Morgunblaðið - 27.09.2019, Page 16

Morgunblaðið - 27.09.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Meðan margiraf helstuþjóðar- leiðtogum heims héldu til New York til þess að sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað Nicolas Maduro, forseti Vene- súela, að halda frekar til fundar við Vladimír Pútín Rússlands- forseta í Moskvu. Ræddu forset- arnir saman um ýmis mál, og meðal annars óþolandi íhlutanir þriðju aðila, með öðrum orðum Bandaríkjanna, í málefni Róm- önsku Ameríku, sem einhverjum gæti þótt nokkuð kaldhæðnis- legt. Ákvörðun Maduros að halda frekar til Moskvu er raunar skiljanleg, þar sem Rússar eru nú næststærsti lánveitandi Vene- súela á eftir Kínverjum. Maduro vill halda lánardrottnum sínum góðum, en talið er að rússneska ríkisolíufyrirtækið Rosneft hafi nú sökkt um níu milljörðum Bandaríkjadala í olíuiðnað Vene- súela. Ólíklegt er að sú fjárfest- ing skili sér um fyrirsjáanlega framtíð. Engu að síður útskýrir þessi skuldbinding að miklu leyti hvers vegna Rússar vilja síður að Maduro fari frá, enda skiptir miklu fyrir þá að eiga að minnsta kosti von um að fá endurgreitt. Og svo virðist sem Maduro sé hvergi á förum. Tilraun stjórnar- andstöðunnar í upphafi ársins til þess að koma honum frá virðist hafa runnið algjörlega út í sand- inn. Juan Guaido, sem lýsti sig starfandi forseta, fékk fljótlega stuðningsyfirlýsingu frá um 50 af helstu forystu- ríkjum vestræns lýðræðis, en allur slagkraftur sem hann bjó yfir hvarf með illra tímasettri tilraun í apr- íl til þess að „binda enda á ein- ræðið“, sem endaði einungis á því að treysta einræðistilburði Maduros í sessi. En hvað mun áframhaldandi valdaseta Maduros þýða fyrir al- menning í Venesúela? Sam- kvæmt nýlegri skýrslu frá mann- réttindaráði Sameinuðu þjóð- anna eru nú um 15.000 manns í haldi þar sem samviskufangar, og dauðasveitir á vegum stjórn- valda ógna fólki svo það haldi sig á mottunni. Er þá ótalinn stöð- ugur skortur á matvælum, lyfj- um og öðrum nauðsynjavörum, sem tryggir að langar biðraðir myndast við hverja búð þar sem vörur birtast í annars tómum hillum. Þessi áfellisdómur mannrétt- indaráðsins hefur að vísu ekki komið í veg fyrir að Venesúela sækist eftir að verða fulltrúi Suður-Ameríku í ráðinu. Miðað við fyrri sögu ráðsins gæti hæg- lega orðið af því, jafnvel þótt hópur ríkja þaðan hafi lagt fram ályktun um að ráðið hefji form- lega rannsókn á mannréttinda- brotum stjórnvalda í Venesúela. Það stefnir því allt í áfram- haldandi hnignun lífskjara í Venesúela, hnignun sem alfarið má skrifa á Maduro og aðra sósí- alista sem farið hafa með völdin í landinu. Þessi þróun verður ekki stöðvuð nema þeir fari frá. Maduro fer hvergi – nema til Moskvu}Áframhaldandi hnignun Demókratar áBandaríkja- þingi bundu lengi vonir við að skipun sérstaks saksóknara um meint samsæri Trumps við Rússa í aðdraganda kosn- inganna myndi leiða til falls hans. Sérstaki saksókn- arinn hafði víðtæk völd, ótak- markaðar fjárveitingar og hann réð í kringum sig þekkta reynslu- bolta úr saksóknarastétt, sem nær allir áttu það sameiginlegt að hafa stutt frú Clinton fast í kosn- ingunum. Mueller saksóknari, fyrrver- andi forstjóri FBI, skrifaði mörg- hundruð síðna skýrslu sem dóms- málaráðherrann afhenti þinginu. Þessarar stundar höfðu demó- kratar beðið lengi. Þeir höfðu lengi boðað að í kjölfar skýrsl- unnar yrði lögð fram tillaga í Fulltrúadeildinni, þar sem þeir eru í meirihluta, um að þingið setti Trump af. En Mueller kom tómhentur þrátt fyrir síðufjöld- ann. Nú boða demókratar að þeir ætli sér að flytja tillögu um rann- sókn sem undanfara brott- rekstrar. En ekki vegna rússa- samsæris sem gufaði upp og sætir nú rannsókn um hvernig kom til og lítur frumskoðunin ekki vel út. Nú er það símtal Trumps við forseta Úkraínu sem „litli bandaríski símamaðurinn“ lak upplýsingum um. Leiðtogar demó- krata fullyrtu að Trump hefði haft í hótunum við forseta