Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 69
VIRK
VIRK. Í árslok voru flestir þjónustuaðilar
orðnir virkir á nýjan leik og því hægt að panta
þjónustu á ný.
Á mynd 2 má sjá skiptingu útgjalda milli
mismunandi tegunda þjónustu á árinu
2018. Kostnaður vegna sjúkraþjálfunar
dróst saman um tvö prósentustig á árinu
vegna fækkunar sjúkraþjálfara meðal þjón-
ustuaðila. Lítilsháttar aukning er vegna
atvinnutengdrar þjónustu og sálfræðiþjón-
ustu á árinu en annars er skipting útgjalda
með svipuðum hætti og árið áður.
Þjónustuaðilar VIRK
Ríflega 100 sálfræðingar störfuðu með VIRK
á árinu 2018 og veita þeir einstaklingum
með geðrænan og streitutengdan vanda
einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir sem
byggja á gagnreyndum aðferðum. Búið er
að þrepaskipta þjónustu sálfræðinga eftir
eðli vanda einstaklinga og stuðst er við
klínískar leiðbeiningar í meðferð.
Með VIRK starfa rúmlega 100 sjúkraþjálf-
arar sem veita fjölbreytta einstaklings-
og hópþjónustu fyrir einstaklinga með
stoðkerfisraskanir. Þeir styðja auk þess ein-
staklinga sem vinna að því að gera hreyfingu
sem hluta af lífsstíl sínum. Umtalsverð
fækkun varð á meðal sjúkraþjálfara frá árinu
2017 þegar um 200 sjúkraþjálfarar störfuðu
fyrir VIRK.
Miklar annir eru um þessar mundir hjá
sjúkraþjálfurum almennt og langir biðlistar
hafa myndast hjá stéttinni. Vonir standa til
að sjúkraþjálfurum fjölgi á nýjan leik meðal
þjónustuaðila á næsta ári, þar sem umsýsla
vegna þjónustupantana er mun skilvirkari í
nýja upplýsingakerfinu og þörf einstaklinga
í þjónustu VIRK hefur ekki dregist saman.
Um 100 þjónustuaðilar um land allt bjóða
upp á ýmsa heilsueflandi þjónustu og má
þar nefna líkamsrækt með stuðningi íþrótta-
fræðings eða þjálfara, vatnsleikfimi og jóga.
Fjölmargir fræðsluaðilar og símenntunar-
miðstöðvar um allt land veita ráðgjöf og
fræðslu sem auka möguleika einstaklinga á
vinnumarkaði. Þjónustan felur meðal annars
í sér áhugasviðsgreiningar, hæfnigreiningar,
raunfærnimat, nám á vottuðum námsleiðum
auk fjölmargra styttri námsleiða og námskeiða
sem auka möguleika á vinnumarkaði. Fjöldi
þjónustuaðila veitir atvinnutengda þjónustu
og má þar helst nefna vinnuprófanir,
úttekt og ráðgjöf og stuðning á vinnustað
við endurkomu til vinnu sem og úrræði
sem miða að því að búa einstaklinga
undir atvinnuleit. Að lokum veita fjölmargir
fagaðilar ýmsa ráðgjöf og meðferð. Hópur
útlendinga leitar einnig til VIRK og er veittur
ýmiss sértækur stuðningur fyrir þennan hóp
t.d. túlkaþjónusta og íslenskunámskeið.
VIRK hefur átt í farsælu samstarfi við 9
starfsendurhæfingarstöðvar um allt land á
undanförnum árum. Samstarfssamningar
við starfsendurhæfingarstöðvar er liður
í því að tryggja að til staðar sé fagleg
þekking og reynsla á sviði starfsendur-
hæfingar um allt land. Samstarf VIRK
og starfsendurhæfingarstöðva byggist
m.a. á reglulegum þverfaglegum rýni-
fundum þar sem farið er markvisst yfir
mál einstaklinga sem eru í þjónustu starfs-
endurhæfingarstöðva á vegum VIRK.
Þjónustuteymi VIRK
Í október fjölgaði um tvo í þjónustuteymi
VIRK en hlutverk teymisins er að hafa
umsjón með þjónustu sem VIRK kaupir,
sinna eftirliti með þjónustukaupum og
tryggja upplýsingastreymi til þjónustuaðila,
ráðgjafa og sérfræðinga VIRK. Í teyminu
eru Ásta Sölvadóttir verkefnastjóri, Óskar
Jón Helgason sérfræðingur og Anna
Magnea Bergmann ritari. Óskar Jón gekk
til liðs við VIRK á haustmánuðum en hann
hefur víðtæka reynslu sem þjónustuaðili og
starfaði áður hjá Heilsuborg.
Sálfræðiþjónusta
Sjúkraþjálfun
Sérhæfð starfsendurhæfingar-
úrræði
Nám og námskeið
Heilsuefling / líkamsrækt
Atvinnutengd úrræði
Markþjálfun
Önnur úrræði
Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum
um allt land á árunum 2010-2018
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Útgjöld á ári
í millj. kr.
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Mynd 1
Mynd 2
Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2018
vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum
3%
3%
3%
20%
62%
7%
1% 1%
69virk.is