Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 36

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 36
sem mældist tvöfalt hærra meðal þeirra sem eru í lægsta þrepi í lestrarfærni í rannsókn sem var gerð á ýmsum færniþáttum og tengslum þeirra við atvinnulífið meðal 26 OECD ríkja árið 201214. Í fyrrnefndri rannsókn Félagsvísindastofn- unar meðal ungs fólks sem nýtur örorku- eða endurhæfingarlífeyris kemur fram að 33% þeirra sem eru undir þrítugu hafa verið greindir með lesblindu þrátt fyrir að einungis um 4-5% landsmanna á sama aldri ætti að hafa slíka greiningu. Enn fleiri eða um 40% hafa greinst með athyglisbrest með eða án ofvirkni og allt að 80% greina frá kvíða eða þunglyndi. Þær raskanir sem hér eru nefndar eru oft meðfærilegar ef fólk fær tækifæri til að yfirvinna þær hindranir sem af þeim leiða, en versna ef fólk fær ekki tækifæri til þátttöku og verður óvirkt hvað varðar vinnu eða nám. Há tíðni lesblindu meðal íslenskra öryrkja hvetur VIRK og aðra þjónustuaðila til að skima fyrir þessari röskun og bjóða tækifæri til að sporna gegn neikvæðum afleiðingum hennar. Símenntunarmiðstöðvar um land allt og Mímir símenntun á höfuðborgarsvæðinu bjóða sérhæfð námskeið sem Fræðslu- miðstöð atvinnulífsins hefur þróað til að bæta stöðu lesblindra gagnvart námi og vinnu. Þetta eru námskeiðin Aftur í nám og Skref til sjálfshjálpar sem einnig eru greidd af Fræðslumiðstöðinni á grundvelli laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Aðrar náms- og starfsendurhæfingarstöðvar hafa einnig mætt eftirspurn vegna þessa vanda svo sem Námsflokkar Reykjavíkur, Janus endurhæfing og Hringsjá. Vannýtt tækifæri Íslenskt samfélag hefur í lögum og með stefnumótun tryggt nokkuð vel réttindi fólks sem stendur höllum fæti vegna námserfiðleika eða hefur stutta formlega skólagöngu, oft vegna brotthvarfs, sem hamlar starfshæfni og frekara námi. Á grunni laga um framhaldsfræðslu standa nemendum margvísleg úrræði til boða sem mæta þörfum þeirra meðal annars fyrir styttri námsbrautum, annarskonar námsefni og lengri námstíma. Hins vegar er það dapurleg staðreynd að mörg þessara úrræða eru vannýtt í dag8. Á síðustu misserum hafa Mímir -símenntun, Námsflokkar Reykjavíkur og Hringsjá þurft að fella niður námskeið ætluð fólki með lesblindu og/eða litla grunnmenntun vegna ónógrar þátt- töku. Fjölsmiðjan í Kópavogi sem starfað hefur við góðan orðstír er í sömu sporum. Síðastliðin misseri hafa þar verið fjöldi lausra plássa og búið að loka tímabundið einni af starfsþjálfunardeildunum. Þetta er á sama tíma og fjöldi fólks með lesblindu og skyldar raskanir er hvorki í vinnu né námi og nú í janúar 2018 voru 807 ungir einstaklingar á skrá Vinnumálastofnunar einungis með grunnskólamenntun og gætu nýtt sér þessi tilboð. Hvað hindrar að ungt fólk nýti þessi tækifæri er óvíst, en það er viðfangsefni nýrrar rannsóknar höfundar sem VIRK starfsendurhæfingarsjóður og Lýðheilsusjóður styrktu. Fljótlega má vænta niðurstaðna sem vonandi birtast í næsta Ársriti VIRK. Starfsendurhæfing, nám og/eða vinna er svarið Samfélagið þarf að láta sig varða unga fólkið sem okkar eigin skólakerfi hefur ekki náð að mæta. Samfélagið ber ábyrgð