Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 69

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 69
 VIRK VIRK. Í árslok voru flestir þjónustuaðilar orðnir virkir á nýjan leik og því hægt að panta þjónustu á ný. Á mynd 2 má sjá skiptingu útgjalda milli mismunandi tegunda þjónustu á árinu 2018. Kostnaður vegna sjúkraþjálfunar dróst saman um tvö prósentustig á árinu vegna fækkunar sjúkraþjálfara meðal þjón- ustuaðila. Lítilsháttar aukning er vegna atvinnutengdrar þjónustu og sálfræðiþjón- ustu á árinu en annars er skipting útgjalda með svipuðum hætti og árið áður. Þjónustuaðilar VIRK Ríflega 100 sálfræðingar störfuðu með VIRK á árinu 2018 og veita þeir einstaklingum með geðrænan og streitutengdan vanda einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir sem byggja á gagnreyndum aðferðum. Búið er að þrepaskipta þjónustu sálfræðinga eftir eðli vanda einstaklinga og stuðst er við klínískar leiðbeiningar í meðferð. Með VIRK starfa rúmlega 100 sjúkraþjálf- arar sem veita fjölbreytta einstaklings- og hópþjónustu fyrir einstaklinga með stoðkerfisraskanir. Þeir styðja auk þess ein- staklinga sem vinna að því að gera hreyfingu sem hluta af lífsstíl sínum. Umtalsverð fækkun varð á meðal sjúkraþjálfara frá árinu 2017 þegar um 200 sjúkraþjálfarar störfuðu fyrir VIRK. Miklar annir eru um þessar mundir hjá sjúkraþjálfurum almennt og langir biðlistar hafa myndast hjá stéttinni. Vonir standa til að sjúkraþjálfurum fjölgi á nýjan leik meðal þjónustuaðila á næsta ári, þar sem umsýsla vegna þjónustupantana er mun skilvirkari í nýja upplýsingakerfinu og þörf einstaklinga í þjónustu VIRK hefur ekki dregist saman. Um 100 þjónustuaðilar um land allt bjóða upp á ýmsa heilsueflandi þjónustu og má þar nefna líkamsrækt með stuðningi íþrótta- fræðings eða þjálfara, vatnsleikfimi og jóga. Fjölmargir fræðsluaðilar og símenntunar- miðstöðvar um allt land veita ráðgjöf og fræðslu sem auka möguleika einstaklinga á vinnumarkaði. Þjónustan felur meðal annars í sér áhugasviðsgreiningar, hæfnigreiningar, raunfærnimat, nám á vottuðum námsleiðum auk fjölmargra styttri námsleiða og námskeiða sem auka möguleika á vinnumarkaði. Fjöldi þjónustuaðila veitir atvinnutengda þjónustu og má þar helst nefna vinnuprófanir, úttekt og ráðgjöf og stuðning á vinnustað við endurkomu til vinnu sem og úrræði sem miða að því að búa einstaklinga undir atvinnuleit. Að lokum veita fjölmargir fagaðilar ýmsa ráðgjöf og meðferð. Hópur útlendinga leitar einnig til VIRK og er veittur ýmiss sértækur stuðningur fyrir þennan hóp t.d. túlkaþjónusta og íslenskunámskeið. VIRK hefur átt í farsælu samstarfi við 9 starfsendurhæfingarstöðvar um allt land á undanförnum árum. Samstarfssamningar við starfsendurhæfingarstöðvar er liður í því að tryggja að til staðar sé fagleg þekking og reynsla á sviði starfsendur- hæfingar um allt land. Samstarf VIRK og starfsendurhæfingarstöðva byggist m.a. á reglulegum þverfaglegum rýni- fundum þar sem farið er markvisst yfir mál einstaklinga sem eru í þjónustu starfs- endurhæfingarstöðva á vegum VIRK. Þjónustuteymi VIRK Í október fjölgaði um tvo í þjónustuteymi VIRK en hlutverk teymisins er að hafa umsjón með þjónustu sem VIRK kaupir, sinna eftirliti með þjónustukaupum og tryggja upplýsingastreymi til þjónustuaðila, ráðgjafa og sérfræðinga VIRK. Í teyminu eru Ásta Sölvadóttir verkefnastjóri, Óskar Jón Helgason sérfræðingur og Anna Magnea Bergmann ritari. Óskar Jón gekk til liðs við VIRK á haustmánuðum en hann hefur víðtæka reynslu sem þjónustuaðili og starfaði áður hjá Heilsuborg. Sálfræðiþjónusta Sjúkraþjálfun Sérhæfð starfsendurhæfingar- úrræði Nám og námskeið Heilsuefling / líkamsrækt Atvinnutengd úrræði Markþjálfun Önnur úrræði Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum um allt land á árunum 2010-2018 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Útgjöld á ári í millj. kr. 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Mynd 1 Mynd 2 Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2018 vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum 3% 3% 3% 20% 62% 7% 1% 1% 69virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.