Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 19

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 19
 VIRK tryggðarskalans en fylgni í þessari fyrirlögn gefur 89 stig af 125 mögulegum2. Góður árangur telst vera þegar þjónustan nær 100 stigum og tekur oftast nokkurn tíma að ná þeim árangri. Fyrirmyndar árangur telst síðan hafa náðst við 115 stig. Viðmið fyrir atvinnulífstengla Þegar litið er yfir niðurstöður má sjá að mjög vel hefur tekist til við innleiðingu á viðmiðum fyrir atvinnulífstengla og fæst fullt hús fyrir tvö af þremur viðmiðum þar (sjá mynd 1) eða fyrir hámarksfjölda í þjónustu og verkefni atvinnulífstengla. Til að ná fullu húsi í þessum flokki þarf hins vegar að bæta líka að ræða hvernig hægt sé að tryggja að allir sem þess óska og áhuga hafa á vinnu eigi greiðan aðgang að IPS. Almennt þarf svo að standa betur að kynningu á IPS sem valkosti fyrir þjónustuþega bæði á Laugarásnum og heilsugæslunni. Viðmið fyrir þjónustu Þegar horft er yfir viðmiðin fyrir þjónustu má sjá að þar liggja tækifæri til að gera betur á nokkrum sviðum (sjá mynd 3). Framúrskarandi árangur hefur náðst í viðmiðum fyrir fjölbreytni starfa og fyrirtækja sem lýsir því vel hvernig atvinnulífstenglar leggja sig fram um að leita fjölbreyttra leiða fyrir þátttakendur. Tækifærin liggja hins vegar í umbótum á þeim fimm viðmiðum sem skora lægst. Fyrsta úttekt lofar góðu Þegar á heildina er litið geta þeir sem að IPS þjónustunni standa vel við unað. Þeir hafa nú öll tromp á hendi með þennan ágæta grunn sem kominn er og þær ábendingar sem koma úr úttektinni. Það verður því spennandi að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu á enn öflugra IPS á Íslandi. Heimildir 1. Bond GR, Peterson AE, Becker DA et al. Validation of the Revised Individual Placement and Support Fidelity Scale (IPS-25), Psychiatric Services. 2012. 2. VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður og Landspítali háskólasjúkrahús. Úttekt. á IPS þjónustu 2018. 2019 (óútgefið). Viðmið fyrir atvinnulífstengla IPS 5 4 3 2 1 0 Fjölda þátttakenda á hvern atvinnulífstengil Verksvið atvinnulífstengils Verkefni atvinnulífstengils Mynd 1 skráningu á vinnutíma atvinnulífstengla. Viðmið fyrir skipulag og framkvæmd Þegar horft er yfir viðmið fyrir skipulag og framkvæmd (sjá mynd 2) fæst einnig full- nægjandi fylgni fyrir viðmiðin um samstarf atvinnulífstengla, meðferðaraðila og mála- stjóra. Þessi niðurstaða er glæsileg og mikils virði fyrir verkefnið að þessir aðilar vinni vel saman. Þegar þau fjögur viðmið eru skoðuð sem úttektin leiðir í ljós að æskilegt væri að setja í forgang til að ná enn betri árangri við skipulag og framkvæmd er gott að hafa Þegar á heildina er litið geta þeir sem að IPS þjónustunni standa vel við unað. Þeir hafa nú öll tromp á hendi með þennan ágæta grunn sem kominn er og þær ábendingar sem koma úr úttektinni.“ eftirfarandi í huga. Atvinnulífstenglar þyrftu að sitja allan fundartíma klínísku teymanna. Þeim er ætlað samkvæmt aðferðafræðinni að sitja fundi klínískra teyma til að halda á lofti þeim möguleika að velja atvinnu sem úrræði fyrir þá þjónustuþega sem gætu haft áhuga á að fara að vinna. Þá þarf jafnframt að huga að því að allir þeir sem koma að þjónustu við þátttakendur í IPS hafi aðgang að sömu upplýsingum um hvernig gangi hjá einstaklingunum þann tíma sem þeir fá IPS þjónustu. Einnig er mikilvægt að skilgreina mun betur hlutverk verkefnastjóra en þeim er ætlað veigamikið hlutverk samkvæmt aðferðafræðinni. Þá þurfa ábyrgðaraðilar Ljóst er að bjóða þarf þátttakendum upp á vandaða ráðgjöf um laun og framfærslu en slík ráðgjöf þarf að standa öllum til boða sem taka þátt í IPS. Þá þarf almennt að bæta skráningu atvinnulífstengla við undirbúning atvinnuleitar og skráningu á samskiptum þeirra við atvinnurekendur. Móta þyrfti stefnu um tímalengd vinnu- samninga og halda betri skrá yfir þau störf sem þátttakendur hafa farið að sinna og þann stuðning sem atvinnulífstenglar og meðferðaraðilar veita þátttakendum í starfi. Almennt séð væri aukin skráning til góðs. Markmið Stig 19virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.