á brotthvarfi úr framhaldsskólum sem að stórum hluta er tilkomið vegna andlegra erfiðleika og námserfiðleika sem hægt er að mæta, sé vilji til þess. Norræna velferðarmiðstöðin (Nordic centre for welfare and social issues) setti á laggirnar rannsóknarverkefni undir heitinu: Young people in the Nordic Region – Mental health, Employment and Education árin 2014-2015. Á vegum þessa verkefnis voru gerðar þrjár viðamiklar viðtalsrannsóknir með ólíkar nálganir um ungt fólk sem hvorki er í námi né vinnu og glímir við geðrænan vanda. Hvort sem rannsóknirnar snéru að fólki með geðheilbrigðisþjónustu eða þeim sem fengu stuðning vegna atvinnuleysis voru niðurstöður nánast þær sömu. Ástæðurnar eru taldar þær að atvinnulausa fólkið átti við geðræna erfiðleika að stríða og unga fólkið með geðræna vandann var hvorki í skóla né vinnu. Þetta var því sami hópurinn. Niðurstöður rannsóknanna var í meginatriðum að þörf er á stórbættu aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í nærsamfélagi og aðgengilegri þverfaglegari þjónustu í tengslum við framhaldsskólana sem komi í veg fyrir að unga fólkið hverfi frá námi. Til að koma í veg fyrir að ungt fólk hætti námi vegna erfiðleika sinna þarf annars konar val um úrræði að vera í boði sem tekur við þegar og ef skóla sleppir og kemur í veg fyrir óvirkni. Unga fólkið bendir á mikilvægi þess að minnka skrifræði sem þau sjá ofsjónum yfir og að þeir sem þjónusta þau sjái og heyri hvað þau hafi fram að færa í stað þess að líta einungis á sjúkdómsgreiningar þeirra6. Með öðrum orðum þá er það ekki lausn að greiða fólki framfærslu sem duga ekki til nauðþurfta og láta það afskiptalaust. Slíkt leiðir til fátæktar sem er til lengri tíma litið skaðleg heilsu einstaklinganna og samfélaginu öllu. Því þurfa ráðgjafar og aðrir sem vinna með ungu fólki að upplýsa það um hversu alvarlegar afleiðingar það hefur að hverfa frá námi og/eða hætta vinnu. Það á ekki að vera sjálfsagt val og samfélagið þarf fyrst að tryggja þann stuðning og endurhæfingu sem hver og einn á rétt á og virðist skila árangri samkvæmt erlendum rannsóknum. Við þurfum að skapa samfélag sem gefur öllu fólki tækifæri, ekki síst þeim sem búa við margvíslega erfiðleika. VIRK starfsendurhæfingarsjóður ber ábyrgð á því að bjóða þeim einstaklingum sem glíma við heilsubrest sem hindrar þátttöku á vinnumarkaði árangursríka starfsendur- hæfingu og aðstoð við að komast út á vinnumarkaðinn. En hvert og eitt okkar ber líka ábyrgð meðal annars með því að sýna fólki umburðarlyndi og bjóða það velkomið á vinnustaði og í skóla á þeirra forsendum. Þessi hópur hefur kvartað undan óbilgirni á vinnumarkaði, skorti á sveigjanleika og tækifærum á hlutastörfum sem aðrar Norðurlandaþjóðir hafa lagt áherslu á í stað örorku- og endurhæfingarlífeyris. Almennur skilningur á mikilvægi virkrar þátttöku í samfélaginu mun ýta undir líkurnar á að ungt fólk grípi þau tækifæri sem samfélagið býður upp á og þá getur hugmyndafræði VIRK um virka framtíð þessa fólks orðið að veruleika. Við þurfum að skapa samfélag sem gefur öllu fólki tækifæri, ekki síst þeim sem búa við margvíslega erfiðleika.” 36 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.