Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 51
VIÐTAL
þeim megin í líkamanum sem höggið
lenti á. Ég var, þegar slysið varð, bílstjóri í
Innkaupadeild hjá VHE í Hafnarfirði. Menn
þar í fyrirtækinu vildu allt fyrir mig gera og
halda mér áfram í starfi. Ég fór í sjúkraþjálfun
og reyndi það sem ég gat til þess að verða
vinnufær. En það var langur vegur frá að ég
gæti keyrt eða borið vörur. Konan mín, hún
Randi, ók mér í sjúkraþjálfun og annað sem
ég þurfti að fara fyrstu þrjá mánuðina eftir
slysið.“ Heiðar Már lítur til konu sinnar sem
situr í sófa við glugga og kinkar kolli.
Giftu sig skömmu eftir slysið
„Reyndar vorum við fyrir nokkuð löngu búin
að ákveða og undirbúa brúðkaup okkar
þetta sumar eftir fjórtán ára sambúð,“ segir
Heiðar Már. Randi brosir til hans.
Gekk það eftir?
„Já við létum það ganga upp. Randi er
færeysk og fólkið hennar var búið að panta
hér hótelherbergi. Við giftum okkur því á
tilsettum tíma, þann 12. ágúst 2017. Ég
var undir áhrifum sterkra verkjalyfja og
dálítið ringlaður. Ég tók til dæmis blómvendi
brúðarmeyjanna og setti þá alla upp á
altarið í kirkjunni. Þegar þær komu voru
engin blóm. Þær gengu því á eftir okkur
inn kirkjugólfið án blómanna en sáu svo
alla vendina uppi á altarinu. Svona var ég
illa kominn og ruglaður,“ segir Heiðar Már
og hlær. Randi stendur upp, sýnir mér
brúðargjafir, myndir af börnum þeirra hjóna
og gefur mér kaffibolla. Síðan sest hún og
samtal okkar Heiðars heldur áfram.
Hvenær kom VIRK til sögunnar?
„Ekki fyrr en liðið var hátt í ár frá slysinu.
Ég var þá búinn að vera hjá sjúkraþálfara
en hafði lítið lagast. Var á hinn bóginn
orðinn „sérfræðingur í Netflix“, sat löngum
stundum heima við sjónvarpið. Ég reyndi
að vísu að fara aftur til vinnu nokkrum
mánuðum eftir slysið, starfinu hafði verið
haldið opnu fyrir mig – en það gekk ekki.
Ég versnaði bara. Ég var orðinn mjög
vondaufur þegar ég fór til sérfræðings sem
gerði aðgerð á öxlinni. Eftir það fór ég loks
að finna svolítinn bata.
Þetta ástand var erfitt fyrir mig. Ég hafði
fram að slysinu verið hress og virkur. Ég fór
ungur að vinna fyrir mér og vildi drífa mig
áfram. Sem dæmi get ég sat þér að þegar
ég fermdist þá borðaði ég með gestunum
í fermingarveislunni en lét mig svo hverfa,
fór að snúa saltfiski í Kópavogi. Mamma
var ekki ánægð með þetta,“ segir Heiðar
og hlær.
HEIÐAR MÁR GUÐNASON sundlaugarvörður
Ískyggilega óviss framtíðarsýn
Hvernig var andleg líðan þín eftir slysið?
„Andlega hliðin fór mjög hratt niður á við. Ég
hafði fram að þessu varla orðið veikur um
dagana, orðinn fjörutíu og sjö ára. Ég átti
því mjög erfitt með að sætta mig við að vera
heilsulaus og kippt úr vinnu. Framtíðarsýn
mín var líka ískyggilega óviss og fjármálin
vitanlega einnig.
Fyrst hafði ég laun í fimm mánuði. Síðan
tók tryggingafélagið við og borgaði í nokkurn
tíma. Þegar því lauk sneri ég mér til Eflingar
og fékk laun úr sjúkrasjóði þaðan. Mér
leist ekki á hvernig aðstæður mínar voru
að þróast. Ég hafði heyrt ávæning af tali
um VIRK frá skyldfólki. Ég vildi alls ekki
enda á örorku heldur reyna að komast
út á vinnumarkaðinn aftur. Ég fór því til
heimilislæknis míns. Hann sótti um fyrir mig
hjá VIRK og einnig um endurhæfingarlífeyri.“
Fannst þér þetta erfitt skref?
