Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 VINNINGASKRÁ 21. útdráttur 26. september 2019 160 13399 23194 32988 42980 52954 62424 73527 322 13463 23227 33087 43688 52970 62652 74008 360 13565 23777 33098 44000 53374 62672 74294 1494 13643 23895 33653 44213 53732 62817 74755 1605 13813 24431 34326 44678 53740 62832 74986 1618 15019 24654 34359 44690 53886 63050 75317 1958 15150 26143 34674 44697 54289 63439 75552 2068 15313 26592 34991 44864 54411 63532 75610 4054 15584 26734 34995 45233 54674 64526 75944 4073 16061 26950 35037 45368 54684 64623 75946 4153 16390 27030 35232 45510 54929 65421 76080 4538 16777 27185 35661 45726 55983 65552 76345 4564 16924 27443 35766 45943 55984 66015 76387 4656 17150 27630 35873 46013 56217 66091 76421 4667 17320 27755 36298 46430 56327 66327 76663 5407 17346 27809 36335 46610 56460 66369 76806 5534 17505 27920 36704 46766 57334 66548 77328 6138 17579 27992 37025 47013 57693 67018 77532 6260 17982 28247 37040 47484 57937 67053 77671 6345 18171 28629 37242 47899 58197 67209 77678 6346 18336 28808 37386 47942 58543 67319 77823 6929 18495 29075 37496 48192 58624 67387 77840 7218 18656 29194 37531 48980 58846 67517 77850 7334 18763 29234 38219 49226 59125 68410 77969 7481 19978 29413 38495 49612 59263 68568 78179 7810 20376 29447 38795 49623 59817 68717 78597 8690 20482 29509 38804 49641 60103 68719 79087 9217 20559 29604 39599 49726 60180 69579 79341 9330 21373 29845 40202 50259 60231 69724 79395 9348 21422 29929 40926 50396 60691 70197 79459 11056 22002 30385 40992 50706 61017 70319 79701 12256 22323 30418 41236 50740 61439 70377 12285 22532 30736 41361 51225 61458 70399 12602 22942 31665 41428 52322 62002 71163 12640 23091 31841 41749 52495 62115 71212 12987 23110 31866 41825 52685 62159 72323 13351 23177 31962 42512 52787 62384 73193 1023 15224 27436 39160 44175 52202 62207 71513 1937 17106 28901 39289 44976 53962 63219 71792 5561 17441 30680 39959 45226 53973 63579 72360 5681 19766 32425 40033 45702 54260 66299 75302 8955 20149 33063 40129 45716 54654 66537 76474 9185 20172 34289 40231 46087 56024 66748 76724 9381 23182 35612 40324 46713 58648 66951 77612 9646 23755 37017 41416 49478 58760 67778 79601 10037 24390 37799 41768 49711 58940 68979 79661 10775 24677 38227 42099 50150 59261 69253 11806 24973 38418 42159 50246 60358 69267 12308 26113 38498 42264 50785 60497 69377 15094 27295 39064 44056 50961 62093 70375 Næstu útdrættir fara fram 3., 10., 17., 24. & 31. október 2019 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 13527 35101 46689 61466 71559 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 11814 31481 35975 45186 50940 63330 12150 32525 37462 49664 54317 64845 12425 33416 37609 49963 57881 65178 13842 35303 41950 50912 62172 77684 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 1 9 6 7 Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is „Fólk má búast við fjölbreyttri sýn- ingu sem er lífleg og skemmtileg þar sem sjónræn „element“ verða í fyr- irrúmi,“ segir Jóhannes Dagsson, sýningarstjóri sýningarinnar Heimurinn sem brot úr heild um það hverju listunnendur mega búast við þegar þeir virða fyrir sér sýninguna sem verður opnuð í Listasafni Ár- nesinga á morgun kl. 15 og stendur til 15. desember. Á sýningunni verða sýnd verk eft- ir listamennina Önnu Jóa og Gústav Geir Bollason sem Jóhannes hefur valið saman en þetta