Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 68
ÞJÓNUSTUAÐILAR
Yfirsýn þjónustu og þjónustuframboðs
VIRK STEIG STÓR
SKREF INN Í FRAM-
TÍÐINA Í MAÍ 2018
ÞEGAR TEKIÐ VAR
Í NOTKUN NÝTT
UPPLÝSINGAKERFI
SEM ÆTLAÐ ER
AÐ AUKA GÆÐI OG
SKILVIRNI ÞJÓN-
USTU Í STARFS-
ENDURHÆFINGU.
ÁSTA SÖLVADÓTTIR verkefnastjóri hjá VIRK
M
ikill ávinningur felst í innleið-
ingu upplýsingakerfisins fyrir
þjónustuaðila VIRK. Fyrst ber
að nefna öruggari samskipti milli
þjónustuaðila, einstaklinga í þjónustu, ráð-
gjafa og sérfræðinga VIRK. Einnig verða
þjónustuaðilar hluti af teymi einstaklings og
fá betri yfirsýn yfir eigið þjónustuframboð
og pantanir í vinnslu.
Hver þjónustuaðili hefur sitt svæði eða
„Mínar síður“ í upplýsingakerfinu og sendir
inn þjónustuumsóknir með rafrænum hætti
til VIRK. Með markvissari innkaupum á
þjónustu og faglegri endurgjöf þjónustuaðila
til ráðgjafa og sérfræðinga VIRK standa vonir
til þess að auka gæði og skilvirkni í starfs-
endurhæfingu á vegum VIRK. Innleiðing
þrepaskiptingar á þjónustu hefur dregist
en stefnt er að því að hún byrji af fullum
krafti haustið 2019. Með henni er ætlunin
að koma enn betur til móts við þarfir
einstaklinga í þjónustu VIRK.
Þjónustuaðilar eru ábyrgðaraðilar fyrir
vinnslu persónuupplýsinga í skilningi nýrra
laga, nr. 90/2018, um persónuvernd og
vinnslu persónuupplýsinga sem tóku gildi á
síðasta ári. Markmið laganna er að stuðla
að því að með persónuupplýsingar sé farið í
samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur
um persónuvernd og friðhelgi einkalífs
og að tryggja áreiðanleika og gæði slíkra
upplýsinga og frjálst flæði þeirra á innri
markaði Evrópska efnahagssvæðisins.
Í upplýsingakerfinu er gerð krafa um rafræn
skilríki hjá öllum notendum. Með því móti
er tryggt að aðeins þeir sem nauðsynlega
þurfa að hafa aðgang að upplýsingum um
einstaklinga í þjónustu VIRK hafi slíkan
aðgang. Örugg samskipti innan kerfisins
auðvelda þjónustuaðilum, ráðgjöfum og
sérfræðingum VIRK samvinnu sín á milli.
Betri yfirsýn næst yfir mætingar, framgang
og endurgjöf í hverri þjónustupöntun fyrir
sig og koma samskipti innan kerfis alfarið í
stað tölvupóstsamskipta. Loks ber að nefna
að öll möt sérfræðinga og greinargerðir
fagaðila eru unnar með rafrænum hætti í
upplýsingakerfinu.
Fjölbreytt flóra fagaðila meðal
þjónustuaðila
VIRK átti sem fyrr í góðu samstarfi við fjölda
þjónustuaðila um land allt á árinu 2018.
Kaup á þjónustu fagaðila jókst lítillega
á árinu og námu þau rúmlega 1.304
milljónum króna eins og sjá má á mynd 1.
Lítil hækkun milli ára tengist að stærstum
hluta innleiðingu á nýju upplýsingakerfi
68 virk.is