Úkraínu til að sá léti rannsaka sérstaklega afskipti Joe Biden varaforseta af brottrekstri saksóknara eystra sem rannsakaði meint fjármála- brask sonar hans. En Hunter Biden er sagður hafa komist yfir ótrúlegar fjárhæðir í skjóli föður síns (milljarð Bandaríkjadala) í samskiptum við aðila í Úkraínu annars vegar og Kína hins vegar. Upptökur af símtölum forseta Bandaríkjanna við erlenda starfsbræður eru trúnaðarmál sem ekki eru birt. Trump ákvað þó óvænt að birta uppskrift af samtalinu í heild og þykir það ekki staðfesta fullyrðingar and- stæðinga hans. Og þvert ofan í væntingar þeirra beinist kast- ljósið nú á ný að ótrúlegri fjár- söfnun Bidens yngri og af- skiptum þáverandi varaforseta. En fyrir liggur að Joe hótaði að afturkalla fjárstyrk Bandaríkj- anna yrði saksóknari í Úkraínu ekki settur af innan fárra klukku- stunda. Skoðanakannanir vestra sýna mikla andstöðu við mála- tilbúnað demókrata um nýja herferð} Bjúgverpill enn? S kattar og aðrar álögur hefta súr- efnisflæði til framfærslu ein- staklinga, og þyngja róður og rekstur fyrirtækja. Engin þjóð skattleggur sig inn í velmegun þjóðar, það eru einstaklingarnir – og fyrir- tækin – sem skapa verðmætin og standa undir öflugu velferðarkerfi hér á landi. Í árferði líkt og er nú, þar sem óveruleg- ur samdráttur gerir vart við sig í hagkerf- inu er brýnt að minna á þessi gildi. Að stökkva ekki til með ríkisstyrki eða önnur framlög þótt einstaka hópar eða atvinnu- greinar glími við rekstrarvanda. Almennar aðgerðir eru aftur á móti af hinu góða; að lækka álögur og einfalda rekstrarumhverfi fyrirtækja með því að fella á brott óþarfa regluverk. Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð eftirtektarverðum árangri í lækkun skatta og gjalda frá því að hann komst í ríkisstjórn 2013. Áramótin 2014-2015 voru á einu bretti almennir innflutningstollar og vörugjöld afnumin, almenna þrep virðisaukaskattsins var lækk- að 2015 úr 25,5% niður í 24%. Þar munar um minna enda nær skatturinn til 80% innkaupa heimila í land- inu. Útvarpsgjald lækkaði 2015 og aftur 2016. Tekju- skattur á millitekjur hefur lækkað um þrjú prósent í þremur skrefum, og nú lækkar hann enn. Í fjárlögum næsta árs lækkar tekjuskattur einstaklinga, og þegar lækkunin kemur að fullu til framkvæmda 2021 nemur skattalækkunin 10% af öllum greiddum tekjuskatti einstaklinga, eða um 21 millj- arð króna á ári. Þá hefur tryggingagjaldið lækkað mjög frá því að Sjálfstæðisflokkur- inn kom í ríkisstjórn 2013. Það stóð þá í 7,69% en verður á næsta ári komið niður í 6,35%. Á þingmálaskrá fjármálaráðherra má sjá fyrirætlanir um lækkun erfðafjárskatts og afnám stimpilgjalds á skipum. Öll for- gangsmál þingflokks Sjálfstæðisflokksins á þessu þingi eru skattalækkunarmál. Við ætlum að afnema stimpilgjöld af íbúðarhúsnæði, gera framkvæmdir iðn- aðarmanna á verkstað að fullu skatt- frjálsar frá virðisaukaskatti með hækkun endurgreiðslna vsk., endurgreiða virðis- aukaskatt vegna fráveituframkvæmda sveitarfélaga og skattalagabreytingar vegna kyn- slóðaskipta á fyrirtækjum og bújörðum. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa gert lítið úr hverri skattalækkunaraðgerð Sjálfstæðisflokksins og reiknað út hversu margar pítsur hægt sé að kaupa fyrir hverja aðgerð. Því er ekki nema von að maður spyrji sig hvort við þurfum að fara að hafa áhyggjur af heilsufari þjóðar- innar, því það stefnir í að við getum haft pítsu í öll mál í dag. Vilhjálmur Árnason Pistill Pítsa í öll mál Höfundur er varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fram kemur í nýrri skýrsluÖryrkjabandalags Íslandsað örorkulífeyrisþegumfjölgaði á milli áranna 2008 og 2019 og fóru þeir frá því að vera 7% af mannfjölda á vinnualdri 2008 í að vera 7,8% af mannfjölda á vinnualdri í janúar í ár. Geðraskanir eru fjölmennasti flokkur greininga til grundvallar 75% örorku- og endurhæfingarmats. Skýrslan, sem unnin er af Kol- beini Stefánssyni, doktor