Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019
sagði Róbert, sem lék með Stjörn-
unni tímabilið 2017-2018 en hjálpaði
Fjölni að komast upp á síðasta tíma-
bili.
Leikmannahópur Fjölnis hefur
tekið nokkrum breytingum. Liðið
nældi í KR-inginn, Orra Hilmarsson,
yngri bróður Darra Hilmarssonar
margfalds Íslandsmeistara, sem hef-
ur burði til að springa út í vetur.
Tækifæri fyrir Orra og Egil
„Orri er með efnilegri leikmönnum
landsins. Ég sé alveg fyrir mér að
hann gæti blómstrað og sama má
segja um Egil (Agnar Októsson).
Þetta er alla vega stóra tækifærið
fyrir þá báða en þeir hafa verið með
hlutverk í U-20 ára landsliðinu.
Srdjan (Stojanovic) verður áfram
með okkur en við höfum einnig fengið
Króata (Jere Vucica) og nýjan Kana
(Victor Moses). Báðir lofa þeir góðu
miðað við æfingaleikina sem þeir hafa
spilað með okkur,“ sagði Róbert.
Fjölnir lék síðasta í efstu deild
tímabilið 2014-2015 og staldraði þá
einungis við í eitt keppnistímabil.
Hvernig er stemningin í baklandinu
fyrir liðinu og komandi tímabili?
„Auðvitað vonast ég eftir því að við
fáum góðan stuðning á okkar heima-
leikjum en það fer væntanlega eftir
gengi liðsins. Ég býst við því að vel
verði mætt á fyrstu leikina og það
gæti haldið áfram ef vel gengur. Það
er bara eins og gengur og gerist í ís-
lenskum körfubolta,“ sagði Róbert
enn fremur við Morgunblaðið.
Fjölnir er ekki gamalt félag í sam-
anburði við önnur Reykjavíkurfélög.
Félagið hefur alið upp marga snjalla
leikmenn þótt þeirra njóti ekki við
sem stendur. Þar er fremstur í flokki
Haukur Helgi Pálsson sem leikur í
Rússlandi en einnig má nefna lands-
liðsmennina Hörð Axel Vilhjálmsson
hjá Keflavík og Ægi Þór Steinarsson
hjá Stjörnunni.
Teljum okkur
vera tilbúna
í slaginn
Morgunblaðið/Eggert
Nýliðar Fjölnismaðurinn Róbert Sigurðsson reynir að brjóta sér leið að
körfu Hamars í úrslitaeinvígi liðanna um úrvalsdeildarsæti síðasta vor.
Fjölnir er nýliði í Dominos-deild karla
Liðið hefur styrkt hópinn töluvert
FJÖLNIR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Fjölnir úr Grafarvogi er nýliði í Dom-
inos-deild karla í körfuknattleik í vet-
ur og eru þá karlalið félagsins í körf-
unni, knattspyrnunni og hand-
knattleikleiknum öll í efstu deild.
(Knattspyrnuliðið hefur unnið sér
rétt til þess fyrir tímabilið næsta
sumar). Fjölnismenn mæta til leiks
með nokkuð vel mannað lið þetta
haustið að því er virðist.
„Keppnistímabilið leggst mjög vel í
mig enda erum við spenntir fyrir því
að leika aftur í efstu deild og teljum
okkur vera tilbúna í slaginn,“ sagði
Róbert Sigurðsson þegar Morgun-
blaðið tók hann tali í vikunni en
Fjölnismenn hafa undirbúið sig vel
undir stjórn reynsluboltans Fals
Harðarsonar.
„Við höfum spilað fullt af æfinga-
leikjum. Það hefur gengið misvel en
liðið er að slípast til. Falur veit alveg
hvað hann er að gera og kann þetta
allt saman.“
Miklar breytingar á liðunum
Deildin hefur síðustu árin verið
geysilega sterk og fyrir síðustu tvö
tímabil hefur verið meira um að
sterkir íslenskir leikmenn fari á milli
liða en oftast áður. Róbert segir erfitt
að átta sig á styrkleika liðanna á þess-
um tímapunkti.
