleggingar, það eru
vissir hlutir sem enginn getur
svarað nema amma Gústa.
Ég kveð þig í dag full af
söknuði en einnig þakklæti, ég
er þakklát fyrir samveruna,
hlýjuna, hálfmánana sem þú
sendir mér fyrir hver jól og all-
ar góðu minningarnar. Ég er
þér afar þakklát og ég mun
halda minningu þinni á lofti. Þú
lifir áfram í hjarta okkar allra.
Ég sé þig svo í sumarlandinu
þegar minn tími kemur.
Hafrún Eir Hafliðadóttir.
Við skildum ekkert í því syst-
urnar, að dúkkurnar okkar voru
horfnar. Við leituðum dyrum og
dyngjum og fundum ekki. Þetta
var rétt fyrir jólin 1946 og við
höfðum um margt að hugsa.
Loksins kom aðfangadagskvöld
og stofan var opnuð með jóla-
ljósunum. Þar sátu þær allar,
dúkkurnar okkar, í nýjum kjól-
um undir jólatrénu, svo óskap-
lega fínar.
Hún Gústa mín var alltaf að
hugsa um að gleðja okkur syst-
urnar. Hún hafði setið í laumi
og saumað nýja kjóla á allar
brúðurnar okkar. Hún var bara
11 ára. Samt var hún eins og
fullorðin manneskja að hjálpa
mömmu í eldhúsinu, að gefa
litlu systkinum okkar að borða,
skúra gólfin og hvaðeina sem til
féll að gera. Ég var tveimur ár-
um yngri, nýkomin heim á Selja-
nes, veikburða eftir 8 ára vist á
sjúkrahúsinu á Ísafirði. Hún
breiddi alltaf yfir mig hún Gústa
systir, þegar á þurfti að halda,
huggaði mig og studdi.
Nú er elskuleg systir mín far-
in. Hún var næstelst okkar 14
systkina. Við erum nú 12 eftir.
Þorbjörg systir er elst, svo
Ágústa, ég, Bjarnveig og Selma
sem lést 2012. Hún var fædd
1942, rétt áður en Samúel faðir
okkar lést.
Þegar ég kom heim var
mamma flutt frá Bæ í Trékyll-
isvík að Seljanesi í Ingólfsfirði
með Kristni seinni eiginmanni
sínum og fóstra okkar. Tveir
elstu bræður okkar, Jón og
Sveinn, höfðu bæst í hópinn, voru
tveggja ára og hálfs árs. Seinna
komu sex strákar og ein stelpa í
viðbót. Gústa reyndist mér besta
systir og vinkona við algerlega
ókunnar aðstæður. Það bar aldrei
skugga á vináttu okkar síðan, í
blíðu og stríðu.
Gústa og Benni kynntust ung
á Seljanesi, urðu hjón og eign-
uðust fallega fjölskyldu. Benni
var yndislegur og blíður maður.
Líf þeirra Gústu var ekki alltaf
dans á rósum. Þau bjuggu á
Seljanesi allt til ársins 1969, þeg-
ar það brást enn og aftur að veg-
ur yrði lagður þangað. Þá barði
Gústa í borðið og þau Benni
fluttu með allt sitt hafurtask
norður í Fljót. Þar bjuggu þau á
Stóru-Reykjum. Leiðir okkar
systranna lágu í ólíkar áttir, mín
suður í Rangárþing þar sem ég
er enn. Við skrifuðumst alltaf á
og stundum náðum við að hittast.
En það var kaldhæðni örlaganna
að þegar Gústa flutti af Strönd-
um var hún eiginlega bara enn
lengra í burtu frá mér.
Þegar við heimsóttum Gústu,
Benna og fjölskyldu var mikið
fjör og gaman, bæði á Ströndum
og norður í Fljótum. Einu sinni
komum við Elli svo seint um nótt
norður á Stóru-Reyki að við
tjölduðum bara við lækinn og
sváfum til morguns. Gústa átti
ekki orð þegar hún vaknaði yfir
því að við hefðum ekki barið upp
og vakið sig, heldur sofið úti.
Við sáumst oftar þegar við
urðum eldri og hittumst síðast
skömmu áður en hún lést. Við
héldumst í hendur, rétt eins og
um jólin 1946 og þurftum svo
sem ekki að segja mikið. Börnum
Gústu minnar, tengdabörnum og
afkomendum öllum sendi ég
mínar bestu samúðarkveðjur.
