Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 ✝ Valbjörg Jóns-dóttir, fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 27 október 1942. Hún lést 13. september 2019, þá til heimilis að Hólabergi 84, Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Valdemarsson, f. 23. nóv. 1915, skrif- stofumaður, og Guðjóna Al- bertsdóttir, f. 23. sept. 1916, húsmóðir og verkakona á Suð- ureyri. Systkini Valbjargar eru Jóhannes Kristján Jónsson, f. 31. júlí 1940, Albert Finnur Jónsson, f. 14. maí 1947, Svein- björn Jónsson, f. 22. feb. 1949, og Sigrún Jónsdóttir, f. 8. des. 1952. Fyrrverandi maki Val- Valbjörg ólst upp á Suður- eyri og lauk grunnskólanámi við héraðsskólann á Reykjanesi 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá öldungadeild Menntaskól- ans við Hamrahlíð 1986 og B.Ed.-gráðu frá Kennarahá- skóla Íslands 1991. Valbjörg fékkst við ýmislegt eftir grunn- skólanámið m.a. rekstur bóka- verslunar og garðyrkjustöðvar, og um tíma við umönnun fjöl- fatlaðra barna. Eftir nám í KHÍ starfaði Valbjörg sem kennari m.a. í Reykholtskóla Biskups- tungum, Holtaskóla Keflavík og Grunnskólanum Bakkafirði þar sem hún var skólastjóri. Valbjörg vann ýmis sjálf- boðaliðastörf fyrir félags- og góðgerðaramtök,m.a. Rauða kossinn, SÍBS og Hjartaheill. Þá var hún stofnfélagi og for- seti JC Vík, fyrsta aðild- arfélags Junior Chamber á Ís- landi sem eingöngu var skipað konum. Útför Valbjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 27. september 2019, klukkan 13. bjargar var Berg- þór Gísli Úlfarsson og börn þeirra eru: 1) Úlfar, f. 20. mars 1961, búsettur í College Station, Texas, Bandaríkj- unum, kona hans er Vaishali Katju og börn þeirra Oria og Karna. 2) Sigríður, f. 3. maí 1963. Fyrrverandi maki var Vignir Ragnarsson og börn þeirra Ragnar Berg og Viktor Berg. 3) Jón Þór Bergþórsson, f. 16. júlí 1966. Fyrrverandi maki var Pálína Harðardóttir og börn þeirra Dagur og Aðalbjörg. Eig- inkona er Halla Dögg Önnudótt- ir og eiga þau soninn Úlfar Agn- ar. Börn Höllu af fyrra hjóna- bandi eru Logi Leó og Dögg. Valbjörg gerðist umsjónakenn- ari minn í öðrum bekk grunnskóla í Reykholti, Biskupstungum. Náms- árangri mínum hafði hrakað og for- eldrar mínir voru að ganga í gegn- um skilnað. Gerðar voru tilraunir með sérkennslu án teljandi breyt- inga eða árangurs. Sálfræðingur fenginn frá Selfossi til að meta hvort einhver vandamál gætu legið að baki. Eftir stutta heimsókn hortugs sálfræðings kom síðan ít- arleg greining. Þrátt fyrir að telja upp flest öll einkenni athyglis- brests var niðurstaðan að ég væri með lága greindarvísitölu. Lausnin var að setja mig í sérkennslu, með annað námsefni en jafnaldrar mín- ir voru með. Mælt var með að ég tæki bara hluta af samræmdu próf- unum, ég fengi síðan aukinn próf- tíma o.s.frv. Það tæki því ekki að reyna nein sértæk úrræði þar sem vandamálið væri greindarskortur, og í raun lagt til í þessari greiningu að gera sem minnst. Þarna var kominn fagaðili sem var búinn að ákveða að öll frekari sérúrræði væru tímasóun. Það varð mér síðan til happs að umsjónarkennari minn á þessum tíma var Valbjörg Jóns- dóttir, hún og móðir mín brugðust ókvæða við niðurstöðu þessarar greiningar og tóku ekki í mál að eftir henni yrði farið. Valbjörg var reyndur kennari og í samstarfi við móður mína settu þær síðan upp sérhæft námsprógramm fyrir mig með sérstaka áherslu á stærðfræði