Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 15
Hvað gerir VIRK?
Vinnur
virkniáætlun
Samhæfir
áætlun með
vinnustað
Fylgir
starfsmanni
eftir
Vinnur
með styrkleika
Veitir
stuðning og
fræðslu
VIRK
Því fyrr sem
einstaklingar
reyna endurkomu til
vinnu eftir veikindi eða
slys, því líklegra er að
þeir komist aftur út á
vinnumarkaðinn og því
er mikilvægt að gefa
einstaklingum tækifæri
til að komast í vinnu
við hæfi snemma í
starfsendurhæfingar-
ferlinu.“
skerta starfsgetu við að komast aftur á
vinnumarkaðinn.
Gert var ráð fyrir að niðurstöður þróunar-
verkefnisins gætu haft marktæk áhrif á ferli
einstaklinga í starfsendurhæfingu hjá VIRK.
Þetta varð raunin, því árið 2018 var ákveðið
að það ferli sem búið var að vinna eftir í
þróunarverkefninu yrði varanlegt verkferli
fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu
sem voru tilbúnir til að reyna endurkomu
á vinnumarkað en þurftu sérstaka aðstoð
til þess.
Einstaklingum er vísað í þjónustu hjá
sérstökum atvinnulífstenglum þegar þeir
eru metnir tilbúnir til að reyna endurkomu
inn á vinnumarkaðinn, um 3–4 mánuðum
áður en starfsendurhæfingu lýkur. Þar
fá þeir stuðning frá atvinnulífstengli við
undirbúning fyrir atvinnuleit og stuðning í
gegnum allt ferlið þar til þeir eru komnir í
vinnu. Margir eflast mjög á þessum tíma
og sækja sjálfir um störf sem auglýst eru
á almennum vinnumarkaði. Þá hefur
komið í ljós að einstaklingum sem hafa
verið lengi frá vinnumarkaði gagnast
vel að fá tækifæri til að koma inn á
vinnumarkaðinn á stigvaxandi máta og það
eykur líkurnar á árangursríkri endurkomu á
vinnumarkaðinn. Í þeim tilfellum er unnin
sérstök virkniáætlun af atvinnulífstengli í
samvinnu við starfsmanninn og yfirmann
hans. Þar er tekið mið af verkefnum,
vinnuferlum, aðstæðum og vinnutíma á
viðkomandi vinnustað og síðan eru gerðar
endurbætur á áætluninni eins og þurfa
þykir. Bæði er lögð áhersla á að styðja
einstaklinginn en ekki síður vinnustaðinn,
bæði stjórnendur og samstarfsmenn, eins
og óskað er eftir.
Eftirfylgni er með starfsmanni inni á
vinnustaðnum í samráði við starfsmanninn
og vinnustaðinn og getur atvinnulífstengill
aðstoðað við úrlausnir vandamála og
hindrana sem upp geta komið. Á meðan
einstaklingar eru í atvinnutengingu geta
atvinnulífstenglarnir keypt einstaklings-
miðuð úrræði frá ýmsum fagaðilum
sem auðveldað geta endurkomu inn
á vinnumarkaðinn. Þetta geta verið
úrræði eins og vinnuvistfræðilegt mat á
vinnuumhverfi framkvæmt af sjúkraþjálfara
eða iðjuþjálfa, viðtöl hjá sálfræðingi til
stuðnings sem og sérstök námskeið sem
geta aukið möguleika einstaklings á
vinnumarkaðinum. Mynd 1 sýnir samstarf
VIRK og vinnustaðar í endurkomuferlinu.
Í lok árs 2018 störfuðu fimm atvinnu-
lífstenglar í rúmlega 4 stöðugildum
og aðstoðuðu ráðgjafa VIRK á höfuð-
borgarsvæðinu (35 talsins) við að
koma einstakl ingum með skerta
starfsgetu aftur inn á vinnumarkaðinn
eftir starfsendurhæfingu. Auk þessa
störfuðu fjórir atvinnulífstenglar við IPS-
atvinnutengingu (Individual Placement
and Support) í um 3,5 stöðugildum og
aðstoðuðu þeir einstaklinga með alvarleg
geðræn vandamál við að komast inn á
vinnumarkaðinn. Þessir einstaklingar
komu í þjónustu VIRK í gegnum samstarf
við geðdeild Landspítalans – Laugarási
og geðheilsuteymi heilsugæslunnar á
höfuðborgarsvæðinu, bæði austur og
vestur.
156 störf árið 2018
Tæplega 300 tilvísanir bárust frá ráðgjöf-
um VIRK um aðstoð fyrir einstaklinga sem
voru að klára starfsendurhæfingu hjá VIRK
árið 2018 og fundu atvinnulífstenglar VIRK
156 störf á því ári. 26 þessara starfa voru
fyrir einstaklinga í IPS-atvinnutengingunni
sem tók að meðaltali um 6 mánuði
að finna en 130 starfanna voru fyrir
einstaklinga sem voru að klára almenna
starfsendurhæfingu en þau störf tók að
meðaltali rúmlega 3 mánuði að finna. Í
14% tilfella var gefið tækifæri á stigvaxandi
endurkomu inn á vinnumarkaðinn. Um
Strax í byrjun verkefnisins var lögð
mikil áhersla á að ná góðu samstarfi
við vinnumarkaðinn og auka fræðslu
og stuðning við fyrirtæki og stofnanir. Í
heimsóknum til fyrirtækja fór fram ákveðin
fræðsla um starfsemi VIRK, um mögulegan
ávinning af því að ráða hæft starfsfólk
sem var að ljúka starfsendurhæfingu
til starfa og þann stuðning sem VIRK
var tilbúin að veita í þessu ferli. Í kjölfar
þessara heimsókna mynduðust tengsl milli
atvinnulífstengla VIRK og tengiliða þeirra í
fyrirtækjunum og mörg fyrirtæki skrifuðu
undir sérstakan samstarfssamning við
VIRK. Þetta skref hefur reynst verkefninu
mjög mikilvægt og er enn mikilvægur
þáttur í samskiptum við fyrirtækin. Í
hvert sinn sem haft er samband við
þessi fyrirtæki er reynt að tala við skráða
tengiliði sem oft hafa þegar fengið fræðslu
um atvinnutengingu einstaklinga með
skerta starfsgetu sem auðveldar allt
áframhaldandi samstarf.
200 fyrirtæki í samstarfi
Í dag eru um 200 fyrirtæki með undir-
ritaðan samstarfssamning við VIRK en í
upplýsingagrunni VIRK eru nú skráð yfir
900 fyrirtæki og stofnanir. Núna stendur
yfir sérstakt átak þar sem lögð er áhersla
á að nálgast fyrirtæki sem ekki hafa verið í
virku samstarfi við VIRK til þessa. Sendur
var út fjölpóstur á þessi fyrirtæki og honum
fylgt eftir með ósk um að fá að koma í
heimsókn til að veita upplýsingar um
starfsemi VIRK og starf atvinnulífstengla
VIRK við að aðstoða einstaklinga með
Mynd 1
15virk.is