Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 19
VIRK
tryggðarskalans en fylgni í þessari fyrirlögn
gefur 89 stig af 125 mögulegum2. Góður
árangur telst vera þegar þjónustan nær 100
stigum og tekur oftast nokkurn tíma að ná
þeim árangri. Fyrirmyndar árangur telst
síðan hafa náðst við 115 stig.
Viðmið fyrir atvinnulífstengla
Þegar litið er yfir niðurstöður má sjá að
mjög vel hefur tekist til við innleiðingu á
viðmiðum fyrir atvinnulífstengla og fæst fullt
hús fyrir tvö af þremur viðmiðum þar (sjá
mynd 1) eða fyrir hámarksfjölda í þjónustu
og verkefni atvinnulífstengla. Til að ná fullu
húsi í þessum flokki þarf hins vegar að bæta
líka að ræða hvernig hægt sé að tryggja að
allir sem þess óska og áhuga hafa á vinnu
eigi greiðan aðgang að IPS. Almennt þarf
svo að standa betur að kynningu á IPS
sem valkosti fyrir þjónustuþega bæði á
Laugarásnum og heilsugæslunni.
Viðmið fyrir þjónustu
Þegar horft er yfir viðmiðin fyrir þjónustu
má sjá að þar liggja tækifæri til að gera
betur á nokkrum sviðum (sjá mynd
3). Framúrskarandi árangur hefur
náðst í viðmiðum fyrir fjölbreytni starfa
og fyrirtækja sem lýsir því vel hvernig
atvinnulífstenglar leggja sig fram um að
leita fjölbreyttra leiða fyrir þátttakendur.
Tækifærin liggja hins vegar í umbótum
á þeim fimm viðmiðum sem skora lægst.
Fyrsta úttekt lofar góðu
Þegar á heildina er litið geta þeir sem að IPS
þjónustunni standa vel við unað. Þeir hafa
nú öll tromp á hendi með þennan ágæta
grunn sem kominn er og þær ábendingar
sem koma úr úttektinni. Það verður því
spennandi að fylgjast með áframhaldandi
uppbyggingu á enn öflugra IPS á Íslandi.
Heimildir
1. Bond GR, Peterson AE, Becker
DA et al. Validation of the Revised
Individual Placement and Support
Fidelity Scale (IPS-25), Psychiatric
Services. 2012.
2. VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður og
Landspítali háskólasjúkrahús. Úttekt.
á IPS þjónustu 2018. 2019 (óútgefið).
Viðmið fyrir atvinnulífstengla IPS
5
4
3
2
1
0
Fjölda þátttakenda á hvern
atvinnulífstengil
Verksvið
atvinnulífstengils
Verkefni
atvinnulífstengils
Mynd 1
skráningu á vinnutíma atvinnulífstengla.
Viðmið fyrir skipulag og
framkvæmd
Þegar horft er yfir viðmið fyrir skipulag og
framkvæmd (sjá mynd 2) fæst einnig full-
nægjandi fylgni fyrir viðmiðin um samstarf
atvinnulífstengla, meðferðaraðila og mála-
stjóra. Þessi niðurstaða er glæsileg og
mikils virði fyrir verkefnið að þessir aðilar
vinni vel saman.
Þegar þau fjögur viðmið eru skoðuð sem
úttektin leiðir í ljós að æskilegt væri að
setja í forgang til að ná enn betri árangri
við skipulag og framkvæmd er gott að hafa
Þegar á
heildina er
litið geta þeir sem
að IPS þjónustunni
standa vel við unað.
Þeir hafa nú öll
tromp á hendi með
þennan ágæta grunn
sem kominn er og
þær ábendingar sem
koma úr úttektinni.“
eftirfarandi í huga. Atvinnulífstenglar þyrftu
að sitja allan fundartíma klínísku teymanna.
Þeim er ætlað samkvæmt aðferðafræðinni
að sitja fundi klínískra teyma til að halda á
lofti þeim möguleika að velja atvinnu sem
úrræði fyrir þá þjónustuþega sem gætu haft
áhuga á að fara að vinna. Þá þarf jafnframt
að huga að því að allir þeir sem koma að
þjónustu við þátttakendur í IPS hafi aðgang
að sömu upplýsingum um hvernig gangi hjá
einstaklingunum þann tíma sem þeir fá IPS
þjónustu. Einnig er mikilvægt að skilgreina
mun betur hlutverk verkefnastjóra en þeim
er ætlað veigamikið hlutverk samkvæmt
aðferðafræðinni. Þá þurfa ábyrgðaraðilar
Ljóst er að bjóða þarf þátttakendum upp
á vandaða ráðgjöf um laun og framfærslu
en slík ráðgjöf þarf að standa öllum til
boða sem taka þátt í IPS. Þá þarf almennt
að bæta skráningu atvinnulífstengla við
undirbúning atvinnuleitar og skráningu á
samskiptum þeirra við atvinnurekendur.
Móta þyrfti stefnu um tímalengd vinnu-
samninga og halda betri skrá yfir þau störf
sem þátttakendur hafa farið að sinna og
þann stuðning sem atvinnulífstenglar og
meðferðaraðilar veita þátttakendum í starfi.
Almennt séð væri aukin skráning til góðs.
Markmið Stig
19virk.is