er þriðja sýn- ingin sem hann stýrir. „Ég er örugg- lega sá reynsluminnsti af þessu þríeyki,“ segir Jóhannes sposkur. Verkefnið hefur verið þríeykinu hugstætt síðustu tvö árin. „Síðasta vor fór ég síðan að velja verk og setja þetta saman og þá fór að koma fastara form á þetta. Síðustu tvo mánuði hefur þetta verið marksækin vinna að koma sýningunni saman,“ segir Jóhannes. Heimurinn aðeins hluti úr heild Hann segir að í sýningunni sé fengist við brotið og hlutann sem sé báðum listamönnunum hugleikið og þaðan sé nafn sýningarinnar komið. „Báðir þessir hlutar standa fyrir ákveðna heima. Mér fannst eitthvað fallegt við að stilla heiminum upp sem aðeins hluta úr heild sem gefur til kynna að það sé til einhver enn stærri heild en heimurinn,“ segir Jóhannes og hefur á orði að þarna ægi mörgum heimum saman. „Maður er stundum jafnvel ekki viss hvað tilheyrir hverjum. Þetta eru oft lítil brot úr heimum sem gætu verið til, eru til eða hafa verið til. Listamennirnir nota síðan verkin til að greina og skoða þessi fyrir- bæri.“ Jóhannes líkir þessu við fornleifa- fræðinga sem rannsaka forna heima eða rústir. „Hérna er það bara listin sem er notuð til þess.“ Snýr allt að teikningunni Útgangspunktur sýningarinnar er teikningin. „Hún birtist sem miðill eins og við erum vön að umgangast teikningu, það er að segja þegar maður dregur eitthvað upp á blað. Svo birtist hún einnig í öðrum verk- um á sýningunni og þá meira sem einhvers konar nálgun eða aðferð til þess að greina eða skoða þó að mað- ur sé búinn að sleppa blýantinum,“ segir Jóhannes. „Það eru því þrívíð verk sem eru teikning í málm, stein eða annan efnivið,“ segir hann en á sýningunni koma við sögu höggmyndir, mál- verk, myndbönd og fleira. „Það ægir saman margskonar miðlum en eiga allir grunn í þessu,“ bætir hann við og á þar við teikninguna. Jóhannes segir óvenjulegt að velja saman tvo listamenn þar sem út- gangspunkturinn sé þessi. „Það er einnig svolítið óvenjulegt að þau séu bæði að fást við svipuð viðfangsefni en nálgast það með algjörlega ólíkri framsetningu,“ segir Jóhannes sem reynir að skapa samtal milli verka þessara tveggja listamanna, Önnu og Gústavs, í uppsetningu sýning- arinnar. „Það er skemmtilegt verk- efni að hafa tvo listamenn saman.“ Þaulreyndir listamenn Gústav rekur listasmiðjuna Verk- smiðjuna á Hjalteyri og er þaul- reyndur listamaður. „Hans bak- grunnur er í teikningunni og þess konar miðlum og svo gerir hann mikið af myndböndum og fer yfir á kvikmyndaformið. Hann er að velta fyrir sér þessum rústum heims í gegnum Verksmiðjuna á Hjalteyri, tímanum og hvernig hlutir fölna, eyðast eða ganga aftur til baka inn í náttúruna,“ segir Jóhannes. Anna Jóa hefur verið virk í lista- heiminum sem listamaður, sýning- arstjóri, gallerísrekandi og gagnrýn- andi. „Hún nálgast brot í meira mæli á bókstaflegan hátt í þessari sýn- ingu. Mikið af myndunum er unnið upp úr mjög smáum postulíns- brotum sem eru fundnar í fjörunni. Þetta er bæði leikur en einnig mjög alvarlegt viðfangsefni. Leikurinn er að fara í fjöruna og finna eitthvað en líka hugleiðingin um það hvað þessi brot tákna og hvernig þau koma til. Hvað þau stóðu fyrir og fyrir hvað þau standa núna. Þetta hugleiðir hún í gegnum verkin,“ segir Jóhann- es. Jóhannes segir erfitt að nefna ákveðna listamenn sem þau Gústav og Anna séu undir áhrifum af. „Þau eru bæði að tala inn í samhengi sem er listasaga síðustu tuttugu ára. Það er frekar hægt að horfa á það þannig að þau séu að ávarpa þemu sem eiga sér sögulegar rætur.