Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 51

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 51
 VIÐTAL þeim megin í líkamanum sem höggið lenti á. Ég var, þegar slysið varð, bílstjóri í Innkaupadeild hjá VHE í Hafnarfirði. Menn þar í fyrirtækinu vildu allt fyrir mig gera og halda mér áfram í starfi. Ég fór í sjúkraþjálfun og reyndi það sem ég gat til þess að verða vinnufær. En það var langur vegur frá að ég gæti keyrt eða borið vörur. Konan mín, hún Randi, ók mér í sjúkraþjálfun og annað sem ég þurfti að fara fyrstu þrjá mánuðina eftir slysið.“ Heiðar Már lítur til konu sinnar sem situr í sófa við glugga og kinkar kolli. Giftu sig skömmu eftir slysið „Reyndar vorum við fyrir nokkuð löngu búin að ákveða og undirbúa brúðkaup okkar þetta sumar eftir fjórtán ára sambúð,“ segir Heiðar Már. Randi brosir til hans. Gekk það eftir? „Já við létum það ganga upp. Randi er færeysk og fólkið hennar var búið að panta hér hótelherbergi. Við giftum okkur því á tilsettum tíma, þann 12. ágúst 2017. Ég var undir áhrifum sterkra verkjalyfja og dálítið ringlaður. Ég tók til dæmis blómvendi brúðarmeyjanna og setti þá alla upp á altarið í kirkjunni. Þegar þær komu voru engin blóm. Þær gengu því á eftir okkur inn kirkjugólfið án blómanna en sáu svo alla vendina uppi á altarinu. Svona var ég illa kominn og ruglaður,“ segir Heiðar Már og hlær. Randi stendur upp, sýnir mér brúðargjafir, myndir af börnum þeirra hjóna og gefur mér kaffibolla. Síðan sest hún og samtal okkar Heiðars heldur áfram. Hvenær kom VIRK til sögunnar? „Ekki fyrr en liðið var hátt í ár frá slysinu. Ég var þá búinn að vera hjá sjúkraþálfara en hafði lítið lagast. Var á hinn bóginn orðinn „sérfræðingur í Netflix“, sat löngum stundum heima við sjónvarpið. Ég reyndi að vísu að fara aftur til vinnu nokkrum mánuðum eftir slysið, starfinu hafði verið haldið opnu fyrir mig – en það gekk ekki. Ég versnaði bara. Ég var orðinn mjög vondaufur þegar ég fór til sérfræðings sem gerði aðgerð á öxlinni. Eftir það fór ég loks að finna svolítinn bata. Þetta ástand var erfitt fyrir mig. Ég hafði fram að slysinu verið hress og virkur. Ég fór ungur að vinna fyrir mér og vildi drífa mig áfram. Sem dæmi get ég sat þér að þegar ég fermdist þá borðaði ég með gestunum í fermingarveislunni en lét mig svo hverfa, fór að snúa saltfiski í Kópavogi. Mamma var ekki ánægð með þetta,“ segir Heiðar og hlær. HEIÐAR MÁR GUÐNASON sundlaugarvörður Ískyggilega óviss framtíðarsýn Hvernig var andleg líðan þín eftir slysið? „Andlega hliðin fór mjög hratt niður á við. Ég hafði fram að þessu varla orðið veikur um dagana, orðinn fjörutíu og sjö ára. Ég átti því mjög erfitt með að sætta mig við að vera heilsulaus og kippt úr vinnu. Framtíðarsýn mín var líka ískyggilega óviss og fjármálin vitanlega einnig. Fyrst hafði ég laun í fimm mánuði. Síðan tók tryggingafélagið við og borgaði í nokkurn tíma. Þegar því lauk sneri ég mér til Eflingar og fékk laun úr sjúkrasjóði þaðan. Mér leist ekki á hvernig aðstæður mínar voru að þróast. Ég hafði heyrt ávæning af tali um VIRK frá skyldfólki. Ég vildi alls ekki enda á örorku heldur reyna að komast út á vinnumarkaðinn aftur. Ég fór því til heimilislæknis míns. Hann sótti um fyrir mig hjá VIRK og einnig um endurhæfingarlífeyri.