Morgunblaðið - 27.09.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.09.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is FIGGJO LEIRTAU FYRIR MÖTUNEYTI OG SKÓLA Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra mun í dag kynna í ríkis- stjórninni frumvarp um bóta- greiðslur til þeirra sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinns- málinu. Þetta sagði hún við umræð- ur á Alþingi í gær. Þingmenn úr röðum stjórnar- andstöðunnar gagnrýndu ríkis- stjórnina harðlega í gær fyrir að- komu hennar að afgreiðslu Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Meðal annars var forsætisráðherra spurð hvort hún hefði lesið greinar- gerð ríkislögmanns vegna dóms- máls sem höfðað hefði verið vegna málsins fyrir hönd Guðjóns Skarp- héðinssonar, eins þeirra sem dæmdir voru í málinu á sínum tíma en sýknaður var á síðasta ári. Katr- ín sagði verklagið með þeim hætti að slíkar greinargerðir kæmu ekki inn á borð ráðherra. Vill endurskoða vinnulag Katrín sagði að vinnulagið hefði verið með þeim hætti að ríkis- lögmaður hefði skilað inn greinar- gerðum og þær hefðu yfirleitt ekki farið inn á borð ráðherra. Þetta vilji hún láta endurskoða, þvert í Stjórnarráðinu með almennum hætti, „ekki til þess að ráð- herrar hafi pólit- ísk afskipti af dómsmálum, um það snýst ekki málið, heldur til þess að við upp- fyllum það sem hefur verið gagn- rýnt af hálfu um- boðsmanns Al- þingis að sé ekki, að framkvæmdar- valdið sé meðvitað um það hverju sinni til hvaða varna ríkislögmaður grípur. Það hefur ekki verið gert með fullnægjandi hætti og það þyk- ir mér leitt en ég sé enga ástæðu til að fela neitt í þeim málum,“ sagði forsætisráðherra. Hún sagðist hafa átt fund með ýmsum málsaðilum og rætt við þá um þetta mál og sömuleiðis þá hug- mynd hennar að koma inn á Alþingi með frumvarp. Það hefði hún gert á fyrri stigum málsins með ýmsum aðilum, þ. á m. Guðjóni Skarp- héðinssyni. „Í frumvarpinu felst ekki nein tilraun til að taka af fólki réttinn til að fara síðar í dómsmál heldur er sá réttur áfram við lýði,“ sagði hún. Kynnir frumvarp um bætur í dag  Forsætisráðherra gagnrýnd á Alþingi Katrín Jakobsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Heildarkostnaður við samgöngu- framkvæmdir þær sem áformaðar eru á höfuðborgarsvæðinu er um 120 milljarðar króna. Af því mun ríkið leggja fram 45 milljarða en hlutur sveitarfélaganna verður um 15 milljarðar. Þetta gerir 60 millj- arða, sem er sama upphæð og vegatollar sem vegfarendur greiða fyrir not af nýjum samgöngumann- virkjum eiga að skila. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hald- inn var í gær þar sem fulltrúar ríkisins og sex sveitarfélaga, það er Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópa- vogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarness, undirrituðu samning um uppbyggingu í sam- göngumálum á höfuðborgarsvæð- inu á næstu 15 árum. Verja 49,6 milljörðum kr. í Borgarlínu Samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verður á næstu 15 árum alls 52,2 milljörðum varið í lagningu stofnvega, 49,6 milljarðar fara í innviði Borgarlínu og almenningssamgöngur, 8,2 milljarðar verða settir í gerð göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng og 7,2 milljarðar eru eyrnamerktir umferðarstýringu og sértækum öryggisaðgerðum. Þá verður þegar í stað ráðist í að inn- leiða stafræna umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu. Félag í eigu ríkis og sveitarfélaga verður stofn- að um framkvæmdirnar og fjár- mögnun þeirra. Ríkið skuldbindur sig til að leggja uppbyggingarland að Keldum inn í félagið og mun ábatinn renna til samgöngumála. Meðal verkefna sem hafist verð- ur handa um, í krafti sáttmálans nýja, er breikkun Vesturlandsveg- ar í gegnum Mosfellsbæ og Suður- landsvegar frá Bæjarhálsi að Vesturlandsvegi. Árið 2021 verður farið í gerð Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breið- holtsbrautar – sama ár og endur- bæta á gatnamót Reykjanesbraut- ar og Bústaðavegar. Gerð stokka fyrir umferð, svo sem á Sæbraut og Miklubraut, er sömuleiðis eitt stórverkefnanna fram undan og svo gerð akbrauta fyrir almenn- ingssamgöngur, það er Borgarlínu. Mestur þungi í verkefnum henni tengdum er eftir 8 til 10 ár. Sunda- braut er ekki á listanum yfir fyr- irhuguð verkefni, hins vegar verð- ur við útfærslu framkvæmda sérstaklega hugað að greiðri teng- ingu hennar inn á stofnbrautir. Minnka tafir og draga úr mengun Í kynningu á sáttmálanum segir að markmiðið með framkvæmdum fram undan sé að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferða- máta, minnka tafir og draga úr mengun. Byggja eigi upp kolefnis- hlutlaust borgarsamfélag með bættum almenningssamgöngum, orkuskiptum og breyttum ferða- venjum, en að óbreyttu muni bíla- umferð aukast um minnst 40% á næstu 15 árum. Í kynningu á verkefninu er haft eftir Bjarna Benediktssyni fjár- málaráðherra að verið sé að taka á umferðarvanda sem ekki verði un- að við lengur. Með því að draga úr umferðartöfum fjölgum við stund- um með fjölskyldu og vinum um leið og framleiðni atvinnulífs vaxi. Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra tekur í svipaðan streng og segir tímann sem fari í umferðarflækjur klípa af þeim stundum sem fólk vilji eiga með fjölskyldu. Betri umferðarmann- virki, svo sem breikkun stofn- brauta, og betri tenging höfuð- borgarsvæðisins stuðli að bættri og öruggari umferð og færri slysum. Græn uppbygging „Þetta er stærsta og grænasta uppbyggingaráætlun í samgöngu- málum í sögu borgarinnar,“ segir Dagur B. Eggertsson. „Við erum í sameiningu að boða nýja tíma í öll- um tegundum samgangna. Þetta þýðir að Borgarlína verður að veruleika, Miklabraut fer í stokk, hjólastígum verður stórfjölgað og risaskref er tekið í þá veru að standa við loftslagsskuldbindingar Íslands. Og er ég sérstaklega ánægður að framkvæmdir sem á venjulegum hraða hefðu tekið 50 ár verður núna hrint í framkvæmd á 15 árum.“ Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir í tilkynningunni að tekist hafi að semja um nálgun að heildarlausn á umferðarmálum á höfuðborgarsvæðinu, sem hafi set- ið eftir í samgönguframkvæmdum, Sömuleiðis sé samkomulagið gott innlegg í aðgerðir í loftslags- málum. „Risastórt skref“ „Þetta er risastórt skref í sam- göngumálum fyrir höfuðborgar- svæðið og mun án efa stytta ferða- tíma íbúa, bæði þeirra sem ferðast með bílum og þeirra sem nota al- menningssamgöngur. Fyrir Mos- fellinga er ánægjulegt að skrefum að bættum almenningssamgöngum verður flýtt,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mos- fellsbæ. Í kynningu á samgöngusáttmál- anum segir að hlutfall vistvænna ökutækja í umferðinni á Íslandi aukist hratt og eftir sex ár hafi tekjur ríksins af bensín- og olíu- gjöldum lækkað verulega. Nú sé verið að endurskoða tekjustofna ríkisins vegna ökutækja og elds- neytis vegna orkuskipta. Hluti af því sé að í ríkari mæli verði treyst á gjöld af umferð í stað eldsneyt- isgjalda. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að félagið sem stofnað verður um framkvæmdirnar geti innheimt flýti- og umferðargjöld sem yrðu liður í breyttri gjaldtöku ríkisins. Önnur fjármögnun gæti verið í formi sérstakra ríkisfram- laga eða hlutdeild í öðrum tekju- stofnum tengdum samgöngum. Sértæk gjaldtaka víðar Áform eru um að taka upp sér- tæka gjaldtöku víðar á landinu til að fjármagna stærri samgöngu- framkvæmdir og rekstur jarð- ganga. Dæmi um þetta eru tvöföld- un Hvalfjarðarganga, Sundabraut, brú yfir Ölfusá ofan við Selfoss, brú yfir Hornafjarðarfljót, nýr vegur yfir Öxi austur á fjörðum ásamt láglendisvegi um Mýrdal og jarðgöngum um Reynisfjall nærri Víkurkauptúni. Meira öryggi og minni tafir  Framkvæmdir fyrir 120 milljarða kr.  Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins kynntur  Borgar- lína og almenningssamgöngur  Veggjöld mæta um helmingi kostnaðar  Vistvænum bílum fjölgar Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirritun Fulltrúar ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu lýstu yfir ánægju sinni með samkomulagið við undirritunina í gær. Helstu framkvæmdir og framkvæmdatími Framkvæmdir Upphaf og lok framkvæmda Vesturlandsvegur: Skarhólabraut-Hafravatnsvegur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur-Krísuvíkurvegur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Suðurlandsvegur: Bæjarháls-Vesturlandsvegur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Arnarnesvegur: Rjúpnavegur-Breiðholtsbraut ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Sæbrautarstokkur: Vesturlandsvegur-Holtavegur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Ártún-Hlemmur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Hamraborg-Hlemmur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Miklabrautarstokkur: Snorrabraut-Rauðarárstígur ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Hamraborg-Lindir ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Mjódd-BSÍ ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Miklabrautarstokkur: Rauðarárst.-Kringlumýrarbr. ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Reykjanesbraut: Álftanesvegur-Lækjargata ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Suðurlandsvegur: Norðlingavað-Bæjarháls ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Kringlan-Fjörður ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Hafnarfjarðarvegur: Stokkur í Garðabæ ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Ártún-Spöng ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33 Borgarlína: Ártún-Mosfellsbær ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 ’26 ’27 ’28 ’29 ’30 ’31 ’32 ’33

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.