Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 34

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 34
HORFUR UNGS FÓLKS SEM ER HVORKI Í NÁMI NÉ VINNU BJÖRK VILHELMSDÓTTIR félagsráðgjafi og sérfræðingur hjá VIRK VETURINN 2017-2018 ER ATVINNULEYSI Á ÍSLANDI RÚMLEGA 2% SEM TELST LÍTIÐ SAMANBORIÐ VIÐ ÖNNUR LÖND OG AÐRA TÍMA. Þó eru í hverjum mánuði 1.000-1.400 manns á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar á aldrinum 16-29 ára þar af 600-800 sem einungis eru með grunnskólamenntun eða tæp 60% hópsins1. Lítil menntun ungs atvinnulauss fólks helst í hendur við þekkt brotthvarf íslenskra ungmenna úr framhaldsnámi, sem er mest meðal vestrænna ríkja innan OECD2 . Þessi hópur sem hvorki er í vinnu, námi né í annarri skipulagðri þjálfun á hættu á að verða félagslega einangraður, vera með tekjur undir fátækramörkum og skorta tækifæri til að bæta fjárhagsstöðu sína3. Slæm félagsleg staða hefur neikvæð áhrif á heilsufar, sérstaklega með tilliti til geðrænna sjúkdóma4. Þá sýna ótal rannsóknir fram á tengsl óvirkni og verri heilsu og/eða aukinnar notkunar vímuefna. Eins virðist sem ýmsar raskanir og sjúkdómar sem oft eru viðráðanlegir með viðeigandi meðferð og félagslegum stuðningi versni við óvirkni og félagslega einangrun5,6,7. Við sem samfélag erum ekki að mæta þörfum þessa hóps og ef fram heldur sem horfir bíður margra langvarandi fátækt með tilheyrandi heilsuleysi og síðar örorku, nema til komi markviss starfsendurhæfing8. NEET hópurinn Ungt fólk sem hvorki er í vinnu né í námi er á fagmáli nefndur NEET hópurinn. NEET stendur fyrir Not in Employment, Education 34 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.