Morgunblaðið - 27.09.2019, Page 27

Morgunblaðið - 27.09.2019, Page 27
Það er sárt að horfa á eftir svo góðum manni, og Grétar var að skilja við langt um aldur fram. Grétar var einn af máttar- stólpum Víðis í Garði á gullald- arárum liðsins í efstu deild á 9. áratugnum. Ég man svo vel eftir baráttuleikjum okkar gegn Garðsmönnum á þessum árum, þar sem ekki var tomma gefin eftir. Það var hart en drengilega barist. Við Valsmenn bárum mikla virðingu fyrir þeim en þeir slógu okkur Valsmenn út í eft- irminnilegum leik í undan- úrslitum bikarsins 1985, til sællar minningar þeirra Garðsmanna. Grétar var á þessum árum einn af bestu framherjum deildarinn- ar og var síðar valinn í landsliðið, en hann lék alls þrjá landsleiki fyrir Ísland. Það var ekki sjálf- gefið að ná þeim árangri án þess að koma frá „stærri“ félögunum á þessum tíma. Þessi árangur Grétars sýnir hvað hann var góð- ur og hæfileikaríkur leikmaður. Hann lék síðar með Keflavík, FH og Grindavík en var alltaf gegnheill Víðismaður. Víðir var hans félag sem hann sinnti svo vel sem leikmaður, þjálfari, stjórnarmaður en fyrst og fremst sem einarður stuðningsmaður. Grétar lék einmitt síðasta leik sinn fyrir Víði í Garði árið 2008, þá 44 ára gamall, þar sem hann skoraði í bikarleik gegn Árborg. Geri aðrir betur. Eftir að ég varð formaður KSÍ hitti ég síðan Grétar margsinnis. Alltaf var hann ljúfur og jákvæð- ur í afstöðu sinni gagnvart fót- boltanum, mönnum og málefnum. Garðurinn og fótboltasamfélagið hefur misst einn af sínum bestu mönnum. En missir fjölskyldu og ástvina er þó allra mestur og vil ég votta þeim mína dýpstu samúð á þessari stundu. Það voru forréttindi að etja kappi við og kynnast góðum dreng sem Grétar var og hans verður sárt saknað. Blessuð sé minning Grétars Einarssonar. Guðni Bergsson, formaður KSÍ. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Val Við í meistaraflokki Vals í knattspyrnu á 9. áratugnum syrgjum fallinn félaga; Grétar Einarsson, goðsögnina úr Garð- inum sem var heiðursmaður inn- an vallar sem utan. Það var aðdá- unarvert að fylgjast með Víði í boltanum á þessum árum því liðið skartaði skörungum; leikmönn- um sem léku með hjartanu og gáfu aldrei þumlung eftir. Þótt við hefðum orðið Íslandsmeistar- ar árið 1987 og Víðir fallið niður um deild, slógu Grétar og vinir hans okkur út í undanúrslitum bikarkeppninnar. Sá leikur líður okkur seint úr minni en hetjurn- ar úr Garðinum áttu sviðsljósið skilið í stærsta leik sumarsins – bikarúrslitum. Í rúm þrjátíu ár hefur leik- menn Víðis reglulega borið á góma hjá okkur Valsmönnum af því að við dáðumst að þrautseigju þeirra, samstöðu og sigurvilja. Og ekki síst fyrir þær sakir hversu heiðarlegir þeir voru og kurteisir, þrátt fyrir hörkuna. Sannast sagna minna Grétar og vinir hans í Víði á landsliðið í knattspyrnu undanfarin ár – litla liðið sem sló í gegn á stóra svið- inu sökum einstakrar liðsheildar, vináttu og dugnaðar. Grétar var lúmskur leikmaður, fylginn sér og hafði nef fyrir því að skora mörk eins og tölfræðin sýnir; 159 mörk í 323 leikjum. Hann var nettur húmoristi og lét ýmislegt fyndið falla þegar ég fylgdi honum eftir eins og skuggi í leikjum en það var hægara sagt en gert. Við í Val vottum fjölskyldu Grétars, ástvinum og félögum hans í Víði okkar dýpstu samúð. Minningin um einstakan dreng mun lifa. Þorgrímur Þráinsson. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 ✝ Kristín Guð-jónsdóttir fæddist á Búðar- eyri við Reyðar- fjörð 28. júlí 1918. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð 19. september 2019. Foreldrar henn- ar voru Margrjet Guðmundsdóttir, f. í Veltu í Mjóafirði 25. júlí 1894, d. 1975, og Guðjón Jónsson, f. á Byggðarenda á Álftanesi 7. febrúar 1893, d. 1921. Alsystkini hennar voru Elín María, f. 1919, d. 1957, og Óskar Guðmundur, f. 1920, d. 2009. Þremur árum eftir andlát Guðjóns giftist Margrjet Svein- birni P. Guðmundssyni, f. 1880, d. 1955, ekkjumanni með fjögur Kristín giftist Sigurberg Bogasyni frá Flatey á Breiða- firði 16. des. 1944. Börn þeirra eru 1) Erla, f. 1945 í Reykjavík, maki Hauk- ur Már Haraldsson, þau eiga fjögur börn, 11 barnabörn og þrjú barnabarnabörn. 2) Mar- grét Sigurborg, f. 1947 í Flat- ey, maki Þór Guðlaugur Vest- mann Ólafsson, þau eiga fjög- ur börn, 11 barnabörn og tvö barnabarnabörn. 3) Guðjón, f. 1949 í Flatey, maki Dagmar Svala Runólfsdóttir, d. 17. apr- íl 2018. Þau eignuðust þrjá syni, fjögur barnabörn og eitt barnabarnabarn. Kristín og Sigurberg bjuggu í Vestmannaeyjum fram að eldgosinu á Heimaey árið 1973 en fluttust þá til Reykjavíkur og bjuggu þar alla tíð síðan. Kristín starfaði við fisk- vinnslu í Vestmannaeyjum en í Reykjavík vann hún á Hrafn- istu í tæp 20 ár. Útför Kristínar fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 27. september 2019, klukkan 13. börn; Guðríði, f. 1912, d. 1988, Hrafn, f. 1913, d. 1988, Þórólf Beck, f. 1915, d. 1996, og Birgi, f. 1921, d. 1936. Margrjet og Sveinbjörn eign- uðust saman sex börn; Ásbjörn, f. 1924, d. 2017, Tryggva, f. 1925, d. 1992, Styrkár, f. 1927, d. 1989, Eystein, f. 1929, d. 2018, Guðmund, f. 1930, d. 1936, og Steinunni Sigurbjörgu, f. 1938. Kristín ólst upp á Reyðarfirði en fluttist með foreldrum sínum um 16 ára aldur í Svefneyjar á Breiðafirði og þaðan til Flat- eyjar og bjó þar til ársins 1957 er hún flutti með fjölskyldu sína til Vestmannaeyja. Hún Gógó tengdamóðir mín, Kristín Guðjónsdóttir, verður borin til grafar í dag, 101 árs og södd lífdaga. Við hittumst fyrst þegar ég kom með tilvonandi eiginkonu minni, dóttur þeirra Sigurbergs Bogasonar, til Vestmannaeyja til að setja upp hringana og hitta væntanlega tengda- foreldra. Það var árið 1966. Síð- an eru liðin fimmtíu og þrjú ár og sitthvað hefur gerst á þeim tíma í lífi beggja. Gógó var Austfirðingur að uppruna, frá Reyðarfirði, og á mikinn fjölda ættingja þar eystra. Foreldrar hennar voru Margrét Guðmundsdóttir og eiginmaður hennar Guðjón Jónsson sjómaður. Guðjón fórst í Hornafjarðarósi þegar Kristín var ung að aldri og Margrét móðir hennar giftist seinna Sveinbirni Guðmundssyni, kennara á Reyðarfirði. Þau fluttu svo í Svefneyjar á Breiða- firði og Sveinbjörn varð kenn- ari í Flatey, þar sem Kristín kynntist tilvonandi eiginmanni sínum, Sigurberg Bogasyni bónda. Hún bjó lengi í Flatey með eiginmanni sínum og börnunum þremur. Þar voru nöfn sumra húsa ekki skorin við nögl. Í stuttan tíma bjuggu þau í Para- dís en lengst af í Alheimi, þar sem börnin þrjú voru alin upp, Erla, Margrét Sigurborg og Guðjón. Svo hætti fiskurinn að veiðast í Breiðafirði og íbúar þessa sérstæða samfélags veiði- mennsku, landbúnaðar og við- skipta fluttu á brott; Kristín og Sigurberg með börnin til Vest- mannaeyja í hús sem heitir Við- ey. Ansi löngu síðar byggðu þau sér hús við Vesturveginn og fluttu í það á Þorláksmessu 1972. Upp á dag mánuði síðar gaus í Heimaey og þau urðu að flýja nýja heimilið. Og þau sneru aldrei aftur. Gátu ekki hugsað sér að búa á