sem var mitt veikasta fag. Á einu skólaári fór drengurinn með slöku greindarvísitöluna úr því að vera með lægstu einkunnina í stærð- fræði yfir í að vera með þeim hæstu. Eftir því sem líða tók á þetta skólaár fór mér svo fram að námsörðugleikum mínum var lok- ið. Upp frá þessu hefur Valbjörg alla tíð fylgst vel með mér, náms- ferli og hvernig mér hefur almennt vegnað í lífinu, uppfull af stolti. Móðir mín flutti síðan með okkur til Reykjavíkur þegar ég var á 14. ald- ursári. Þrátt fyrir að Valbjörg hafi ekki verið umsjónarkennari minn í eitt ár á þeim tíma þá ákvað hún að hafa samband við móður mína mér óafvitandi og bauð henni að ég gæti klárað skólagönguna í Reykholti og búið hjá henni ef svo færi að ég myndi ekki þrífast í borginni. Umhyggja hennar hefur verið slík að hún hefur fylgst með mér og verið í sambandi við mig alveg fram á síðasta dag og fékk ég skilaboð frá henni fjórum dögum áður en hún lést. Það var aðdáunarvert að fylgjast með Valbjörgu síðustu ár- in, þrátt fyrir að vera komin fast að áttræðu þegar hún lést þá varð ég ekki var við mikinn atferlismun. Hlý, orkumikil og á faraldsfæti fram á síðasta dag, ég leit hreinlega ekki á það sem möguleika að hún félli frá í nánustu framtíð. Valbjörg er án efa einn af mestu áhrifavöldunum í mínu lífi, það þarf afar sérstakt innsæi, kjark, reynslu og þvermóðsku til þess að hunsa fagálit líkt og hún gerði. Ég dreg það ekki í efa að það sé erfitt fyrir utanaðkomandi að meta áhrif hennar á mig. Svona aðhald, svona eftirfylgni og vináttu í 20 ár er því sem næst vonlaust að reyna að þakka fyrir, þetta nær svo langt út fyrir venjulegt starfssvið kennara. Valbjörg Jónsdóttir kennari, áhrifavaldur og sannur vinur, enn og aftur takk fyrir mig. Ingi Rafn Ragnarsson. Mikið varð mér um að frétta af andláti Valbjargar Jónsdóttur. Minnti óþægilega á að aldrei má taka lífið sem sjálfsögðum hlut. Jafnvel þó hættumerkin séu ekki á hverju horni. Kynni okkar Valbjargar hófust í starfi fyrir Hjartaheill eftir að við bæði höfðum fengið viðvörun um að hjartað í okkur væri ekki eilífð- arvél. Mér var strax ljóst að fengur væri í þessari snaggaralegu konu í vinnu að hvers kyns félagsmálum. Þarna var upphaf að samstarfi okk- ar um margra ára skeið. Reyndar vildi hún meina að ég væri sífellt aðdraga hana í ýmis verkefni sem ég væri að stússast í, eins og mál- efni hjartveikra, lestraraðstoð við börn og aðstoð við heimanám barna með annað móðurmál en ís- lensku. Þar lágu leiðir okkar saman undanfarin ár, okkur báðum til ánægju. En það þurfti sjaldnast langar fortölur til að fá Valbjörgu til góðra verka. Hún hafði alla burði og vilja til að sjá um það sjálf hvort sem var afgreiðsla eða náms- aðstoð á vegum Rauða krossins eða prjónakaffi í Gerðubergi þar sem fjöldi kvenna prjónaði af kappi á föstudögum, gjarnan ullarflíkur sem Hrafn Jökulsson færði svo grænlenskum börnum. Alltaf glöð, jákvæð og áköf í að gagnast þeim sem minna máttu sín. Heiðurskona í alla staði. Ég sendi aðstandendum hennar innilegar samúðarkveðjur með þakklæti fyrir að fá að kynnast og vinna með henni. Hvíli hún í friði. Haraldur Finnsson. Kveðja frá Hjarta- heillum og SÍBS Hjartaheill voru að hefja vetr- arstarfið þegar sú sorgarfregn barst að félagi okkar, hún Valbjörg Jónsdóttir, hefði látist að morgni laugardagsins 14. september. Markmið samtakanna er að slá skjaldborg um heilbrigði hjartans, bætta