í félags- fræði frá Oxford-háskóla, hefst á eftirfarandi orðum: „Fjölgun örorkulífeyrisþega hef- ur verið nokkuð plássfrek í íslenskri þjóðmálaumræðu um allnokkurt skeið. Kjarni umræðunnar er að ör- orkulífeyrisþegum fjölgi hratt með tilheyrandi kostnaði fyrir hið opin- bera og samfélagið allt. Vaxandi kostnaður kallar svo á viðbrögð í formi róttækra breytinga á al- mannatryggingum og endurhæf- ingu. Þá veldur fjölgun í röðum ungra örorkulífeyrisþega, sérstak- lega á meðal ungra karla, mörgum hugarangri. Það er óneitanlega þannig að ör- orkulífeyrisþegum hefur fjölgað umtalsvert frá miðjum 10. áratug síðustu aldar.“ Í skýrslunni kemur fram að frá því í janúar 2017 hefur fjöldi ör- orkulífeyrisþega svo gott sem staðið í stað við 18 þúsund einstaklinga en hlutfall hópsins af mannfjölda á vinnualdri hefur hinsvegar lækkað, úr 8,2% í 7,8%. Þannig virðist vera að draga úr fjölgun örorkulífeyris- þega á undanförnum tveimur árum. Hlutfall örorkulífeyrisþega á meðal 20-24 ára karla hækkaði um 0,9 prósentustig á milli áranna 2008 og 2019, en nokkuð hefur verið rætt um fjölgun örorkulífeyrisþega á meðal ungra karla. Þetta er nokkur hækkun en af mjög lágum grunni. Miðaldra og eldri konur Stærstur hluti fjölgunar örorku- lífeyrisþega er rakinn til kvenna 50 ára og eldri (rúm 40%), bæði vegna þess að vægi hópsins í mannfjöld- anum hefur aukist, en einnig vegna hækkandi tíðni örorkulífeyrisþega í hópnum, samkvæmt því sem fram kemur í skýrslunni. Konur eru á hverjum tíma um 60% af örorkulíf- eyrisþegum og munurinn á milli karla og kvenna eykst með aldri, sem bendir til þess að stefnumótun þurfi til að taka á því sem er ólíkt í lífshlaupi karla og kvenna og veldur þessum mun. Á tímabilinu 2008-2019 fjölgaði örorkulífeyrisþegum úr 14.261 í 18.061 miðað við janúar ár hvert, eða um 3.800 einstaklinga sam- kvæmt staðtölum Tryggingastofn- unar ríkisins. Um 50% fleiri konur en karlar voru með örorkulífeyri hvert þeirra ára sem hér er til skoðunar. Í janúar 2019 voru 10.924 konur með örorkulífeyri og hafði fjölgað um 2.327 einstaklinga frá 2008, aukning sem nemur 27,1% en á sama tíma voru 7.137 karlar með ör- orkulífeyri og hafði fjölgað um 1.473 frá 2008, eða sem nemur 26%. Þörf á víðara sjónarhorni Í lok skýrslu sinnar segir höf- undur að færa megi rök fyrir því að sjónarhorn starfsgetumats sé of þröngt, að endurhæfing eigi ekki að miðast einvörðungu við að efla at- vinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu heldur þurfi víðara sjón- arhorn á samfélagsþátttöku sem nái til þeirra sem eru alls ófær um að taka þátt á vinnumarkaði. Konur eru um 60% örorkulífeyrisþega Hlutfallslegur fjöldi örorkulífeyrisþega Örorkulífeyrisþegar sem hlutfall af mannfjölda 18-66 ára 2008-2019 Örorkulífeyrisþegar árið 2019, hlutfall af mannfjölda eftir aldurhópum 25% 20% 15% 10% 5% 18-19 20-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-49 50-54 55-59 60-66Aldur: Heimild: Öryrkjabandalag Íslands 9% 8% 7% 5% 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Konur Karlar 7,0% 2,5 2,3 3,1 3,2 3,1 5,6 3,6 7,9 4,3 9,7 4,9 10,7 5,6 13,2 7,6 16,7 9,5 22,6 13,9 1,5 7,8% 8,1%0,8 prósentustigafjölgun 2008 til 2019 Á árinu 2018 voru einstaklingar sem höfðu 75% örorkumat vegna sjúkdómsgreiningarinnar geðröskun langfjölmennasti hópur örorkulífeyrisþega, en þeir voru 39,4% þeirra. Þeir sem greindir höfðu verið með stoðkerfissjúkdóma voru næststærsti hópurinn eða 26,5% allra örorkulífeyrisþega. Þeir sem greindir höfðu verið með tauga- og skynfæra- sjúkdóma og fengið höfðu 75% örorkumat árið 2018 voru 8,7% örorkulífeyrisþega. Aðrar greiningar vegna 75% örorkumats voru: áverkar 6,3%, aðrar ástæður 6,3%, blóðrásarkerfissjúkdóm- ar 4,0%, innkirtlar og efna- skipti 2,4%, meðfædd og litn- ingafrávik 2%, krabbamein 2%, öndunarfæri 1,5% og húðsjúk- dómar. Stoðkerfi og geðraskanir SJÚKDÓMSGREININGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.