„Okkar helstu markmið eru að
halda sæti okkar í deildinni og kom-
ast inn í úrslitakeppnina. Maður veit
þannig séð ekki neitt hvað maður er
að fara út í því nánast öll lið eru búin
að styrkja sig. Erfitt er að sjá fyrir
hvort hlutirnir smelli saman hjá lið-
unum. En í ljósi þess að deildin virðist
æ sterkari með hverju árinu þá má
segja að það verði bara erfiðara fyrir
liðin sem eru að koma upp í deildina,“
MIÐHERJI:
Hlynur Logi Ingólfsson
Þjálfari: Falur Jóhann Harðar-
son.
Aðstoðarþjálfari: Halldór Karl
Þórsson.
Árangur 2018-19: 2. sæti í 1. deild
og sigur í umspili.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Fjölnir tekur á móti Val í Dal-
húsum í 1. umferð deildarinnar
fimmtudaginn 3. október og sækir
svo Þórsara heim til Akureyrar í
2. umferð föstudaginn 11. októ-
ber.
BAKVERÐIR:
Egill Agnar Októsson
Gauti Björn Jónsson
Guðjón Ari Logason
Hlynur Breki Harðarson
Orri Hilmarsson
Ólafur Ingi Styrmisson
Róbert Sigurðsson
Srdjan Stojanovic
Viktor Máni Steffensen
FRAMHERJAR:
Jere Vucica
Rafn Kristján Kristjánsson
Victor Moses
Vilhjálmur Theodór Jónsson
Lið Fjölnis 2019-20
KOMNIR
Jere Vucica frá Elchingen (Þýska-
landi)
Orri Hilmarsson frá KR
Victor Moses frá Newcastle Eagles
(Englandi)
FARNIR
Andrés Kristleifsson í fríi
Davíð Guðmundsson í Skallagrím
Davíð Alexander H. Magnússon í
Keflavík
Marques Oliver, óvíst
Sigmar Jóhann Bjarnason í Selfoss
Breytingar á liði Fjölnis Loksins er Fjölnir í efstu deild aftur en þetta félag
á alltaf að eiga lið í deild þeirra bestu að mínu mati.
Liðið hefur sýnt það á undirbúningstímabilinu að
það getur skorað en hversu gott liðið verður í vetur ræðst af
varnarleiknum.
Fjölnir reyndi að gera sig gildandi á leikmannamarkaðnum í sumar
með lágmarksárangri þar til Falur Harðarson, þjálfari liðsins, náði
í Orra Hilmarsson frá KR núna í haust.
Það er mikill fengur í Orra.
Benedikt Guðmundsson
um Fjölni
Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði
28. mark sitt á leiktíðinni fyrir LA
Galaxy þegar liðið tryggði sér sæti í
úrslitakeppni bandarísku MLS-deildar-
innar í knattspyrnu. LA Galaxy hafði
betur á móti Real Salt Lake 2:1 og
skoraði Zlatan síðara mark sinna
manna á 80. mínútu leiksins. Svíinn er
annar markahæsti leikmaður deildar-
innar á eftir Mexíkóanum Carlos Vela
sem hefur skorað 30 mörk.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson, leik-
maður FH, var dæmdur í leikbann á
fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ á
þriðjudag en nú hefur leikbannið verið
dregið til baka af aganefnd KSÍ. Brynj-
ar var dæmdur í bann vegna uppsafn-
aðra gulra spjalda en hann hafði feng-
ið þrjú gul spjöld í liði FH í sumar.
Brynjar er einnig þjálfari ÍH í 4. deild-
inni og fékk þar eitt gult svo hann var
kominn með fjögur gul spjöld sam-
anlagt í sumar. Hann er því gjald-
gengur í liði FH þegar það tekur á móti
Grindavík í lokaumferð Pepsi Max-
deildarinnar á morgun.
Forráðamenn spænsku 1. deild-
arinnar í knattspyrnu hafa ákveðið
leiktíma á El Clásico en spænsku ris-
arnir Barcelona og Real Madrid leiða
saman hesta sína í fyrri umferð
deildarinnar á Camp Nou í Barcelona
laugardaginn 26. október og hefst
rimma liðanna klukkan 11 fyrir hádegi
að íslenskum tíma.