heilsu og lífsgæði í íslensku samfélagi, með áherslu á framfarir í forvörnum, fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma. Mikill mannauður af sjálfboða- liðum hefur safnast í gegnum tíðina sem er styrkur fyrir samtökin. Ein af þeim er Valborg okkar sem hef- ur unnið mikið og óeigingjarnt starf af mikilli fagmennsku og ein- urð og erum við óendalega þakklát fyrir það. Var hún valin í margar trúnaðarstöður og fannst allt sjálf- sagt þegar kom að því að taka að sér verkefni. Hún lagði fram sinn skerf við að móta sögu okkar frá liðnum tíma og gera það sem við höfum farmkvæmt mögulegt. Þakklæti okkar felst í því að kunna að bera kennsl á það sem virðist sjálfsagt og læra að meta það mikils. Var henni veitt heiðurs- merki samtakanna úr gulli og var það vel við hæfi, enda hafði hún hjarta úr gulli. Fyrir hönd samtaka okkar vil ég nota tækifærið og þakka Valbjörgu fyrir framlag hennar og þátttöku í starfinu. Félagar í Hjartaheillum, SÍBS og aðildarfélögum kveðja góðan fé- laga með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Sorgin er mikil og vottum við fjölskyldu hennar dýpstu samúð. Mannsandinn líður ekki undir lok, minning um góða manneskju lifir í hjarta og minni. Líkt og sólin sem gengur til viðar en heldur allt- af áfram að lýsa. Sveinn Guðmundsson formaður. Nú stöðvar ekkert tregatárin, og tungu vart má hræra. Þakka þér amma, öll góðu árin, sem ótal minningar færa. Við áttum margar stundir saman og sögðum frá hjartans málum. Stundum sorgir og stundum gaman, svona eins og hjá saklausum sálum. Já, vinskap þinn svo mikils ég met og minningar áfram lifa. Mót áföllum lífsins svo lítið get, en langar þó þetta að skrifa. (G.S.) Margt kemur í huga minn þegar ég kveð Völlu vinkonu mína til rúmlega 50 ára. Mest þakklæti fyrir vináttu sem aldrei bar skugga á. Á árum áður kom Valla kannske í huga minn, og viti menn, stuttu seinna hringdi hún eða kom. Ég á eftir að sakna þess að sím- inn hringi ekki hjá mér, og þú seg- ir: „Nú, ertu heima?“ Og komið síð- an í kaffi. Valla hefur verið með fjölskyldu minni á gleði- og sorgarstundum í gegnum árin og erum við þakklát fyrir það. Hún elskaði að dansa og fór mikið á harmonikkuböll. Hún hafði mjög gaman af að ferðast og var dugleg að heimsækja vini og ætt- ingja um allt land og kallaði ég hana stundum flakkara. Ég er þakklát fyrir að þú komst til að kveðja okkur Inga og óska okkur góðrar ferðar, en við vorum að fara í frí. Og þakklát fyrir faðmlagið þeg- ar við kvöddumst. Elsku Valla mín, nú ertu farin í þína hinstu ferð og óska ég þér góðrar ferðar. Blessuð sé minning þín. Jóhanna Þórisdóttir. Valbjörg Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Allt í einu er Valla ekki til staðar. Hún var það allt- af. Ósegjanleg sorg er í hjarta mínu. Við upplifðum um áratugi svo margar verðmætar stundir saman. Þökk fyrir allt. Þú Vinátta þín hefur verið sólskinið á vegi mínum (Pam Brown) Ég samhryggist ykkur aðstandendum. Renata Vilhjálmsdóttir. Elsku afi. Það er svo margt sem okkur langar að segja. Svo margt sem við viljum þakka fyrir. Afi var traustur og jarðbund- Kjartan Konráð Úlfarsson ✝ Kjartan Kon-ráð Úlfarsson fæddist 10. júní 1935. Hann lést 4. september 2019. Útför Kjartans fór fram 20. sept- ember 2019. inn. Allt lék í hönd- um hans, hann var vandvirkur, úr- ræðagóður og róleg- ur. Eins og Margrét sagði: „afi laga“, því hann gat