“ Þríeyki Anna Jóa, Jóhannes Dagsson og Gústav Geir Bollason í safninu. Miðlum ægir saman  Ný sýning opnuð í Listasafni Árnesinga  Þar eru brot og heimar skoðaðir og teikningin er útgangspunktur Svipir Úr seríu eftir Gústav Geir.True North Verk eftir Önnu Jóa. Í frétt um seinni úthlutun ársins úr Myndlistarsjóði sem birt var í Morgunblaðinu 25. september stóð að úthlutað hefði verið 21,6 millj- ónum króna í styrki úr Myndlistar- sjóði í síðari úthlutun sjóðsins á árinu og að 142 umsóknir hefðu bor- ist og 45 verkefni hlotið styrki. Hið rétta er að 21,6 milljónir voru veittar til alls 68 verkefna og þar af voru 45 verkefni í flokki sýningarverkefna. Í öðrum flokkum eru veittir níu undirbúningsstyrkir að heildarupp- hæð 2,05 millj. kr., 11 útgáfu- og rannsóknarstyrkir að heildarupp- hæð 4,1 millj. kr. og þrír styrkir í flokki annarra verkefna að heildar- upphæð 750 þúsund kr. 68 verkefni og þar af 45 sýningarverkefni LEIÐRÉTT Löngu glatað meistaraverk frá 13. öld eftir Cimabue, listamann frá Flórens á Ítalíu, fannst í eldhúsi í úthverfi Parísar í júní. Það var í eigu konu á tíræðisaldri sem hafði ekki hugmynd um uppruna verks- ins og vissi ekki einu sinni hvernig það komst í hennar hendur. Þegar konan hugðist selja hús sitt var sér- fræðingur fenginn til að meta verð innanstokksmuna hússins. Án sér- fræðingsins hefði verkinu, sem mál- að var á tré og hékk yfir eldavélinni í húsinu, verið fleygt. Verkið er metið á fjórar til sex milljónir evra sem jafngildir um 450 til 800 millj- ónum króna. Hundruð milljóna héngu í eldhúsinu Verðmætt Málverkið sem talið er að Ítal- inn Cimabue hafi málað á 13. öld. AFP Plötubúðin Lucky Records var opnuð fyrir tíu árum og verður haldið upp á það í versluninni á morgun. Þar munu hljóm- sveitir koma fram og plötu- snúðar leika fyrir gesti og boðið verður upp á veitingar. Verslunin verður opnuð kl. 11 og kl. 12 hefur fyrsti listamaður leik, plötusnúðurinn Dj Beatmak- in Troopa, réttu nafni Pan Thor- arensen. Kl. 14 tekur Dj Sævar Markús við en hann starfar jafn- an sem fatahönnuður. Kl. 16 hefur hljómsveitin ADHD leik og um 40 mínútum síðar tekur Dj Dolphin við, einnig þekktur sem Robot Disco. Kl. 18 er það svo ROHT sem leikur fyrir gesti. Lucky Records er á Rauðarár- stíg 10, skammt frá Hlemmi. Ingvar Geirsson er eigandi versl- unarinnar. 10 ára afmæli Lucky Records Ingvar Geirsson Aðalleikarar upprunalegu Jurassic Park- kvikmyndarinn- ar, Sam Neill, Laura Dern og Jeff Goldblum, munu öll leika í nýjustu mynd- inni um júra- garðinn, Jurassic World 3, sem ráðgert er að komi út árið 2021. Frá því fyrsta myndin kom út árið 1993 og varð söluhæsta mynd sögunnar hafa þremenning- arnir ekki komið saman fram á hvíta tjaldinu þó að öll hafi þau komið fram í framhaldsmyndunum um garðinn í sitthvoru lagi. Þau munu hitta fyrir aðalleikara fyrstu tveggja kvikmyndanna um júraheiminn, Jurassic World, þau Chris Pratt og Bryce Dallas How- ard. Þær myndir komu út árin 2015 og 2018 og nutu mikilla vinsælda. Síðan fréttir bárust af endurkomu þremenninganna hefur fjöldi net- verja lýst yfir ánægju sinni, þeirra á meðal bandaríska leikkonan Reese Witherspoon. Þau upprunalegu sameinast á ný Jeff Goldblum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.