Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019
Rjóminn af ísnum
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þá vantaði ljósan hest og sex-tugan karlmann, grannanog hávaxinn, sem gæti set-ið þann hest. Ég reyndist
smellpassa í hlutverkið,“ segir Páll
Gunnarsson, en hann hefur í þrígang
leikið í tónlistarmyndbandi hjá
bandarísku hljómsveitinni Twenty
One Pilots. Bandið er tvíeyki skipað
ungu mönnunum Tyler Joseph og
Josh Dun, en þeir piltar eru vel
þekktir í tónlistarheiminum, fengu
t.d. Grammy-verðlaun árið 2015 fyr-
ir lag sitt Stressed Out.
„Þeir voru aftur tilnefndir til
Grammy fyrir lagið Jumpsuit, en
tónlistarmyndabandið við það lag
var einmitt það fyrsta sem ég lék í
hjá þeim. Þeir komu til Íslands til að
taka upp myndbandið og það var
tekið upp í Stakkholtsgjá í Þórs-
mörk. Það var mjög gaman að taka
þátt í þessu, ég var klæddur í
skikkju með hettu á höfði og svart-
málaður fyrir neðan nef en hvítmál-
aður þar yfir ofan og hárið rakað af
hausnum. Minn leikur fólst í að
þeysast þannig til fara í Stakkholts-
gjá á honum Hana, ljósgráum hesti
frá Skálakoti undir Eyjafjöllum, þar
sem ég starfa á sumrin við hesta-
ferðir. Ég var í hlutverki demónísks
biskups sem þeir kalla Nico í lag-
inu,“ segir Páll, sem nokkrum dög-
um síðar fékk upphringingu þar sem
falast var eftir því að hann tæki aft-
ur að sér hlutverk Nicos í tveimur
öðrum tónlistarmyndböndum.
„Ég varð fúslega við þeirri bón,
en þau myndbönd voru tekin upp í
Kíev eða Kænugarði í Úkraínu.
Fyrra myndbandið var tekið upp í
gömlum háskóla og þar var ég aftur í
hlutverki Nicos sem messar yfir níu
manna söfnuði sínum og herjar á
söngvarann, en lagið heitir einmitt
Nico and the Niners. Þetta er sagna-
heimur sem þeir hafa skapað og
Nico biskup kemur einnig við sögu í
þriðja myndbandinu, Levitate, sem
var tekið upp í skógi. Þetta var heil-
mikið ævintýri og gaman að kynnast
strákunum í hljómsveitinni. Þetta
eru vænstu piltar.“
Búið að girða, næst að byggja
Páll fékk ekki aðeins þetta
óvænta hlutverk í tónlistarmynd-
böndum í gegnum vinnu sína með
hesta í Skálakoti, heldur varð starf
hans þar einnig til þess að nú hefur
hann keypt sér lóð á Kostaríku, í
Mið-Ameríku.
„Þetta kom þannig til að vinátta
tókst með mér og hjónum frá Kosta-
ríku sem komu í Skálakot til að fara
á hestbak og gista. Þau reka sjálf
hestabúgarð heima hjá sér og bjóða
ferðamönnum upp á alls konar ferð-
ir. Þau buðu mér að koma í heim-
sókn til sín ef ég kæmi til Kostaríku
og ég skellti mér nokkrum mán-
uðum síðar. Ég var hjá þeim í viku
og fór á hestbak á hverjum degi. Þau
eru með skemmtilega hesta sem eru
blendingar af spænskum hestum og
arabískum og eru aðeins hærri en ís-
lenski hesturinn. Býlið þeirra er í
San Carlos, en þaðan er um klukku-
tíma keyrsla að landamærum Níka-
ragva,“ segir Páll, sem ferðaðist
mikið um, fór í fjórhjólaferð að heit-
um lindum, skoðaði dýralíf og þjóð-
garða.
„Þessi vinur minn skipulagði
ferðalag um landið fyrir mig, ég fór
niður að landamærum Panama,
keyrði upp í fjöllin og að lokum niður
að strönd. Síðustu þrjár nætur var
ég hjá honum og þá sagði hann mér
að þau hjónin og börnin þeirra þrjú
væru að pæla í að koma aftur til Ís-
lands, sem þau og gerðu núna í byrj-
un árs 2019. Þá lánaði ég þeim bílinn
minn og þau óku hringinn í kringum
Ísland. Það er gaman að geta launað
greiða,“ segir Páll, sem flaug með
þeim út þegar þau fóru aftur heim til
Kostaríku og dvaldi í tvo mánuði.
„Fljótlega eftir það hringdi
hann í mig og sagði lóð til sölu rétt
hjá þeim. Ég sló til,“ segir Páll og
hlær, en enginn húsakostur er á
þeim hálfa hektara sem hann keypti.
„Ég er búinn að láta girða og
næsta skref er að byggja hús. Mér
líður eins og ég sé einn af fjölskyld-
unni og hlakka til að eiga þarna
sumarhús fyrir mig og mína.“
Gerir það sem dettur í hug
Páll segist afskaplega ánægður
í starfi sínu sem vinnumaður í sveit í
Skálakoti, hjá Guðmundi Viðarssyni,
en þar er boðið upp á hestaferðir yfir
sumarið inn á hálendið.
„Ég byrjaði sem meðreiðar-
sveinn en hef verið heilsársmaður
undanfarin þrjú ár. Ég starfaði sem
vélstjóri á sjó alla mína starfsævi
fram að því og nú kann ég því vel að
gera það sem mér dettur í hug þegar
mér dettur í hug. Ég sé fyrir mér að
vera í Skálakoti á sumrin í hesta-
ferðum en á Kostaríku yfir dimm-
asta veturinn. Kostaríka er mikil
paradís, gróðursæl og fögur með
ríku dýralífi. Þetta er öruggt land og
friðsælt, þar er enginn her, yfirvöld
geta því notað peningana í að byggja
upp innviði frekar en að sólunda
þeim í hernaðarbrölt. Fyrir vikið er
menntun fólksins á hærra stigi en í
löndunum í kring. Alveg nýr heimur
opnaðist fyrir mér við það að ferðast
til þessara framandi landa, fyrst til
Perú með dóttur minni og svo til
Kostaríku, Gvatemala og Kolumbíu.
Menningin og náttúran eru ólík því
sem ég hef áður kynnst,“ segir Páll,
sem flaug í þriðja sinn til Kostaríku
nú í vikunni með börnum sínum
tveimur.
Óvænt í hlutverki Nicos biskups
Páll Gunnarsson segir
það hafa verið ævintýri
líkast að leika í tónlistar-
myndböndum hjá banda-
rísku hljómsveitinni
Twenty One Pilots. Starf
Páls sem hestasveinn í
Skálakoti leiddi einnig
til þess að hann hefur nú
keypt sér landskika á
Kostaríku.
Á settinu Palli kominn í skrúða biskups, hér með Josh Dun (t.v.) og Tyler Joseph, meðlimum Twenty One Pilots.
Palli Með Hana á leið á tökustað.Skjáskot úr myndbandi Palli í hlutverki Nicos biskups á þeysireið á Hana.
Baksviðs Palli á spjalli við Josh Dun við tökur á tónlistarmyndbandi þeirra,
en hann segir þá pilta báða, hann og Tyler Joseph, vera hina vænstu pilta.