Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Qupperneq 22
RÁÐGJAFAR UM ALLT LAND
Höfuðborgarsvæðið
Borgarnes
Akranes og Snæfellsnes
Vestfirðir
Norðurland
vestra Akureyri og
Eyjafjörður
Austurland
Reykjanes
Vestmannaeyjar
4
1
2
1
2
32
Suðurland3
2
1
3
1
Þingeyjarsýslur
er vel gert og hvað má betur fara. VIRK er því
„Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2018“, var í 13. sæti
og stökk þangað úr 30. sæti frá árinu áður,
sem telja má afar ánægjulega niðurstöðu.
Í nóvember í fyrra fékk VIRK einnig
viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki
2018“ þriðja árið í röð frá Creditinfo. Cred-
itinfo verðlauna þau fyrirtæki sem standa
sig vel, stuðla að bættu viðskiptaumhverfi,
byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og
efla hag fjárfesta og hluthafa. VIRK var í 96.
sæti af 857 fyrirtækjum sem er afar gott.
Ferlar og fræðslumál
Hjá VIRK störfum við samkvæmt metnaðar-
fullum stefnum og verklagsreglum í mann-
auðsmálum bæði fyrir starfsfólk og ráðgjafa
VIRK. Ráðgjafar eru starfsmenn stéttarfélaga
en starfa eftir Gæðahandbók VIRK og þeim
faglegu verkferlum sem settir eru fram í
samningum á milli VIRK og félaganna.
Við ráðningu starfsmanna og ráðgjafa þarf
að skila inn prófskírteinum/leyfisbréfum
sem og sakavottorði. Þegar nýtt fólk hefur
störf fer fram skýrt móttökuferli og boðað
er í tveggja daga skipulagða nýliðafræðslu.
Allir ráðgjafar sem hefja störf hjá VIRK fá
handleiðslu í sex mánuði frá sérfræðingum
VIRK samkvæmt skilgreindu skjalsniði. Að
þeim tíma loknum er fundað um árangur
handleiðslunnar og brugðist við í samræmi
við árangur og/eða tekin ákvörðun um lok
hennar.
Fræðsla og endurmenntun starfsfólks og
ráðgjafa er mjög öflug og fjölbreytt, bæði er
um að ræða þjálfun hópa sem og einstaklinga.
Á hverju ári fara fram reglubundin starfs-
mannasamtöl. Þetta árið eru þau þematengd
og verða þrjú samtöl tekin yfir árið.
Mannauðsmælingar
Mikilvægasta auðlindin er starfsfólkið og
er okkur mjög umhugað um að sýna þeim
umhyggju, stuðla að vellíðan þeirra, góðum
starfsanda og starfsánægju. Liður í því er
að annan hvern mánuð eru framkvæmdar
mannauðsmælingar hjá VIRK. Mælt er í átta
flokkum í hvert sinn og einnig er ein opin
spurning lögð fyrir. Stjórnendur funda um
niðurstöður og rýna til gagns með umbætur
í huga. Mælingarnar eru birtar starfsfólki og
samtal tekið um niðurstöður og fólk hvatt
til að koma með hugmyndir ef bæta má
starfsumhverfi og/eða líðan.
Í síðustu tveimur mælingum hefur starfs-
ánægja hjá VIRK verið 4,75 og 4,55 og
mat starfsfólk stuðning frá stjórnendum
4,83 og 4,60. Heildarárangur þessara
tveggja mælinga var 4,65 og 4,50 af 5.00
mögulegum sem teljast má góður árangur.
Viðurkenningar VIRK
Okkur til mikillar ánægju varð VIRK eitt
15 fyrirtækja sem teljast til fyrirmyndar í
flokki meðalstórra fyrirtækja hjá VR árið
2018. Niðurstöður þessarar VR könnunar
endurspegla viðhorf starfsmanna til vinnu-
staðar síns auk þess sem hún er vettvangur
starfsmanna til að segja stjórnendum hvað
Við viljum vera í
fararbroddi
vinnustaða sem stíga
fram og takast á við
þá streitu sem er á
vinnumarkaði og tölur
VIRK vitna til um.“
22 virk.is