“ Fannst þér þetta erfitt skref? „Nei, ég hafði enga fordóma gagnvart slíkri endurhæfingu, þvert á móti. Nærri ár var liðið frá slysinu og ég þurfti að bíða aðeins eftir samþykki fyrir þjónustu. Undir jól 2017 hitti ég fyrst ráðgjafa VIRK hjá Eflingu. Ég fór heldur hikandi á fund ráðgjafans, vildi prófa þetta þótt ég væri orðinn þunglyndur og dapur. Ég hitti svo ráðgjafann minn, sem er kona. Hún var sérlega hress og hrein og bein í samskiptum. Viðmót hennar vakti hjá mér von um betri tíð og veitti ekki af. Þegar þarna var komið sögu var ég orðinn næsta viss um að mín biði ekkert nema basl í sárri fátækt.“ Ákvað að treysta öðrum Hver voru úrræðin sem þú fórst í? „Í fyrsta tímanum hjá ráðgjafanum fórum við yfir málið. Í næsta tíma átti ég að hafa velt fyrir mér framhaldinu. Ég var þá enn í meðferð hjá ágætum sjúkraþjálfara og vildi vera þar áfram samhliða öðrum úrræðum. Mér þótti ákaflega gott að vita til þess að úrræðin sem ég færi í myndi VIRK borga fyrir mig. Ég hefði alls ekki haft efni á að nýta mér þau ella. Ráðgjafinn sagði mér það í fréttum að ég yrði að mæta í öll úrræði áttatíu prósent – að mig minnir. Ella yrði ég að borga þau sjálfur. Ég hugsaði með mér: „Eins gott að mæta maður!“ Í öðrum tímanum settum ég og ráðgjafinn upp litla beinagrind að meðferðaráætlun. Viðræðurnar við ráðgjafann hrintu af stað ýmsum hugmyndum. Ég ákvað er frá leið að sleppa tökunum og leyfa fólkinu sem vildi hjálpa mér að gera það. Ég hafði fram að því verið mjög sjálfstæður í öllum ákvörðunum, kappsamur og vanastur því að hugsa fyrir mig sjálfur. Nú ákvað ég að sleppa, treysta öðrum til að vinna sína vinnu í mína þágu. Þetta fannst ráðgjafanum alveg stórkostlegt hjá mér.“ Og hvernig gekk? „Ég fékk tíma í Heilsuborg. Ég átti kort hjá World Class en var á þessum tímapunkti orðinn nánast „áskrifandi“, mætti þar mjög illa. Fór þó stundum í klefa þar sem voru infrarauð ljós. Ég fann að þau gerðu mér gott. Í Heilsuborg komst ég í samband við sjúkraþjálfara sem var mjög góður. Sá sem ég hafði verið hjá áður var góður líka. Er frá leið fannst mér betra að vera á sama stað svo ég skipti alveg yfir í Heilsuborg. Farið var mjög vel yfir alla tækjanotkun, hvernig ég ætti að nota hvert og eitt tæki svo það hjálpaði mér. Ég mætti þrisvar í viku í Heilsuborg og svo fékk ég tíma hjá sálfræðingi. Mér fannst það í upphafi hálfgerður óþarfi, hélt að ég þyrfti ekki á slíku að halda. Samhliða sálfræðitímunum fór ég í hugræna atferlismeðferð. Ég hafði harla litla trú á því í upphafi. Þarna voru eldri konur, ég sá ekki hvaða erindi ég ætti í þann hóp. Ég mætti þó eins og fyrir mig var lagt. Hefði ég átt að stjórna mætingu þar sjálfur hefði ég líklega sjaldan mætt.“ Hvernig reyndust þér þessi andlegu úrræði? „Ég komst að því strax í fyrsta tíma að ég væri haldinn miklum ranghugmyndum um sjálfan mig og það gerðu líka hinir sem með Mér leist ekki á hvernig aðstæður mínar voru að þróast. Ég hafði heyrt ávæning af tali um VIRK frá skyldfólki. Ég vildi alls ekki enda á örorku heldur reyna að komast út á vinnumarkaðinn aftur.“ 51virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.