Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 30

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 30
STARF RÁÐGJAFA HJÁ VIRK GEGNIR LYKILHLUTVERKI FYRIR ÞÁ SEM SÆKJA ÞANGAÐ SAMSTARF TIL ENDURHÆFINGAR. AÐ BORGARTÚNI 6, FJÓRÐU HÆÐ HITTUM VIÐ FYRIR ÞÆR KRISTBJÖRGU OG GUÐLEIFU BIRNU LEIFSDÆTUR SEM BÁÐAR ERU FÉLAGSRÁÐGJAFAR OG STARFA SEM RÁÐGJAFAR VIRK FYRIR BANDALAG HÁSKÓLAMANNA, BHM. ÞÆR SYSTUR HAFA MARGT FRÓÐLEGT AÐ SEGJA UM STARF SITT HJÁ VIRK OG SÝN SÍNA Á SAMFÉLAGIÐ, SEM ÞÆR HAFA ÖÐLAST Í RÁÐGJAFASTARFINU. FÓLK BER ÁBYRGÐ Á EIGIN HEILSU GUÐLEIF BIRNA LEIFSDÓTTIR & KRISTBJÖRG LEIFSDÓTTIR starfsendurhæfingarráðgjafar Er hætta á því að ráðgjafar fari að „lifa lífinu“ fyrir þá sem unnið er með á þennan hátt? „Félagsráðgjafamenntun er þess eðlis að við sem hana höfum erum meðvituð um að blanda okkar eigin lífi ekki inn í starf okkar. Ábyrgðin er alltaf hjá einstaklingnum sem kemur til samstarfs við VIRK, hún er aldrei af honum tekin. Það er ljóst frá fyrsta viðtali, einstaklingurinn ræður ferðinni. Við ráðgjafarnir erum stuðningsaðilar og höldum utan um þá aðstoð sem veitt er,“ segir Guðleif Birna. „Ef hvati og löngun er til staðar hjá ein- staklingum til að ná bata þá gengur þetta yfirleitt vel. Stundum er þó löngunin meiri en getan. Þá þarf að vinna með það. Ef einstaklingur sér hins vegar ekkert nema hindranir á vegi sínum þá er ekki auðvelt að byrja,“ bætir hún við. „Læknir sendir tilvísun til VIRK þar sem fram kemur ástæða til beiðni um samstarf fyrir einstakling. Sérstakt teymi vinnur með þessar beiðnir. Eftir að veitt hefur verið leyfi til samstarfsins hefst það með viðtali við ráðgjafa viðkomandi stéttarfélags. Skrifað er undir þátttökusamning sem inniheldur meðal Starf ráðgjafa hjá VIRK er ekki síst mjög skemmtilegt og eftir því fjölbreytt. Það felst í að styðja einstaklinga aftur inn á vinnumarkaðinn eftir heilsubrest. Slíkt krefst góðra samskipta og samvinnu. Nauðsynlegt er að átta sig í upphafi á hvar viðkomandi einstaklingur er staddur í sínum heilsufarsmálum og hvað helst má gera honum til stuðnings,“ segir Kristbjörg. annars áttatíu prósent mætingarskyldu í úrræði. Skoðað er hvar styrkleikar við- komandi liggja og hvernig hægt sé að vinna með þá áfram. Einnig er skoðað hvaða hindranir eru til staðar. Þetta er grunnurinn að allri okkar vinnu með þeim sem til okkar leita,“ segir Kristbjörg. Traust og trúnaður mikilvæg Hver hefur stjórnina í endurhæfingunni? „Hver og einn einstaklingur setur sér mark- mið í endurhæfingu sinni. Einstaklingurinn stýrir hvernig á að vinna og við, ráðgjafarnir upplýsum hvað er í boði. Fyrst þarf fólk að finna út hvað það þarf að vinna með í málum sínum og síðan er skoðað hvaða úrræði koma honum að gagni í því verki. Mikilvægt er að traust og trúnaður ríki í samstarfi ráðgjafa og þjónustuþegans, það er grundvallaratriði. Ráðgjöf, stuðningur og utanumhald gefur góða raun í þessu samstarfi. Við, ráðgjafarnir, erum þeir aðilar sem halda utan um stuðningsnetið sem þjónustuþegar VIRK nýta sér. Þverfaglegt teymi sérfræðinga tekur ákvörðun um hvort einstaklingur hefur gagn af samstarfi við VIRK. Við ráðgjafarnir erum ekki með í þeim ákvörðunum.“ segir Guðleif Birna. 30 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.