breyttri Heimaey. Síðustu sjö árin bjó Kristín á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð. Krafturinn var ekki sá sami undir það síðasta og heyrnin orðin ansi lítil. En kímnin var þarna lengst af. Viss mæli- kvarði var að meðan hún gat strítt þessum hér tengdasyni sínum á Mogganum og Davíð Oddssyni væri ekkert að henni. Reyndar var hún áskrifandi að Morgunblaðinu þar til fyrir fá- einum árum að áskriftinni var sagt upp. Hún sagði að blaðinu hefði farið verulega aftur síðan Styrmir hætti. Nú er komið að kveðjustund eftir fimmtíu og þriggja ára góð kynni og skemmtileg. Hvíldu í friði, kæra tengdó, og takk fyrir allt. Haukur Már Haraldsson. Mig langar til að minnast hér í fáum orðum föðursystur minnar Kristínar Guðjónsdótt- ur sem nú er látin í hárri elli. Ég kynntist Kristínu, eða Gógó eins og hún var jafnan kölluð, fyrst árið 1957 þegar hún, Sigurberg eiginmaður hennar og börn þeirra Erla, Margrét og Guðjón fluttu frá Flatey á Breiðafirði til Vest- mannaeyja. Gógó var dóttir Margrétar Guðmundsdóttur og eiginmanns hennar Guð- jóns Jónssonar og elst þriggja alsystkina. Guðjón fórst í róðri í mars 1921 aðeins 28 ára gamall er Gógó var aðeins þriggja ára, Elín systir hennar á öðru ári og Óskar á fyrsta ári. Síðar giftist Margrét Sveinbirni P. Guðmundssyni og eignuðust þau saman sex börn er öll urðu uppkomin nema sonur sem lést á sjötta aldursári. Alls átti Gógó því átta systkini. Steinunn, sú yngsta í hópnum, lifir systkini sín öll. Fyrir mér var það mikið til- hlökkunarefni árið 1957 þegar mamma og pabbi sögðu mér að von væri á Gógó, Begga og börnum þeirra úr Flatey og að þau ætluðu sér að búa hér í Vestmannaeyjum. Þegar þau voru komin hingað var svo sannarlega hægt að segja að ég, níu ára peyinn, hefði dottið í lukkupottinn. Við Guðjón eða Gutti eins og hann var gjarnan kallaður og var einu ári yngri en ég, urðum strax mestu mátar, lékum okkur saman og brölluðum ýmislegt eins og stráka er háttur. Þau Gógó og fjölskylda bjuggu á efri hæðinni í Viðey og á milli fjölskyldna okkar í Lambhaga og þeirra í Viðey hélst ávallt náin, góð vinátta. Mikill samgangur var á milli fjölskyldnanna og allt það treysti enn frekar vináttu- böndin. Ég man sérstaklega eftir því hve indæl mér þótti Gógó frænka, hún sýndi mér alltaf hlýju, gott viðmót og það var mjög gott að koma í Viðey ekki síst vegna þessara kosta hennar. Mamma og Gógó unnu saman í Fiskiðjunni um árabil og þær mágkonurnar og vinkonurnar nutu þess að geta verið saman þar við störf þar sem þær kepptust við að bjarga verð- mætum eins og það var jafnan kallað þegar fólk vann í fiski. Gógó og Beggi fluttu til Reykjavíkur í eldgosinu árið 1973. Þá voru foreldrar mínir löngu fluttir þangað. Enn hélst mikið traust og vinátta milli þeirra allra og áttu þau saman margar samveru- og gleði- stundir. Það var gaman að heimsækja þau Gógó á Klepps- veginn, alltaf var vel tekið á móti mér og mikið spjallað, ekki síst um menn og málefni í Vestmannaeyjum. Þá kom enn í ljós hve traust og hlý Gógó var. Nú er Gógó frænka dáin og ég minnist hennar sem hjarta- hlýrrar konu sem auðvelt er að sakna. Og við öll minnumst hennar með söknuði. Við hjónin vottum Erlu, Margréti og Guð- jóni og fjölskyldum þeirra okk- ar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Kristínar Guðjónsdóttur. Ragnar Óskarsson. Kristín Guðjónsdóttir ✝ Júlíus Jónssonfæddist í Reykjavík 27. nóvember 1948. