Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Qupperneq 35
VIÐTAL
bílnum og virti fyrir mér útsýnið. Þá hringir
yfirmaður minn en ég gat ekki svarað. Ég fór
aftur að hágráta – ég fann að ég gat ekki
svarað í símann, ekki farið í göngutúrinn og
ekki mætt í vinnuna daginn eftir. Hvað átti ég
að gera? Ég hringdi í svilkonu mína og hún
ráðlagði mér að fara niður á bráðamóttöku
geðdeildar Landspítala. „Talaðu við þau,
þetta er ekki eðlilegt ástand á þér,“ sagði
hún við mig.“
Lára Janusdóttir lét sér þetta að kenningu
verða. Hún hafði tveimur árum áður leitað til
bráðadeildar vegna kvíða.
„Þessi fyrstu merki kulnunar fann ég í
desember 2015. Þegar ég leitaði á bráða-
deildina í síðara skiptið, tæpum tveimur
árum síðar, var ég hins vegar með bein
einkenni um kulnun án þess þó að gera
mér fulla grein fyrir því. Mér fannst ég sýna
merki um greindarskerðingu vegna minnis-
og einbeitingarskorts.“
Missti sjálfstraustið
Lára er fædd árið 1974, tók BS-gráðu í
viðskiptafræði frá HÍ 2002 og MBA-meistara-
gráðu frá HR 2016. Hún hefur gegnt ýmsum
störfum og var komin í draumastarfið þegar
kulnunin tók völdin.
Hvernig voru fyrstu kulnunareinkennin?
„Ég byrjaði að detta út úr vinnu og vera
heima með kvíða og ýmis önnur einkenni,
svo sem að ég myndi ekki ráða við hlutina,
væri að missa sjálfstraustið og stríddi við
mikinn einbeitingarskort. Veikindadögunum
fjölgaði. Ég hugðist þá reyna að vinna heima
til að fá einbeitingu en það gekk ekki. Ég
var svo ótrúlega þreytt. Í kjölfarið fylgdi kvíði
vegna þess að ég var komin með hala af
verkefnum sem ég hafði ekki getað lokið við.
Þetta ástand leiddi til mikils tilfinningaróts og
ég endaði á bráðadeild geðdeildar sem fyrr
sagði,“ segir Lára.
„Mér þótti á sínum tíma nánast súrrealískt
að vera komin í þessa stöðu, sitja grátandi
hér heima dögum saman og vita ekki hvert
ég ætti að snúa mér. Hjá geðdeildinni fékk
ég góða þjónustu og var sagt að ég þyrfti
að fara í veikindaleyfi. Ég hélt að ég myndi
vera svona tvær vikur að ná mér. Áttaði mig
engan veginn á hve alvarlegt þetta var.“
Hver vísaði þér á VIRK?
„Ég á góða vinkonu sem ég hitti á kaffihúsi
er ég var komin í veikindaleyfi og hafði
skráð mig á núvitundarnámskeið. Vinkona
mín sagði: „Af hverju sækir þú ekki um
hjá VIRK?“ Ég hafði aðeins heyrt um VIRK
og hvað fólk væri að gera þar en vissi ekki
mikið. Kaffihúsaferðin var í lok janúar 2017. Í
framhaldi af henni fór ég til heimilislæknisins
sem sótti um fyrir mig hjá VIRK. En margt
hafði gengið á áður en þetta gerðist.
Að mér höfðu sótt hugsanir eins og að ég
væri vitlaus, í vinnunni færi ábyggilega að
komast upp að ég vissi ekki neitt. Samt
hafði ég unnið í markaðsmálum í fimmtán
ár þegar þetta var. Eftir að hafa lokið BS-
námi hjá HR starfaði ég á auglýsingastofu.
Árið 2014 tók ég svo MBA í HR meðfram
vinnu. Ég hafði starfað sem markaðsstjóri
en ákvað svo að segja upp þeirri vinnu til
að stunda námið eingöngu. Þá var auglýst
mjög spennandi staða hjá Skátamiðstöðinni
í Hafnarfirði, starf rekstrarstjóra hjá Lava
Hostel sem skátarnir reka. Sjálf er ég skáti,
það voru líka foreldrar mínir og amma mín
og afi – ég er því af „skátaættum“,“ segir
Lára og hlær.
Yndislegt að koma til VIRK
Fékkstu umrætt starf?
„Já, ég var mjög ánægð með það. Þá gat
ég unnið hér í Hafnarfirði og verið nálægt
börnunum mínum tveimur, stelpu og strák,“
segir Lára. Við sitjum við eldhúsborðið í
stórglæsilegu einbýlishúsi sem hún og
maður hennar keyptu af stórhug þegar þau
hófu búskap. Við borðið er smábarnastóll.
Lára sér að ég gef stólnum auga.
„Þessi barnastóll er núna fyrir köttinn en
ekki krakkana, þau eru orðin tíu og fjórtán
ára. Kötturinn okkar er svo félagslyndur að
hann situr í barnastólnum þegar fjölskyldan
er að borða,“ segir hún brosandi.
„Ég tók svo við þessu stjórnunarstarfi og
fannst mjög spennandi að vera í fleiru
en markaðsmálum. Ég tók við rekstri,
fjármálum og mannaforráðum hjá Lava
Hostel. Þetta reyndi nokkuð á, ég hafði
aldrei komið nálægt fjármálaumsýslu eða
bókhaldi af þessari stærðargráðu. Ég hafði
verið meira í markaðs- og hugmyndavinnu.
Fyrstu merki kulnunar fann ég árið 2015.
Það gerðist í desember, þá var ég búin að
vera þarna við störf frá því um páska sama
ár. Ég var gjörsamlega útkeyrð og brást við
með því að ásaka mig fyrir að ráða ekki við
starfið, maður var svolítið duglegur við að
gagnrýna sjálfan sig og draga sig niður,“
segir Lára.
Hvernig var að koma til VIRK?
„Það var yndislegt. Stéttarfélag mitt er VR og
hefur reynst mér vel. Ráðgjafi VIRK sem mér
var beint til tók mér mjög vel. Við settum í
sameiningu upp áætlun þar sem greint var
eftir föngum hvað ég væri að kljást við og
hvaða úrræði væru heppileg. Eitt af því
sem olli mér vanda var afleiðing af árekstri
sem ég lenti í á Þorláksmessu árið 2013.
Þá fékk ég hnykk á hálsinn sem leiddi til
mikilla verkja sem ekki vildu fara þrátt fyrir
að ég væri í sjúkraþjálfun. Þegar maður er
þjáður af verkjum alla daga frá öxl og niður
í handlegg þá hefur það áhrif á vinnulag og
einbeitingu.
Ráðgjafinn kom mér í sjúkraþjálfun sem
VIRK stóð straum af. Einnig fór ég á
námskeið hjá Heilsuborg. Þar var farið yfir
allar æfingar og hvað hentaði stoðkerfi mínu.
Ég hafði hugað að þessu áður og lært hvað
ég mætti og hvað ekki. En á námskeiðinu
var þetta markvissara og næsta skref í átt
til þess að verða sjálfbjarga. Einnig fór ég í
viðtalsmeðferð hjá sálfræðingi, það hjálpaði
Flestir setja upp mikla glans-
mynd af lífi sínu á samfélags-
miðlum. En jafnvel þeir sem
virðast þar með allt á hreinu
reyndust eiga við einkenni
kulnunar að etja.“
VAR ALLTAF
AÐ SANNA MIG
35virk.is