Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 35
VIRK
or Training. Í vestrænum heimi jókst hlutfall
þessa hóps á árunum eftir 2008, en með
markvissum aðgerðum hefur hlutfallið
aðeins lækkað. Þó er meðaltal allra OECD
landanna árið 2016 tæp 12%. Lægst er
hlutfallið á Íslandi en árið 2015 voru 6,2%
fólks á aldrinum 16-29 ára hvorki skráð í
nám eða í starf. Þó hlutfallið sé lágt er fjöldinn
talsverður eða 4.100 einstaklingar það ár9. Af
þessum hópi fengu 42% atvinnuleysisbætur,
20% örorku- eða endurhæfingarlífeyri, 19%
fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi og 19% voru
ekki með skráða framfærslu og því líkast til
á eigin framfæri eða fjölskyldu sinnar. Þó
fólk utan náms og vinnu sem er í hættu á
að vera félagslega útskúfað í samfélaginu til
frambúðar með tilheyrandi heilsubresti verði
ekkert að gert.
Íslenska leiðin – brotthvarf
og örorka
Við Íslendingar erum oft sér á báti,
enda finnum við stundum upp lausnir
á þekktum vanda sem aðrar þjóðir hafa
þróað árangursríkar leiðir til að mæta.
Tvær séríslenskar leiðir tengjast ungu
fólki sem hvorki er í vinnu né í námi;
önnur er brotthvarf úr framhaldsskóla og
hin er há tíðni örorku meðal ungs fólks.
Norræna tölfræðistofnunin NOSOSCO
staðfestir til að mynda að 5% fólks á
aldrinum 16-39 ára er með örorku-
eða endurhæfingarlífeyri hér á landi, á
meðan hlutfallið er 2% á öllum hinum
Norðurlöndunum. Ástæðan er meðal annars
sú að hér á landi er hægt að fá varanlega
örorku- eða endurhæfingarlífeyri frá 18 ára
aldri. Í Danmörku fer fólk ekki á varanlega
örorku fyrr en eftir 40 ára aldur, fram að
því er boðið upp á starfsendurhæfingu
og hlutastörf í samræmi við starfshæfni
sé nokkur möguleiki á virkni. Í Svíþjóð er
örorkulífeyrir fyrst greiddur eftir 30 ára
aldur en fram að því fær fólk hlutfallslegar
greiðslur eftir starfshæfni. Í Noregi er
gert ráð fyrir greiðslum fyrir virkni í það
minnsta til 26 ára aldurs nema fólk sé
alvarlega fatlað og í Finnlandi eru ekki
greiddar fullar örorkubætur fyrir 31 árs
aldur11. Almannatryggingakerfin eru þannig
verulega frábrugðin á Norðurlöndunum, en
alls staðar utan Íslands má segja að gert
sé ráð fyrir því að nýta starfshæfni fólks
í lengstu lög og koma í veg fyrir varanlega
óvirkni utan vinnu og eða náms.
Í grein Guðrúnar Ragnheiðar Jónsdóttur í
Ársriti VIRK síðasta árs má vel sjá hvernig
Ísland sker sig einnig úr varðandi aukningu
útgjalda vegna örorkulífeyris á meðan aðrar
Norðurlandaþjóðir hafa dregið úr þeim
útgjöldum um leið og áhersla á virkni jókst12.
