Morgunblaðið - 27.09.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 27.09.2019, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 Rjóminn af ísnum Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þá vantaði ljósan hest og sex-tugan karlmann, grannanog hávaxinn, sem gæti set-ið þann hest. Ég reyndist smellpassa í hlutverkið,“ segir Páll Gunnarsson, en hann hefur í þrígang leikið í tónlistarmyndbandi hjá bandarísku hljómsveitinni Twenty One Pilots. Bandið er tvíeyki skipað ungu mönnunum Tyler Joseph og Josh Dun, en þeir piltar eru vel þekktir í tónlistarheiminum, fengu t.d. Grammy-verðlaun árið 2015 fyr- ir lag sitt Stressed Out. „Þeir voru aftur tilnefndir til Grammy fyrir lagið Jumpsuit, en tónlistarmyndabandið við það lag var einmitt það fyrsta sem ég lék í hjá þeim. Þeir komu til Íslands til að taka upp myndbandið og það var tekið upp í Stakkholtsgjá í Þórs- mörk. Það var mjög gaman að taka þátt í þessu, ég var klæddur í skikkju með hettu á höfði og svart- málaður fyrir neðan nef en hvítmál- aður þar yfir ofan og hárið rakað af hausnum. Minn leikur fólst í að þeysast þannig til fara í Stakkholts- gjá á honum Hana, ljósgráum hesti frá Skálakoti undir Eyjafjöllum, þar sem ég starfa á sumrin við hesta- ferðir. Ég var í hlutverki demónísks biskups sem þeir kalla Nico í lag- inu,“ segir Páll, sem nokkrum dög- um síðar fékk upphringingu þar sem falast var eftir því að hann tæki aft- ur að sér hlutverk Nicos í tveimur öðrum tónlistarmyndböndum. „Ég varð fúslega við þeirri bón, en þau myndbönd voru tekin upp í Kíev eða Kænugarði í Úkraínu. Fyrra myndbandið var tekið upp í gömlum háskóla og þar var ég aftur í hlutverki Nicos sem messar yfir níu manna söfnuði sínum og herjar á söngvarann, en lagið heitir einmitt Nico and the Niners. Þetta er sagna- heimur sem þeir hafa skapað og Nico biskup kemur einnig við sögu í þriðja myndbandinu, Levitate, sem var tekið upp í skógi. Þetta var heil- mikið ævintýri og gaman að kynnast strákunum í hljómsveitinni. Þetta eru vænstu piltar.“ Búið að girða, næst að byggja Páll fékk ekki aðeins þetta óvænta hlutverk í tónlistarmynd- böndum í gegnum vinnu sína með hesta í Skálakoti, heldur varð starf hans þar einnig til þess að nú hefur hann keypt sér lóð á Kostaríku, í Mið-Ameríku. „Þetta kom þannig til að vinátta tókst með mér og hjónum frá Kosta- ríku sem komu í Skálakot til að fara á hestbak og gista. Þau reka sjálf hestabúgarð heima hjá sér og bjóða ferðamönnum upp á alls konar ferð- ir. Þau buðu mér að koma í heim- sókn til sín ef ég kæmi til Kostaríku og ég skellti mér nokkrum mán- uðum síðar. Ég var hjá þeim í viku og fór á hestbak á hverjum degi. Þau eru með skemmtilega hesta sem eru blendingar af spænskum hestum og arabískum og eru aðeins hærri en ís- lenski hesturinn. Býlið þeirra er í San Carlos, en þaðan er um klukku- tíma keyrsla að landamærum Níka- ragva,“ segir Páll, sem ferðaðist mikið um, fór í fjórhjólaferð að heit- um lindum, skoðaði dýralíf og þjóð- garða. „Þessi vinur minn skipulagði ferðalag um landið fyrir mig, ég fór niður að landamærum Panama, keyrði upp í fjöllin og að lokum niður að strönd. Síðustu þrjár nætur var ég hjá honum og þá sagði hann mér að þau hjónin og börnin þeirra þrjú væru að pæla í að koma aftur til Ís- lands, sem þau og gerðu núna í byrj- un árs 2019. Þá lánaði ég þeim bílinn minn og þau óku hringinn í kringum Ísland. Það er gaman að geta launað greiða,“ segir Páll, sem flaug með þeim út þegar þau fóru aftur heim til Kostaríku og dvaldi í tvo mánuði. „Fljótlega eftir það hringdi hann í mig og sagði lóð til sölu rétt hjá þeim. Ég sló til,“ segir Páll og hlær, en enginn húsakostur er á þeim hálfa hektara sem hann keypti. „Ég er búinn að láta girða og næsta skref er að byggja hús. Mér líður eins og ég sé einn af fjölskyld- unni og hlakka til að eiga þarna sumarhús fyrir mig og mína.“ Gerir það sem dettur í hug Páll segist afskaplega ánægður í starfi sínu sem vinnumaður í sveit í Skálakoti, hjá Guðmundi Viðarssyni, en þar er boðið upp á hestaferðir yfir sumarið inn á hálendið. „Ég byrjaði sem meðreiðar- sveinn en hef verið heilsársmaður undanfarin þrjú ár. Ég starfaði sem vélstjóri á sjó alla mína starfsævi fram að því og nú kann ég því vel að gera það sem mér dettur í hug þegar mér dettur í hug. Ég sé fyrir mér að vera í Skálakoti á sumrin í hesta- ferðum en á Kostaríku yfir dimm- asta veturinn. Kostaríka er mikil paradís, gróðursæl og fögur með ríku dýralífi. Þetta er öruggt land og friðsælt, þar er enginn her, yfirvöld geta því notað peningana í að byggja upp innviði frekar en að sólunda þeim í hernaðarbrölt. Fyrir vikið er menntun fólksins á hærra stigi en í löndunum í kring. Alveg nýr heimur opnaðist fyrir mér við það að ferðast til þessara framandi landa, fyrst til Perú með dóttur minni og svo til Kostaríku, Gvatemala og Kolumbíu. Menningin og náttúran eru ólík því sem ég hef áður kynnst,“ segir Páll, sem flaug í þriðja sinn til Kostaríku nú í vikunni með börnum sínum tveimur. Óvænt í hlutverki Nicos biskups Páll Gunnarsson segir það hafa verið ævintýri líkast að leika í tónlistar- myndböndum hjá banda- rísku hljómsveitinni Twenty One Pilots. Starf Páls sem hestasveinn í Skálakoti leiddi einnig til þess að hann hefur nú keypt sér landskika á Kostaríku. Á settinu Palli kominn í skrúða biskups, hér með Josh Dun (t.v.) og Tyler Joseph, meðlimum Twenty One Pilots. Palli Með Hana á leið á tökustað.Skjáskot úr myndbandi Palli í hlutverki Nicos biskups á þeysireið á Hana. Baksviðs Palli á spjalli við Josh Dun við tökur á tónlistarmyndbandi þeirra, en hann segir þá pilta báða, hann og Tyler Joseph, vera hina vænstu pilta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.