Morgunblaðið - 27.09.2019, Side 8

Morgunblaðið - 27.09.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Gerið verðsamanburð 5.990 kr. 8.990 kr 2.990 kr Haustkjóll Ponjo Klútur GÓÐ VERÐ ALLA DAGA Nú á að loka Laugaveginum ognokkrum öðrum götum í mið- bænum að fullu og öllu fyrir bíla- umferð. Þetta var tilkynnt á mið- vikudag í þessari viku og á að taka gildi á þriðjudag í þeirri næstu. Fyrirvarinn er sex dagar enda ligg- ur líf við og eng- inn tími til að kynna málið bet- ur eða ræða.    Í lok apríl sl.sendi borgin frá sér tilkynn- ingu um göngu- götur í sumar og sagði að þær yrðu lokaðar bílaum- ferð frá 1. maí til 1. október. En nú hefur sem sagt verið tilkynnt að þær verða ekki opnaðar fyrir bíla- umferð 1. október, heldur lokaðar til frambúðar.    Hvað breyttist frá tilkynning-unni 30. apríl til tilkynn- ingarinnar í fyrradag?    Það helsta sem komið verðurauga á að hafi breyst er að skoðanakönnun var gerð á meðal rekstraraðila í miðbænum um hvort þeir vildu eða vildu ekki hafa þar göngugötur allt árið. Góður meiri- hluti, 62%, var andvígur því að hafa göngugötur allt árið en minnihluti, 30%, var hlynntur göngugötum allt árið.    Nú liggur fyrir að meirihlutinn íborgarstjórn hefur kynnt sér skoðanir meirihluta þeirra sem reka fyrirtæki í miðbænum og dregið af þeim sjónarmiðum þá ályktun að réttast sé að loka göt- unum með hraði og nær engum fyrirvara.    Það má auðvitað engan tímamissa þegar fara þarf með svo augljósum hætti gegn svo skýrum vilja meirihlutans. Þoldi enga bið STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Dreifing og samsetning launa fimm fjölmennustu starfanna 2018 er mjög misjöfn. Á vef Hagstofunnar er fjallað um laun í einstökum störf- um, en þau eru flokkuð eftir starfa- flokkunarkerfi og eru þar upplýs- ingar um laun í um 200 störfum. Um 75% ófaglærðra sem starfa við umönnun barna í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheim- ilum voru með grunnlaun undir 350 þúsund krónum á mánuði árið 2018 en um 40% með heildarlaun undir þeirri upphæð. Laun í þessu starfi eru þau lægstu í launarannsókninni en heildarlaunin voru 375 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Rúmlega 55% starfsfólks í störf- um ræstingafólks og við aðstoð í mötuneytum voru með grunnlaun undir 300 þúsund krónum. Heildar- laun í því starfi voru mun dreifðari en grunnlaunin sem skýrist af því að vaktaálag og aðrar greiðslur en yfir- vinna voru um 19% heildarlauna auk þess sem yfirvinna var rúm 9%. Dreifing var mun meiri hjá sér- fræðingum í viðskiptagreinum og bæði grunn- og heildarlaun dreifð- ust nokkuð jafnt yfir launastigann. Dreifing launa í kennslu á grunn- skólastigi var frekar lítil og á það bæði við um grunnlaun og heildar- laun. Um 45% voru með 500-550 þúsund í grunnlaun og 55% með heildarlaun á bilinu 550-650 þúsund. Dreifing grunnlauna í afgreiðslu- störfum í dagvöruverslunum var frekar jöfn og rúmlega 85% í því starfi með grunnlaun undir 550 þús- und krónum. Þegar heildarlaunin eru skoðuð sést að þau dreifast öðru- vísi og voru tæplega 55% með laun á bilinu 400-550 þúsund krónur. Lægst laun fyrir umönnun barna 40% 30% 20% 10% 0% 300 400 500 600 700 800 900 1.100 1.200 1.300 1.400 Heimild: Hagstofan Dreifing heildarlauna Fjölmennustu störfin 2018 Barnagæsla Kennsla á grunnskólastigi Ræstingar/aðstoðarfólk í mötuneytum Sérfræðistörf í viðskiptagreinum Afgreiðslustörf í dagvöruverslunum Þús. kr. á mánuði Atvinnuleysi á landinu jókst veru- lega í ágústmánuði samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Ís- lands. Alls voru 8.500 manns at- vinnulausir í mánuðinum eða sem svarar til 4,4% atvinnuleysis. Er það 1,3 prósentustigum meira atvinnu- leysi en var í júlí. Í greinargerð Hagstofunnar kem- ur fram að þegar tölur hafa verið leiðréttar vegna árstíðasveiflna mælist atvinnuþátttaka á landinu 80,0%, sem er um 1,2 prósentustig- um minni þátttaka en var í júl- ímánuði. „Árstíðarleiðrétt hlutfall starfandi fólks var 76,9% í ágúst 2019 sem er með því lægsta sem mælst hefur síðasta hálfa árið,“ seg- ir í umfjöllun Hagstofunnar. Fram kemur að þegar óleiðréttar mælingar fyrir ágúst 2018 og 2019 eru bornar saman kemur í ljós að vinnuaflið dróst saman um 2.400 manns. „Starfandi fólki fækkaði um 5.800 og hlutfall þess var rúmlega 4 pró- sentustigum lægra en það var á sama tíma árið 2018. Samkvæmt óleiðréttum mæl- ingum voru atvinnulausir í ágúst 2019 um 3.500 manns fleiri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 5.100. Þá sýna óleiðréttar mælingar töluverða hækkun á hlutfalli at- vinnulausra milli ára, eða um 1,7 prósentustig.“ omfr@mbl.is Atvinnuleysi jókst og er komið í 4,4%  Um 3.500 manns fleiri atvinnulausir í ágúst en á sama tíma árið 2018 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Störf Atvinnuþátttaka dróst saman.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.