Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Side 5
VIRK
ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR formaður stjórnar VIRK
veikindafjarveru, oft langtíma vegna streitu-
kenndra einkenna. Ef við höldum áfram að
leita skýringar í lífeðlisfræði kvenna eða að
konur skuli ekki þola streituálag eins vel og
karlmenn, komum við ekki til með að leysa
streituvandamálin á vinnustöðum.“
Ástæðunnar er oftar en ekki að leita í vinnu-
umhverfi kvenna. Rannsóknir sýna að
vinnuskilyrði eru oftar verri á vinnustöðum
þar sem konur eru í meirihluta. Og hvar eru
þær í meirihluta? Í heilbrigðis- og mennta-
kerfinu í erilsömum störfum þar sem unnið
er með fjölda fólks og skjólstæðinga alla
daga vikunnar. Ingibjörg bendir okkur
á að í Svíþjóð sé umræðan að beinast frá
einstaklingum og að þeim þáttum sem lúta
að vinnuskilyrðum og skilgreiningu starfa.
Skýrar kröfur og viðráðanlegt álag eru
líklegri til að stuðla að heilbrigði starfsmanna
en óljósar kröfur og stöðugt ofurálag. Hvað
varðar ofurálagið verður mér hugsað til
stórra heilbrigðisstofnana sem haldið er
úti með lágmarksmönnun nær allt árið.
Og þegar kemur að óljósum eða ef til vill
óraunhæfum kröfum verður mér hugsað til
grunnskólakennara og kröfunnar um að þeir
sinni uppeldi barna í meiri mæli en eðlilegt
getur talist.
Ég ætla að leyfa mér að varpa fram til-
gátu um ástæður þess að fleiri konur en
karlar missa heilsuna á Íslandi og þurfa
á starfsendurhæfingu að halda rétt-
um áratug eftir hrun. Margar þessara
kvenna starfa við kennslu, velferðar- og
heilbrigðisþjónustu. Þær starfa hjá hinu
opinbera; ríki og sveitarfélögum. Þær voru
ekki í hópi þeirra sem misstu vinnuna
strax í kjölfar efnahagshrunsins en í byrjun
kreppunnar misstu margir vinnu á almenna
markaðnum, t.d. í byggingariðnaði og
þjónustustörfum. Það gerðist ekki í sama
mæli hjá hinu opinbera. Þar tók hins
vegar við kjararýrnun í margs konar formi
samhliða ráðningarfrystingu sem leiddi til
undirmönnunar og meira álags á mörgum
vinnustöðum en eðlilegt getur talist. Auðvitað
er myndin flóknari en við erum að tala um
heilan áratug við aðstæður sem kannski
væri hægt að bjóða fólki upp á í skamman
tíma.
Þessi reynsla ætti að kenna okkur að hætta
að leita orsaka fyrir streitusjúkdómum og
kulnun – eða nýgengi örorku svo að annað
títtnefnt dæmi sé nefnt – einungis hjá
einstaklingunum en horfa frekar á stóru
myndina; vinnuumhverfið, samskipti og
aðstæður á vinnustað, óraunhæfar kröfur,
óljósar starfslýsingar o.þ.h. Að ógleymdum
þeim aðstæðum sem samfélagið býr konum
og barnafjölskyldum almennt.
Ábyrgð atvinnurekenda og stéttarfélaga er
vissulega mikil en hún er ekki minni sú er
hvílir á herðum stjórnvalda. Það er sam-
félagslegt verkefni að bæta stöðu kvenna
á vinnumarkaði en aðgerðir sem stuðla
að félagslegum stöðugleika og bæta kjör
fjölskyldna í landinu hafa jafnframt þau áhrif
að styrkja stöðu kvenna á vinnumarkaði.
Hvað VIRK varðar mun sjóðurinn í hlutverki
sínu sem starfsendurhæfingarsjóður í eigu
stéttarfélaga og atvinnurekenda áfram
rækja starf sitt af framsýni og þolgæði með
hagsmuni skólstæðinga sinna að leiðarljósi.
Þola konur ekki álag? Um leið og spurn-
ingin er orðuð blasir við hversu fráleit hún
er. Dr. Ingibjörg H. Jónsdóttir prófessor við
Háskólann í Gautaborg og forstöðumaður
Institutet för stressmedicin er leiðandi
í umræðunni um streitu og kulnun á
vinnumarkaði. Ég leyfi mér að vitna í
orð hennar sem birtust í síðasta ársriti
VIRK. Þar segir: „Brýnt er að beina
umræðunni um streituvalda á vinnustað,
aðstæðum stjórnenda og kynjamuninn í
réttan farveg. Að við gerum okkur grein
fyrir raunverulegum orsökum þess að
konur eru í meirihluta hvað varðar
Ég ætla að leyfa mér að varpa fram tilgátu um ástæður þess að
fleiri konur en karlar missa heilsuna á Íslandi og þurfa á starfs-
endurhæfingu að halda réttum áratug eftir hrun. Margar þessara kvenna
starfa við kennslu, velferðar- og heilbrigðisþjónustu.“
„Þessi reynsla ætti að
kenna okkur að hætta
að leita orsaka fyrir
streitusjúkdómum og
kulnun – eða nýgengi
örorku svo að annað
títtnefnt dæmi sé
nefnt – einungis hjá
einstaklingunum en horfa
frekar á stóru myndina;
vinnuumhverfið, samskipti
og aðstæður á vinnustað,
óraunhæfar kröfur, óljósar
starfslýsingar o.þ.h.“
5virk.is