„Nei, ég hafði enga fordóma gagnvart slíkri
endurhæfingu, þvert á móti. Nærri ár var
liðið frá slysinu og ég þurfti að bíða aðeins
eftir samþykki fyrir þjónustu. Undir jól 2017
hitti ég fyrst ráðgjafa VIRK hjá Eflingu. Ég
fór heldur hikandi á fund ráðgjafans, vildi
prófa þetta þótt ég væri orðinn þunglyndur
og dapur.
Ég hitti svo ráðgjafann minn, sem er kona.
Hún var sérlega hress og hrein og bein í
samskiptum. Viðmót hennar vakti hjá mér
von um betri tíð og veitti ekki af. Þegar þarna
var komið sögu var ég orðinn næsta viss um
að mín biði ekkert nema basl í sárri fátækt.“
Ákvað að treysta öðrum
Hver voru úrræðin sem þú fórst í?
„Í fyrsta tímanum hjá ráðgjafanum fórum
við yfir málið. Í næsta tíma átti ég að hafa
velt fyrir mér framhaldinu. Ég var þá enn í
meðferð hjá ágætum sjúkraþjálfara og vildi
vera þar áfram samhliða öðrum úrræðum.
Mér þótti ákaflega gott að vita til þess að
úrræðin sem ég færi í myndi VIRK borga
fyrir mig. Ég hefði alls ekki haft efni á að
nýta mér þau ella. Ráðgjafinn sagði mér
það í fréttum að ég yrði að mæta í öll úrræði
áttatíu prósent – að mig minnir. Ella yrði ég
að borga þau sjálfur. Ég hugsaði með mér:
„Eins gott að mæta maður!“
Í öðrum tímanum settum ég og ráðgjafinn
upp litla beinagrind að meðferðaráætlun.
Viðræðurnar við ráðgjafann hrintu af stað
ýmsum hugmyndum. Ég ákvað er frá leið að
sleppa tökunum og leyfa fólkinu sem vildi
hjálpa mér að gera það. Ég hafði fram að því
verið mjög sjálfstæður í öllum ákvörðunum,
kappsamur og vanastur því að hugsa fyrir
mig sjálfur. Nú ákvað ég að sleppa, treysta
öðrum til að vinna sína vinnu í mína þágu.
Þetta fannst ráðgjafanum alveg stórkostlegt
hjá mér.“
Og hvernig gekk?
„Ég fékk tíma í Heilsuborg. Ég átti kort hjá
World Class en var á þessum tímapunkti
orðinn nánast „áskrifandi“, mætti þar mjög
illa. Fór þó stundum í klefa þar sem voru
infrarauð ljós. Ég fann að þau gerðu mér
gott. Í Heilsuborg komst ég í samband við
sjúkraþjálfara sem var mjög góður. Sá sem
ég hafði verið hjá áður var góður líka. Er frá
leið fannst mér betra að vera á sama stað
svo ég skipti alveg yfir í Heilsuborg. Farið var
mjög vel yfir alla tækjanotkun, hvernig ég ætti
að nota hvert og eitt tæki svo það hjálpaði
mér. Ég mætti þrisvar í viku í Heilsuborg
og svo fékk ég tíma hjá sálfræðingi. Mér
fannst það í upphafi hálfgerður óþarfi,
hélt að ég þyrfti ekki á slíku að halda.
Samhliða sálfræðitímunum fór ég í hugræna
atferlismeðferð. Ég hafði harla litla trú á því í
upphafi. Þarna voru eldri konur, ég sá ekki
hvaða erindi ég ætti í þann hóp. Ég mætti
þó eins og fyrir mig var lagt. Hefði ég átt að
stjórna mætingu þar sjálfur hefði ég líklega
sjaldan mætt.“
Hvernig reyndust þér þessi andlegu
úrræði?
„Ég komst að því strax í fyrsta tíma að ég
væri haldinn miklum ranghugmyndum um
sjálfan mig og það gerðu líka hinir sem með
Mér leist ekki
á hvernig
aðstæður mínar voru
að þróast. Ég hafði
heyrt ávæning af tali
um VIRK frá skyldfólki.
Ég vildi alls ekki
enda á örorku heldur
reyna að komast út á
vinnumarkaðinn aftur.“
51virk.is