gert við allt, hann fann lausn á öllu. Síðustu ár hans voru okkur dýrmæt en við syst- urnar vorum þá fluttar suður, gátum verið ömmu og afa meira innan handar og styttra var til þeirra. Þau voru dugleg að bjóða fátæk- um námsmönnum í mat og við eyddum ófáum stundum í að borða saman súkkulaði og drekka sódavatn á meðan afi spilaði harmonikkutónlist. Amma og afi áttu fallegt samband sem ein- kenndist af virðingu, trausti og væntumþykju. Þau voru gott for- dæmi fyrir hversu ástríkt, skiln- ingsríkt og fallegt samband á að vera. Okkur er það ofarlega í huga hvað afi gerði margt fyrir okkur og hve margt hann kenndi okkur. Hann var duglegur, hógvær og hafði alla þá mannkosti sem góð manneskja hefur. Hann mat gildi fjölskyldunnar og hjálpsemi inn- an hennar mikils. Hann var iðu- lega fyrstur að stökkva af stað ef einhver þurfti á hjálp að halda og fyrstur til að hagræða því sem þurfti til að gera fjölskyldu og ástvinum auðveldara fyrir. Við erum þakklát að seinna meir fengum við tækifæri til að vera til staðar fyrir hann og að hann hafi kunnað að meta þá hjálp sem við gátum veitt. Enda löngu búinn að leggja góðan grunn sem við systkinin verðum ævinlega þakk- lát fyrir. Hrós hans og stuðningur voru einlæg, kærkomin og hann hvatti okkur áfram í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Með því að vera frábær fyrirmynd og góður kennari á hann stóran þátt í að við höfum náð markmiðum okk- ar. Takk fyrir allt, afi. Margrét, Heiður Karítas, Kristín Harpa og Davíð. Í janúar 2018 lenti ég í vinnu- slysi sem orsak- aði 20% örorku hjá mér í baki. Dagarnir hjá mér voru æði misjafnir og oft var ég með mikla verki. Um haust- ið þetta sama ár tók mér að versna og var þá svo komið að ég gat ekki sinnt verklegum hluta starfsins né klæðst skotheldu vesti, vesti þetta vegur 8,5 kg. Ekki var gerð nein athugasemd varð- andi þetta hjá yfirmönnum mínum. Ég var í sjúkraþjálf- un allt þetta ár en það virtist ekki hjálpa mér nema að litlu leyti. Hinn 15. október fékk ég vottorð frá mínum heim- ilislækni um að ég gæti ekki klæðst skotheldu vesti við dagleg störf. Hinn 5. desem- ber var hringt í mig frá einka- fyrirtækinu Heilsuvernd þar sem ritari tjáði mér að ég skyldi mæta til trúnaðar- læknis og hvaða tími myndi henta mér. Þar sem ég var búinn að fá vottorð hjá mín- um heimilislækni þá taldi ég enga ástæðu til þess að hitta trúnaðarlækni tollstjóra, svo sem fram kemur í lögum um réttindi sjúklinga 74/1997 20 grein: „Þrátt fyrir skiptingu landsins í [heilbrigð- isumdæmi] samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á sjúklingur rétt á að leita til þess læknis sem honum hent- ar best. Þá á hann rétt á að fá álit annars læknis á grein- ingu, meðferð, ástandi og batahorfum. Sama gildir um aðra heilbrigðisstarfsmenn.“ Starfsmönnum tollstjóra ber því engin skylda til að fara til trúnaðarlæknis, það kemur skýrt fram í lögum þessum. Það var síðan hinn 4. jan- úar 2019 sem ég fékk tölvu- póst frá fyrrverandi formanni Tollvarðafélagsins og núver- andi yfirtollverði þess efnis að mér bæri að fara í veik- indaleyfi frá og með 7. janúar 2019, ástæðan var sögð um- rætt læknisvottorð frá 15. október 2018. Ég var því settur í veik- indaleyfi fyrirvaralaust frá og með 7. janúar sl., þetta varð mér að sjálfsögðu mikið áfall og það fyrsta sem fór í gegn- um hugann var að fá skýr- ingar á þessari framkomu. Ég óskaði