Góða ferð elsku besta systir,
takk fyrir allt og allt.
Sigurvina Samúelsdóttir
(Vinsý).
Ágústa Guðrún
Samúelsdóttir
ég fékk fyrst almennilega að
kynnast þér. Ég man að á ein-
hverjum tímapunkti settist ég
niður á bekk og þú komst og
settist hjá mér. Við fórum
strax að tala saman um allt
milli himins og jarðar. Þú varst
svo einlæg og ófeimin að segja
það sem þú varst að hugsa og
velta fyrir þér. Ég man ekki
mikið frá þessari ferð en þetta
samtal okkar á milli hefur allt-
af setið í mér. Þú varst svo full
af samkennd og við tengdumst
strax sterkum böndum í gegn-
um tal um grænmetisfæði og
velferð dýra. Mér þótti líka svo
vænt um það hvernig þú talaðir
við mig þarna. Ég var svo ný í
fjölskyldunni enn þá, enn að
fóta mig, og þú varst svo
áhugasöm um mig, okkur Ívar
og sambandið okkar. Þú talaðir
svo vel um Ívar og hvað þér
fannst við passa vel saman.
Mér þótti svo vænt um að
heyra það því ég sá það strax
þarna að þú sagðir ekkert sem
þú meintir ekki.
Þannig varst þú alla tíð. Svo
einlæg og hlý. Horfðir á fólk,
djúpt inn í sál þess og sást það.
Sást allt það góða í öllum. Allt-
af til staðar og alltaf tilbúin að
útdeila hrósum og hlýju til
allra í kringum þig. Stútfull af
samkennd sem stundum reynd-
ist þér þung byrði. Þú vildir
nefnilega gera heiminn betri.
Þú áttaðir þig ekki á því að þú
gerðir það með tilveru þinni
einni saman. Þú barst nefnilega
nafn þitt svo vel enda varst þú
ljós í lífi okkar allra sem feng-
um að kynnast þér.
Ég mun alltaf vera svo þakk-
lát fyrir að hafa fengið að
kynnast þér, elsku Birta. Að
eiga tíma með þér. Þær eru
margar minningarnar sem rifj-
ast upp þegar ég lít til baka en
ein af mínum uppáhalds er og
verður alltaf þegar við héldum
„stelpu“áramót heima hjá
ömmu Rósu á Látraströndinni.
Ívar og strákarnir fóru og
eyddu kvöldinu með föðurfjöl-
skyldunni og ég fékk að eiga
kvöldið með ykkur konunum í
fjölskyldunni hans Ívars. Þetta
eru ennþá ein af uppáhalds-
áramótunum sem ég hef átt. Að
spá í spil, velta fyrir okkur
hvað nýja árið myndi bera í
skauti sér og tala um vænt-
ingar og vonir fyrir komandi
ár. Engar sprengingar eða læti
af okkar hálfu. Einungis góður
matur, yndislegur félagsskapur
og ljúfar stundir.
Svona eru minningarnar sem
virðist helst rifjast upp núna
þegar kveðjustundin er runnin
upp. Það er auðvitað sárt að
þurfa að kveðja þig strax, að
eiga ekki fleiri stundir saman
en líka að finna fyrir sorginni
sem situr eftir hjá allri fjöl-
skyldunni þinni. Öllum sem
þótti svo vænt um þig. Því okk-
ur þótti svo vænt um þig.
Elsku bjarta líf.
Birtan okkar.
Takk fyrir okkur.
Takk fyrir allt.
Hanna Guðmundsdóttir.
Elsku besta vinkona mín. Á
sama tíma og ég syrgi það að
þú sért farin þá þakka ég fyrir
allt það sem þú gafst mér á
þeim tíma sem við höfðum sam-
an.
Þú tókst mér opnum örmum
frá fyrsta degi, nákvæmlega
eins og ég var. Við áttum það
nefnilega sameiginlegt að vera
ekki alveg eins og hinir krakk-
arnir.
Þú kenndir mér svo margt.
Miklu meira en ég held að þú
hafir gert þér grein fyrir. Þú
varst alltaf að hrósa mér og
segja mér hvað þér fyndist ég
mikill snilli. Þú varst líka
óhrædd að hrósa öðrum, jafn-
vel ókunnugum. Þú sagðir hlut-
ina eins og þú upplifðir þá og
það var aðdáunarvert. Það
hefðu ekki margar níu ára
stelpur ætt upp að stóru stelp-
unum í frímínútum einfaldlega
til þess að segja þeim hvað
þeim fyndist þær afburða fal-
legar. En svona varst þú bara.
