Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 5
VIRK
Halldóra Friðjónsdóttir formaður stjórnar VIRK
en starfsmenn á almennum markaði en þar
eru greiðslur í sjúkrasjóði aftur á móti hærri.
Launagreiðslur og sjúkradagpeningar tryggja
fjárhagslegt öryggi en áhyggjur af framfærslu
er streituvaldur sem getur dregið úr árangri
af starfsendurhæfingu. Miklu skiptir að
stjórnendur fylgist vel með fjarvistum vegna
veikinda og hvetji starfsmenn til að leita sér
strax viðeigandi aðstoðar því rannsóknir
sýna að snemmbært inngrip eykur líkur á
því að starfsendurhæfing skili tilætluðum
árangri.
Stigvaxandi endurkoma
til vinnu
Annað atriði sem þyrfti að fjalla um í kjara-
samningum eru svokölluð hlutaveikindi
eða endurkoma til vinnu í skertu starfs-
hlutfalli. Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri
þróunar atvinnutengingar hjá Virk, fjallaði
um ávinning atvinnulífsins af stigvaxandi
endurkomu til vinnu í ársriti VIRK 2017.
Þar bendir hún á hækkandi meðalaldur
þjóðarinnar og þar með vinnuaflsins og þá
staðreynd að heilbrigðisvandamál tengd
krónískum sjúkdómum muni í framtíðinni
verða æ algengari orsök fjarveru frá vinnu.
Þessar breytingar kalli á nýja nálgun
varðandi forvarnir auk þess sem stjórnendur
fyrirtækja og stofnana þurfi að finna leiðir til
að gera starfsmönnum með skerta starfsgetu
kleift að vinna lengur.
En stigvaxandi endurkoma til vinnu á ekki
bara við um þá sem eldri eru heldur alla
þá sem snúa aftur til vinnu eftir langtíma
veikindi. Í grein sinni nefnir Jónína meðal
annars þýskar rannsóknir sem virðast styðja
þá kenningu að stigvaxandi endurkoma til
vinnu hafi jákvæð áhrif og stuðli að því að
starfsmenn nái sér að fullu. Í Þýskalandi
hafa starfsmenn, að læknisráði, haft
möguleika á því að snúa aftur til vinnu í
skertu starfshlutfalli en fá bætur í formi
sjúkradagpeninga til að vega upp á móti
tekjuskerðingunni. Samkvæmt rannsókn
á rúmlega 28 þúsund einstaklingum
sem höfðu verið fjarverandi frá vinnu
vegna veikinda í meira en 45 daga flýtti
stigvaxandi endurkoma fyrir fullri þátttöku á
vinnumarkaði í samanburði við þá sem ekki
fóru í gegn um slíkt ferli. Norsk rannsókn
á gögnum frá sjúkratryggingakerfinu þar
í landi leiddi til svipaðrar niðurstöðu. Þeir
starfsmenn sem voru með vottorð um
hlutaveikindi á móti skertu starfshlutfalli
voru með styttri veikindafjarveru og hærri
tíðni endurkomu til vinnu en þeir sem tóku
hefðbundið veikindaleyfi.
Endurskoða þarf umgjörð
veikindaréttarins
Í kjarasamningum ríkis og sveitarfélaga
er nú þegar ákvæði sem heimilar skert
starfshlutfall í kjölfar óvinnufærni vegna
veikinda eða slyss. Þar er þó tekið fram að
þessi heimild sé háð leyfi forstöðumanns og
því er ekki um ótvíræðan rétt starfsmanna
að ræða. Það getur verið dýrt fyrir litlar
stofnanir að leyfa endurkomu í skert
starfshlutfall. Þá þarf stofnunin í raun að
greiða viðkomandi einstaklingi full laun auk
þess að greiða laun annars starfsmanns
sem sinnir þeim verkefnum sem ekki
rúmast innan starfshlutfalls þess sem er að
koma úr veikindaleyfi. Sambærilegt ákvæði
er ekki í kjarasamningum á almennum
markaði og ljóst að sá kostnaður sem
hlýst af langtímaveikindum og stigvaxandi
endurkomu getur reynst litlum og
meðalstórum fyrirtækjum mjög þungur í
skauti.
Árangur af starfsemi VIRK gæti orðið
enn betri ef hlutaveikindi eða stigvaxandi
endurkoma til vinnu væri reglan en ekki
undantekningin. Til að svo megi verða þarf
að endurskoða umgjörð veikindaréttarins
og huga þá sérstaklega að því hvort væri
heppilegra að koma á laggirnar sérstökum
sjóði sem greiddi laun þeirra sem eru lengi
frá vinnu vegna veikinda og slysa. Slíkur
sjóður gæti sömuleiðis greitt þau laun sem
upp á vantar þegar um hlutaveikindi er að
ræða og auðveldað þar með stofnunum og
fyrirtækjum að taka við starfsfólki með skerta
starfsgetu.
átt þátt í því en ekki síður gott orðspor.
Fjöldi einstaklinga hefur stigið fram og
þakkað VIRK endurkomu á vinnumarkað
og auðvitað er vitnisburður um gagnsemi
starfsendurhæfingar besta auglýsingin.
Snemmbært inngrip
mikilvægt
Ein forsenda góðs árangurs í starfsendur-
hæfingu er snemmbært inngrip en með
því er átt við að starfsendurhæfing hefjist
sem fyrst. Í kjarasamningum er samið um
lengd veikindaréttar, þ.e. hversu lengi
starfsmenn eiga rétt á launagreiðslum
séu þeir frá vinnu vegna veikinda.
Opinberir starfsmenn hafa samið um
lengri veikindarétt við sína viðsemjendur
Árangur
af starfsemi
VIRK gæti orðið enn
betri ef hlutaveikindi
eða stigvaxandi
endurkoma til vinnu
væri reglan en ekki
undantekningin.“
Einstaklingum í þjónustu VIRK fjölgar með
hverju árinu. Sem betur fer er það ekki
bara vegna þess að veikindi hafa aukist
heldur líka vegna þess að nú eru langflestir
landsmenn orðnir meðvitaðir um tilvist
VIRK. Kynningarherferðir hafa auðvitað
5virk.is