því eftir fundi með starfsmannastjóra. Umrædd- ur fundur var haldinn þriðju- daginn 8. janúar þar sem mætt voru yfirtollvörður, starfsmannastjóri, formaður Tollvarðafélags Íslands og undirritaður. Efni fundarins var það að fá skýringar á þeirri stöðu sem upp var komin. Skemmst er frá því að segja að undirritaður fékk engin svör við þeim spurn- ingum sem hann bar upp, svo sem eins og hversu lengi hann ætti að vera í veikinda- leyfi. Undirritaður þurfti til dæmis að spyrja starfs- mannastjórann átta sinnum hver hefði tekið ákvörðun um að hann ætti að fara einhliða í umrætt veikindaleyfi, en það mun hafa verið aðstoðartoll- stjóri, sem undirritaður er reyndar búinn að bíða eftir viðtali við í átta mánuði á ár- angurs. Fyrrverandi formað- ur Tollvarðafélagsins og nú- verandi yfirtollvörður hafði lítið til málanna að leggja annað en að glotta að þeim skýringum sem ég lagði fram eins og til dæmis þeim er varða „réttindi sjúklinga til að velja sér lækni sem hentar best“. Formað- ur Tollvarða- félagsins kom með tillögu um hvort ég gæti verið í 80% vinnu og 20% veikindaleyfi en því var fljótsvarað af starfs- mannastjóra „tollverðir geta ekki verið í hlutastarfi“. Það var því ákvörðun embættis- ins að senda mig fyrir- varalaust í veikindaleyfi, mér var enginn annar kostur gef- inn. Ég var sem sagt kominn í veikindaleyfi og næstu mán- uðir urðu mér mjög erfiðir andlega. Það var síðan í lok mars 2019 að ég var í göngu rétt við heimili mitt að ég fékk mikinn verk fyrir brjóst- ið sem leiddi út í báða hand- leggi. Ég skildi ekki í fyrstu hvað var að gerast en áttaði mig svo á því að ég hlyti að vera að fá hjartaáfall. Þetta reyndist rétt því ég var flutt- ur á Landspítalann við Hringbraut með sjúkra- bifreið beint á hjartadeild Landspítalans, ég fór síðan í aðgerð daginn eftir. Mér var tjáð af læknum eftir aðgerð- ina að ég væri heppinn að vera á lífi og þakka ég Guði fyrir það. Þegar ég lá á Landspít- alanum vöknuðu hjá mér margar spurningar, hvernig stóð á því að ég fékk hjarta- áfall, ég hef aldrei reykt, ég hafði engin líkamleg einkenni sem gætu bent til þess að ég væri í áhættuflokki varðandi hjartaáfall. Þegar ég hafði sagt læknunum mína sögu um framkomu embættisins við mig og þá andlegu krísu sem ég hafði gengið í gegnum á undanförnum mánuðum þá töldu þeir ekki ólíklegt að þetta hefði haft veruleg áhrif á þessi veikindi mín. Þessi einhliða ákvörðun hefur því skaðað mig fyrir lífstíð. Frá því að þetta gerðist þá hef verið á Reykjalundi í endur- hæfingu. Því miður hefur batinn ekki verið mikill. Tollstjóraembættið stærir sig af merkilegri mannauðs- stefnu eins og kemur fram á heimasíðu embættisins en þar segir orðrétt: „Tollstjóri ber umhyggju fyrir velferð starfsfólks.“ Á þeim níu mán- uðum sem ég hef verið í veikindaleyfi hef ég ekki heyrt frá yfirmönnum mín- um, starfsmannastjóra né öðrum sem eru í forsvari hjá Tollstjóraembættinu, þetta er þá öll umhyggjan fyrir vel- ferð starfsfólksins! Í rúm 30 ár hef ég starfað hjá embættinu, þetta hefur verið ævistarf mitt. Vonandi eru yfirmenn og starfs- mannahald stolt af sínum verkum, það munaði ekki miklu að þetta fólk hefði líf mitt á samviskunni! Mannvonsku- stefna tollstjóra Björgvin V. Björgvinsson » Þessi einhliða ákvörðun hefur því skaðað mig fyrir lífstíð. Höfundur er tollvörður. Eftir Björgvin V. Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.