Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.09.2019, Blaðsíða 40
Ljósaverk listakonunnar Hrundar Atladóttur mun taka yfir hjúp Hörpu í kvöld. Með listaverkinu er botninn sleginn í röð viðburða sem haldnir hafa verið í tengslum við Alþjóðlega loftlagsverkfallið sem staðið hefur yfir síðustu vik- una. Haldin verður samkoma á Ský Restaurant & Bar frá hálftíu til miðnættis að þessu tilefni þar sem gestir geta notið verksins. Harpa tekin yfir FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 270. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Breiðablik verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knatt- spyrnu kvenna á mánudaginn. Blikarnir slógu tékknesku meist- arana í Sparta Prag út í 32-liða úr- slitunum í Prag gær. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði eina mark leiksins og Breiðablik vann einvígið samanlagt 4:2. »33 Glæsilegur árangur hjá Blikakonum ÍÞRÓTTIR MENNING Í dag klukkan 16 verður opnuð sam- sýning þeirra Karoline Sætre og Rannveigar Jónsdóttur er kallast OBSERVE ABSORB í Galleríi út- hverfu / Outvert Art Space á Ísa- firði. Í fréttatilkynningu segir að fortíðarþráin komi fram í verkum listakvennanna á sýn- ingunni og þá sem drifkraftur til að uppgötva eitthvað nýtt frekar en erf- ið byrði. Þær Rannveig og Kar- oline kynntust þegar þær voru við nám í Listahá- skólanum í Malmö og unnu þar í borg að sýningu saman árið 2018. Fortíðarþráin sem drif- kraftur til að uppgötva Pepsi-deildinni. „Ég óska KR-ingum til hamingju með titilinn. Grindvík- ingar eru sérlega vinalegir og þegar ég er hjá þeim bjóða þeir mér alltaf í mat með liðinu eftir leik,“ segir hann hróðugur. „Mér þykir leiðinlegt að liðið hafi fallið en vona að það nái í stig á móti FH svo að Stjarnan eigi möguleika á Evrópusæti.“ Dirk bæt- ir við að hann fylgist grannt með landsliðinu. „Hápunkturinn var að vera á Laugardalsvellinum þegar Ís- land vann Króatíu 1:0 11. júní 2017, og þegar dómarinn flautaði leikinn af og allir áhorfendur sungu „Ísland er land þitt“ er ógleymanleg upp- lifun. Sigurinn var grunnurinn að þátttöku í lokakeppninni í Rússlandi sumarið eftir.“ Dirk hefur kynnt sér sögu ís- lenskrar knattspyrnu og áréttar þakklæti til starfsfólks KSÍ í því sambandi. Hann segir ekki skipta máli hvort hann horfi á leik í efstu eða neðstu deild enda sé það and- rúmsloftið sem heilli hann. Það sé miklu vinalegra en annars staðar í Evrópu og ekki þurfi að óttast stuðningsmenn aðkomuliðsins. „Lögreglan sést ekki á leikjum og ég kann vel að meta það,“ segir hann. Eins kemur honum á óvart að sjá fólk sitja í bílum á leikjum úti á landi og fagna marki með því að liggja á flautunni. „Ég get ekki hugsað mér að sitja í bíl og horfa á leik. Jafnvel í roki og rigningu vil ég fylgjast með úr stæði eða stúku.“ Hásteinsvöllur í Vestmanna- eyjum, Vilhjálmsvöllur á Egils- stöðum, Skallagrímsvöllur í Borgar- nesi og Grýluvöllur í Hveragerði hafa fallið í kramið hjá Dirk. „Þessir og fleiri vellir falla vel inn í um- hverfið, eru svo náttúrulegir,“ segir hann. Dirk reynir að vera á Íslandi í tvær vikur á hverju sumri. „Ég hef komið árlega frá 2011 en þetta er alltaf spurning um kostnað,“ segir hann. „Ísland er dýrt land, en ég á eftir að sjá fleiri lið á fleiri völlum og draumurinn er að ná því að sjá opin- bera leiki á 100 völlum.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þýski íþróttafréttamaðurinn Dirk Harten frá Rostock hefur komið ár- lega í frí til Íslands síðan 2011 og notað tækifærið til þess að skoða fót- boltavelli og fara á opinbera leiki. Hann hefur tekið myndir af yfir um 250 völlum og séð opinbera leiki á 86 völlum til þessa. „Fyrsti leikurinn var 4:1 sigur Stjörnunnar á Fylki í Pepsi-deildinni 6. júlí 2011,“ segir Dirk og bætir við að daginn eftir hafi fjölskyldan, eig- inkonan Elke og Hans, sonur þeirra, séð KR vinna ÍF Fuglafirði 5:1 í Evrópukeppni. „Við kynntumst Garðari Jóhannssyni þegar hann lék með Hansa Rostock, og þar sem hann spilaði með Stjörnunni og áður með KR byrjuðum við á Stjörnuvelli og fórum svo á KR-völlinn.“ Hann bætir við að þriðja daginn hafi þau séð Víking Ólafsvík vinna BÍ/ Bolungarvík 4:1 í 1. deild. „And- rúmsloftið í þessum leikjum var allt annað en við áttum að venjast og ég féll fyrir íslenskum fótbolta á þess- um fyrstu þremur dögum.“ Treystir á Grindavík Fjölskyldan hefur farið um allt land, skoðað áhugaverða staði á dag- inn og farið á fótboltaleiki á kvöldin. Dirk segist hafa kynnst mörgum í knattspyrnuhreyfingunni og nefnir sérstaklega Þóri Hákonarson, fyrr- verandi framkvæmdastjóra KSÍ og nú hjá Þrótti, Viðar Halldórsson, formann FH, Magnús Þór Jónsson, skólastjóra Seljaskóla, Victor Inga Olsen, rekstrarstjóra Stjörnunnar, Sveinbjörn Þorsteinsson, verkefna- stjóra KR, og Óskar Örn Hauksson, fyrirliða KR. „Starfsfólk KSÍ hefur líka alla tíð verið mér mjög innan handar, sérstaklega Þorvaldur Ingi- mundarson og Birkir Sveinsson mótastjóri og ekki síst Ragnheiður Elíasdóttir.“ Stjarnan og KR eru í sérstöku uppáhaldi hjá Dirk og hefur hann farið á Evrópuleiki með þeim heima og erlendis. Hann segist líka hafa sterkar taugar til Grindavíkur og þykja leitt að liðið hafi fallið úr Hefur séð leiki á 86 íslenskum völlum  Andrúmsloftið mun vinalegra en annars staðar í Evrópu Eskifjörður Þýski blaðamaðurinn Dirk Harten á Eskjuvelli. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 39.900 ALLY HÆGINDASTÓLL með dökkbláu velúr áklæði og fótum úr gúmmívið. Ný t t N ý t t 15.995 INDUSTRY LOFTLJÓS með möttum gulum málmskerm. Ø42,5 x H45 cm. Ný t t VICA JÁRNBOX Blátt. 20x10x20 cm. 1.995 kr. Grænt. 29x10x13 cm. 2.495 kr. Grátt. 40x18x15 cm. 3.495 kr. Nú127.920 WESTON SÓFI 2ja sæta, leðurlíki. L164 cm. 159.900 kr. Nú263.920WESTON HORNSÓFIleðurlíki. L235xD285 cm.329.900 kr. SEPTEMBER TILBOÐ WWW.ILVA.IS/TILBOD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.