Margt bendir til þess að við köstum
krónunni til að spara aurinn þar sem
önnur velferðarútgjöld hér á landi eru
talsvert undir sambærilegum útgjöldum á
Norðurlöndunum11. Margvíslegar rannsóknir
sýna fram á að skortur á stuðningi í upphafi
erfiðleika og veikinda leiðir seinna til
sjúkdóma sem verða illviðráðanlegir og
leiða til varanlegrar örorku. Nýleg rannsókn
Félagsvísindastofnunar 10 skoðaði meðal
annars aðstæður þeirra sem fengu örorku-
eða endurhæfingarlífeyri vegna sjúkdóma
sem ekki voru meðfæddir. Voru það
sjúkdómar tengdir stoðkerfi í 28% tilfella og
geðsjúkdómar í 72% tilfella. Vandi þessa
fólks birtist á margvíslegan hátt snemma á
lífsleiðinni. 75% hópsins fann fyrir kvíða og/
eða þunglyndi strax í grunnskóla og 58%
hafði litla trú á sér í grunnskóla. Svipaðar
niðurstöður voru varðandi framhaldsskól-
ann. Helmingur hópsins var mjög eða frekar
sammála þeirri fullyrðingu að hann hefði
fengið lítinn eða engan stuðning í grunnskóla
og ríflega þriðjungur hafði þessa skoðun
í framhaldsskóla. Lítil menntun einkennir
hópinn en helmingur hópsins hafði eingöngu
lokið grunnskólanámi og þriðjungur svar-
enda hafði byrjað í framhaldsskóla en
hætt áður en náminu lauk, oftast vegna
veikinda, vanlíðunar og námserfiðleika. Í
rannsókn Félagsvísindastofnunar er bent á
mikilvægi þess að auka aðgengi að náms-
og starfsráðgjöfum, félagsráðgjöfum og
sálfræðingum í grunn- og framhaldsskólum
í því skyni að veita mikilvægan stuðning og
styðja fólk til að halda áfram námi. Þá kemur
fram skýr vilji svarenda sem hefðu viljað fá
slíkan stuðning á meðan á námi stóð.
Brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum er
það mesta sem þekkist í vestrænum heimi
og er mest meðal þeirra sem standa verr
hvað varðar líðan og námsgetu. Rannsóknir
sýna að þeir sem hverfa frá námi geta
staðið frammi fyrir skertum lífsgæðum,
sálfélagslegum erfiðleikum og eiga á hættu
að verða háðir þjónustu velferðarkerfisins13 .
Hátt hlutfall brotthvarfs og hátt hlutfall ungs
fólks með örorku- eða endurhæfingarlífeyri
hér á landi bendir eindregið til hins sama.
Það þarf oft lítið til að breyta mjög miklu fyrir
nemendur sem annars flosna upp úr námi.
Því má ætla að stuðningur sem væri veittur
af náms- og starfsráðgjöfum, sálfræðingum
og skólafélagsráðgjöfum kosti mun minna
fyrir samfélagið en sú þjónusta sem
óvirkni fólks kallar á, í formi bótagreiðslna,
félags- og heilbrigðisþjónustu og síðar
starfsendurhæfingar8.
Lesblinda mikill áhrifavaldur
Þegar hugað er að ungu fólki sem hvorki er
í vinnu né starfi þá er mikilvægt að greina
stöðu hvers einstaklings og kortleggja
tækifæri og hindranir. Lesblinda er dæmi
um hindrun þegar kemur að námi og vinnu,
þó svo hún geti einnig verið náðargáfa í
sumum greinum þar sem þrívíddarskynjun
lesblindra virðist nýtast t.d. í bifvélavirkjun
og arkitektúr8. Slök lestrarfærni hefur hins
vegar skýrt forspárgildi varðandi atvinnuleysi
einstaklingar hafi hvorki verið skráðir í nám
né vinnu þurfa ekki allir í hópnum að vera
í vanda8. Rannsókn Félagsvísindastofnunar
árið 2016 meðal yngra fólks sem nýlega
(árin 2012-2015) hafði fengið örorku- eða
endurhæfingarlífeyri vegna geðsjúkdóma
og stoðkerfissjúkdóma sýnir að 38% fólks
yngra en 30 ára sem nýtur örorku- eða
endurhæfingarlífeyris eru í einhverju námi
og 24% eru í einhverri vinnu 10 sem teljast
verður jákvætt. Þá eru sumir þeirra sem
eru á eigin framfæri eða fjölskyldu sinnar
einfaldlega á ferðalögum að skoða heiminn.
Eftir stendur að stór hluti, jafnvel tvö til þrjú
þúsund manns á hverjum tíma, er ungt
Þær raskanir
sem hér eru
nefndar eru oft
meðfærilegar ef
fólk fær tækifæri
til að yfirvinna þær
hindranir sem af
þeim leiða, en
versna ef fólk fær
ekki tækifæri til
þátttöku og verður
óvirkt hvað varðar
vinnu eða nám.“
35virk.is