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 16. september 2019. Foreldrar hans voru Jón Tómas- son, f. 1920, d. 2004, og Guðrún Júlíusdóttir, f. 1920, d. 2015. Systkini Júlíusar eru Tómas, f. 1946, d. 2008, 2000, Stefán Ingi Hólm, f. 2002, Almar Hólm, f. 2009, og Bryndís Hólm, f. 2011. Móðir þeirra er Anna Hólm Stefáns- dóttir, f. 1974. Júlíus lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði frá Iðnskóla Reykjavíkur árið 1970. Að loknu námi hóf hann störf hjá Gamla kompaníinu, sem síðar sameinaðist Pennanum Ey- mundsson, og vann þar að mestu alla sína starfsævi. Júl- íus hafði alla tíð mikinn áhuga á útivist og ferðalögum bæði hérlendis og utanlands. Útför Júlíusar fer fram í Vídalínskirkju í dag, 27. september 2019, klukkan 13. Jón Gunnar, f. 1955, og Erla, f. 1958. Eiginkona Júl- íusar er Björk Garðarsdóttir, f. 1962. Dóttir þeirra er Bylgja, f. 1990. Eigin- maður hennar er Sveinbjörn Rögn- valdsson, f. 1987. Júlíus átti áður soninn Skúla, f. 1974. Börn Skúla eru Daníel Hólm, f. Með þessum fáu orðum sem hér fara á eftir kveð ég Júlíus, kæran mág minn. Ég kynntist Júlla, eins og hann var ætíð kall- aður, þegar við Tómas bróðir hans fórum að draga okkur sam- an fyrir um það bil 56 árum. Aldrei féll skuggi á vinskap okk- ar Júlla. Hann var ljúfur og kát- ur og alltaf var stutt í grínið hjá honum, hann var snöggur að svara fyrir sig ef því var að skipta. Júlli var húsgagnasmiður að mennt og mjög útsjónarsamur og það var fátt sem Júlli gat ekki leyst. Ég minnist hans þegar við Tommi keyptum raðhúsið okkar í Kambaselinu árið 1980. Á þeim tíma var hægt að kaupa það sem hét „tilbúið undir tréverk. Ég gleymi ekki hvað Júlli var okkur hjálplegur, meðal annars setti hann upp fataskápa og innihurð- ir. Hann var sérlega vandvirkur og öll hans verk voru snilldar vel gerð. Ég minnist ótal margra skíðaferða í Bláfjöll ásamt Júlla og tengdaforeldrum mínum. Síð- ar voru keyptir vélsleðar og þeyst um fjöll og dali. Júlli hafði mjög gaman af að ferðast um landið ásamt Björk konunni sinni, hann naut sín vel úti í ís- lenskri náttúru. Jóladagur, 25. desember, skip- aði stóran sess í fjölskyldunni. Þá hittumst við öll, stórfjölskyld- an, í Álftamýrinni hjá tengdafor- eldrunum, ég hugsa til þeirra stunda með söknuði og hlýhug. Elsku Júlli hefur verið leystur frá erfiðum sjúkdómi og er von- andi kominn á góðan stað. Ég bið góðan Guð að styrkja Björk og fjölskylduna alla. Júlla er sárt saknað. Guðrún Þórdís Axelsdóttir. Júlíus Jónsson, sem í dag er borinn til grafar, og kona hans, Björk Garðarsdóttir, voru sam- ferðafólk okkar um langt skeið, sumpart vegna nágrannabúsetu í allmörg ár en einnig vegna þess að áhugamál okkar snertust að nokkru leyti þar sem voru ferðir og ferðalög sem og leikhúsferðir. En Júlíus var á árum áður mikill útivistarmaður. Ferðuðust þau hjón mikið um landið og ekki síst hafði hann yndi af því að fara á vélsleða um óbyggðir og hálendi Íslands. Við sem þessi kveðjuorð ritum áttum því láni að fagna að eiga þess kost á síðari árum að ferðast með þeim hjónum og þá einkum víðs vegar um Evrópu. M.a. fórum við með þeim í sigl- ingu um Miðjarðarhaf. Í ökuferðum okkar erlendis sat Júlíus jafnan við stýrið, yf- irvegaður og öruggur. Hann var líka að eðlisfari rólyndur og létt- ur í lund. Júlíus hafði mikinn áhuga alls kyns tækjum og tækni. Flest sem hann kom að lék í höndun- um á honum. Hann var mjög greiðvikinn ef til hans var leitað. Við kveðjum einkar þægilegan og skemmtilegan samferðamann og vin sem skóp með okkur margar