Sköpunargleðin þín og hæfi-
leikarnir voru magnaðir. Mis-
lyndir myndmenntakennarar
sáu ekki sólina fyrir þér, þú
ljómaðir í hvert skipti sem þú
fórst í píanótíma og alltaf tókst
þér að búa eitthvað til úr engu.
Elsku Birta, þú varst og ert
fallegasta sál sem ég hef
kynnst. Takk fyrir að hafa valið
mig. Ég elska þig svo mikið.
Góða nótt.
Elfa Björk
Hauksdóttir.
Elsku stelpan mín.
Lítil kveðja og minning til
þín.
Ég man alltaf þegar þið Elfa
mín hittust fyrst. Það var eins
og þið hefðuð alltaf þekkst,vin-
skapur ykkar bara small sam-
an.
Það sem er svo yndislegt er
að það kom féll aldrei skuggi á.
Gleði, hlátur, fliss alla daga.
Og það gladdi mig mikið. Ef
við fórum í sund þurfti ég aldr-
ei að athuga hvort allt væri í
lagi með ykkur, hláturinn dill-
andi sagði mér að allt væri í
góðu.
Gistinætur á milli heimila
okkar voru mjög algengar,
helgarnar voru þannig að ann-
aðhvort var Birta hjá okkur
eða Elfa hjá Birtu. Ég var allt-
af mjög örugg með að Elfa
gisti því ég vissi að Áslaug var
traustsins verð.
Þær gistu í Jöklafold hjá
okkur, það var kominn svefn-
tími. Við heyrðum hlátur og
fliss og sofnuðum út frá því.
Þegar sólin kom upp og tími
til að vakna heyrðum við enn í
flissandi glöðum vinkonum. Jú,
þær höfðu sofið, en það var svo
gaman að þið eydduð ekki tím-
anum í að sofa of mikið.
Þið fóruð upp í kofa með Ás-
laugu og fenguð útrás í að
drulla ykkur út, renna ykkur
úti í náttúrunni og veltast um.
Eitt sinn komu þær eins og
forarpyttir heim til okkar. Ég
saup hveljur, smápjatt. Þá
sagði Birta með sínu einstaka
brosi: áttu ekki þvottavél? Svo
hlógum við allar og allt var
þvegið.
Einnig var það fjaran á Nes-
inu, þar elskuðuð þið að vera,
bjugguð til leynihelli og það
var ykkar.
Ég hef sjaldan séð fallegri
augu en augun hennar Birtu,
undur fögur sem hún sjálf var.
Birta mátti ekkert aumt sjá,
hún elskaði dýr, öll dýr. Eitt
sinn var ég með fluguspaðann á
lofti, það var býfluga inni og ég
er ekki mikið fyrir þær. Birta
kom með angist í andlitinu og
sussaði á mig og sagði: við gef-
um flugum líka líf. Þannig var
Birta, bar mikla virðingu fyrir
mönnum og dýrum.
Hún var hreinskilin, sagði
það sem henni fannst og það er
gjöf að geta það sem unglingur,
bara alltaf.
Birta hafði mikla hæfileika
hvort sem var í teikningu eða
tónlist og var hún alltaf með
blokk og blýant með sér.
En nú er Birta mín komin í
Blómabrekkuna sem er svo fal-
leg, fullt af litum, góðu fólki og
enginn veikur.
Hún hressir brekkuna upp
með sínum dillandi hlátri og
fegurð.
Góða ferð, elsku Birta, nú
ertu frjáls og laus við þján-
ingar.
Takk fyrir að hafa verið hluti
af mínu lífi.
Elsku Áslaug, samúð mín er
einlæg. Það er eitthvað rangt
við að jarða barnið sitt.
Þú varst heppin að Birta
valdi þig sem mömmu sína, þú
sinntir henni vel.
Megi almættið gefa ykkur
öllum styrk.
Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Heittelskaður eiginmaður minn, faðir okkar
og tengdafaðir,
JÓN ÓLAFUR ÞÓRÐARSON
lögfræðingur,
varð bráðkvaddur mánudaginn
23. september.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti föstudaginn
4. október klukkan 13.
Jarðsett verður í Mosfellskirkjugarði í Mosfellsdal.
Bjarnveig Bjarnadóttir
Þórður Jónsson
Fríða Metz
Saad Metz
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...