Spænska knattspyrnusambandið
hefur dæmt Barcelona til að greiða
Atlético Madrid 300 evrur í bætur í
tengslum við félagaskipti Antoine
Griezmann frá Atletíco Madrid í
sumar. Madridarliðið sakaði Barcelona
um að hafa haft samband við Griez-
mann fyrir 1. júlí. Spænska knatt-
spyrnusambandið hefur ekki fundið
neinar vísbendingar um að Griezmann
hafi skrifað undir samning við Barce-
lona fyrir fram en aftur á móti hafi
samningaviðræður verið hafnar án
skriflegs fyrirvara.
Hinn 18 ára gamli Rodrygo skoraði í
sínum fyrsta leik með Real Madrid í
fyrrakvöld í 2:0 sigri gegn Osasuna.
Brasilíumaðurinn hafði ekki verið inni
á nema í 93 sekúndur þegar hann
skoraði síðara mark sinna manna.
Hann var því nálægt því að slá met
landa síns, Ronaldo, en Ronaldo skor-
aði eftir að hafa verið inni á í 62 sek-
úndur í fyrsta leik sínum með
Madridarliðinu. Rodrygo kom til Real
Madrid frá Santos í sumar fyrir 45
milljónir evra en sú upphæð jafngildir
6,1 milljarði króna.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og
Berglind Björnsdóttir eru jafnar á
tveimur höggum yfir pari eftir fyrsta
hring á Rügenwalder Mühle Ladies
Open-mótinu í golfi. Mótið er hluti af
LET Access-mótaröðinni, þeirri næst-
sterkustu í Evrópu.
Guðrún og Berglind
léku báðar á 74
höggum og eru í 43.
sæti ásamt
nokkrum
öðrum kylfingum.
Guðrún fékk tvo
fugla, tvo skolla
og einn tvöfaldan
skolla. Berglind
fékk þrjá fugla og
fimm skolla.
Eitt
ogannað
„Vegna fullyrðinga Bjarna
Helgasonar blaðamanns í bak-
verði Morgunblaðsins, fimmtu-
daginn 26. september, vilja
knattspyrnudeildir Breiða-
bliks og Vals óska svara við
eftirfarandi:
Hvaða dæmi um „gylliboð“
hefur blaðamaður Mbl fyrir
því að leikmenn hafi fengið í
ferð með yngri landsliðum Ís-
lands?
Getur blaðamaður Morgun-
blaðsins bent á aðila tengda
Breiðabliki eða Val sem hafa
markvisst reynt að selja ung-
um leikmönnum slíkt í ferðum
á vegum KSÍ?
Knattspyrnustjórnir Breiða-
bliks og Vals líta þessar ásak-
anir blaðamanns mjög alvar-
legum augum enda úr lausu
lofti gripnar og eiga við engin
rök að styðjast.
Þess er krafist að blaðamað-
ur biðjist afsökunar á fullyrð-
ingum sínum.
Virðingarfyllst, Stjórnir
knattspyrnudeildar Breiða-
bliks og Vals.“
Athugasemdir
frá Breiðabliki og Val
Bikarævintýri Aalesund, sem fjórir Ís-
lendingar leika með, lauk í gærkvöld.
Aalesund mætti Viking í átta liða úrslit-
um norsku bikarkeppninnar í gær.
Staðan var jöfn 1:1 eftir venjulegan leik-
tíma og framlengingu en Viking hafði
betur í vítakeppni 5:4 þar sem Samúel
Kári Friðjónsson skoraði úr fjórðu
spyrnu Viking. Aalesund, sem leikur í B-
deildinni, hafði slegið út stórliðin Rosen-
borg og Molde. Daníel Leó Grétarsson
og Aron Elís Þrándarson léku allan tím-
ann með Aalesund, Hólmbert Aron Frið-
jónsson fór af velli á 39. mínútu en Davíð
Kristján Ólafsson var í banni.
Bikarævintýri
Aalesund lokið
Ljósmynd/aafk.no
Úr leik Aron Elís Þrándarson og félagar
hans í Aalesund eru úr leik í bikarnum.