eftirminnilegar stundir. Við sendum aðstandendum hans innilegustu samúðarkveðjur. Guðbjörg Sigfúsdóttir og Eiríkur Þormóðsson. Júlíus Jónsson Það er bjartur og sólríkur vordag- ur þegar Fokker- inn lendir á Egils- stöðum. Ég tek fuglabúrið með litla græna páfagauknum mín- um og rölti út þar sem Jónsi frændi og Elsa taka á móti okkur. Það er lok maí 1984, ég er 12 ára og þau rétt rúmlega tvítug. Ég er komin til sum- ardvalar hjá þeim og ætla að passa dóttur vinahjóna þeirra. Við sækjum hjólið mitt og rennum frá flugvellinum á Eg- ilsstöðum inn á Strandgötuna á Eskifirði. Þar leigja Jónsi frændi og Elsa litla íbúð og þangað liggur brattasti stigi sem ég hef á ævinni klifið. Elsa sýnir mér herbergið mitt sem er bjart og fallegt undir súð. Ég var alltaf hræðilega feimin og óörugg og þekkti Jónsa frænda ekki mikið. Jú, hann var maðurinn sem ég ætlaði að giftast frá því ég var ca fjög- urra ára þangað til hann fann Elsu en annars höfðum við svo sem ekki umgengist svo mikið þó að mæður okkar væru nán- ar, systurnar. Elsu hafði ég hitt einu sinni og þarna var ég kom- in. Óöryggi mitt hvarf fljótlega eftir að ég kynntist Elsu. Hún vildi mér vel og þau bæði. Þetta sumar var eitt ævintýri og gífurlega dýrmætt. Ég dvaldi allt fríið hjá Jóni og Elsu og passaði eins árs dóttur vin- ahjóna þeirra. Sjóskíði, jeppa- ferðir, sjósiglingar, skotveiðar og eyðibýlaheimasóknir voru á meðal þess sem við gerðum en einnig að spila á spil, hlusta á Bubba og kíkja á vídeóleiguna hjá Trausta og leigja góða spólu og maula nammi. Að ný- giftu, tvítugu hjónin hafi nennt að hafa einhvern krakka inni á sér er mér alveg óskiljanlegt enn í dag En þakklát er ég! Af Elsa Þórisdóttir ✝ Elsa Þóris-dóttir fæddist 12. nóvember 1963. Hún lést 11. september 2019. Útför Elsu fór fram 20. september 2019. öllu hjarta. Senni- lega segir þetta allt sem segja þarf um gestrisni þeirra hjóna alla tíð. Sumarið eftir, árið 1985 dvaldi ég hjá þeim aftur og pass- aði annað barn vinahjóna. Ekki minna viðburðar- ríkt sumar. Árin liðu og allir eign- uðust barn og buru. Stína frænka kvaddi. Í mars 2017 dvaldi ég í mín- um gamla heimabæ Albufeira í sex vikur. Fljótlega eftir að ég kom þangað út hringdi Elsa í mig. Hún vildi kanna hvort ég gæti mælt með góðu hóteli fyr- ir þau hjónin í Algarve en þau voru búin að bóka flug þangað í apríl til að sleikja sólina, borða góðan mat og spila golf. Ég benti henni á nokkra möguleika í ólíkum bæjum en að lokum völdu þau að dvelja í Albufeira, sama bæ og ég var í. Ég trúi ekki á tilviljanir! Enda áttum við dásamlegan tíma saman og endalaust skemmtilegar stund- ir. Við rúntuðum um héraðið, við Elsa mátuðum camouflage- buxur í verslunarmiðstöðvum, við „stöffuðum okkur“ af piri- piri kjúkling með tilheyrandi kjamsi og vellíðan, við sóluðum okkur á ströndinni hjá barns- föður mínum á Praia de Lou- renco og snæddum hvítlaus- kristaðar risarækjur sem við skoluðum niður með Sangría. Lífið var dásamlegt. Ekkert varir að eilífu. Storminn hægir og rigningin styttir upp. En sólin hvílir sig líka. Og Elsa þarf að hvíla sig núna. Ég sé hana fyrir mér á sólgylltri strönd að njóta ylsins og ork- unnar frá sólinni. Útitekin og sátt. Bakvið hana er veitinga- staður með útsýni yfir sjóinn og brimsorfna kletta, Atlants- hafið sem hún þekkir svo vel. Þar bíða hennar hvítlauksri- staðar rækjur, skelfiskur og humar. Og Sangría. Fullt, fullt af sangría. Ragnheiður Kr. Jóhannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.