Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Qupperneq 42
MÉR ÞYKIR MJÖG VÆNT
UM VIRK
VIRK STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR Á TÍU ÁRA AFMÆLI Í ÁR.
MARGT OG MIKIÐ HEFUR BREYST Í ÍSLENSKU SAMFÉLAGI SÍÐAN
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS OG SAMTÖK ATVINNULÍFSINS AUGLÝSTU
EFTIR FRAMKVÆMDASTJÓRA OG VIGDÍS JÓNSDÓTTIR TÓK TIL STARFA
SEM SLÍKUR – MIKLUM MUN MEIRA HEFUR ÞÓ BREYST Í STARFI VIRK
ÞENNAN ÁRATUG.
VIGDÍS JÓNSDÓTTIR framkvæmdastjóri VIRK
alltaf haft áhuga á því sem ég hef verið að
gera hverju sinni. Ég setti á sínum tíma
fyrir mig inntökuprófið hvað læknisfræðina
varðar. Óttaðist að ná ekki inn og sitja þá
uppi með ógreitt námslán. Eftir á séð hefði
ég kannski átt að láta á þetta reyna. Hins
vegar þýðir ekki að hugsa um slíkt núna,
maður lifir lífinu áfram – ekki aftur á bak,“
segir Vigdís um leið og hún ber fram girni-
lega rúllutertu og ristað brauð.
„Kannski hefur þó áhugi minn á læknis-
fræðinni valdið því að ég sótti inn í
heilbrigðisgeirann – næstum eins og ósjálf-
rátt. Fyrsta starfið mitt eftir háskólanám
var hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga,
ég gerðist hagfræðingur þess félags, vann
þar í sjö ár og gekk vel. Mér fannst sérlega
áhugavert að sjá hve hjúkrunarfræðingum
þótti vænt um starfið sitt.
Síðan ákvað ég að söðla um og fara til
Danmerkur til að læra mannauðsstjórnun.
Mér hefur alltaf líkað vel að vinna í nánum
tengslum við fólk. Þegar ég kom heim eftir
Ég horfi á þessa konu,
hana Vigdísi Jónsdóttur
framkvæmdastjóra
VIRK, hita kaffi fyrir
mig í eldhúsinu sínu í
Hafnarfirði og fæ ekki
varist þeirri hugsun
að ætti ég að nefna
eitthvað sem einkenni
hennar persónu væri
það orðið; birta. Hennar
bjarta ára kann að
eiga sinn þátt í hinum
mikla vexti og árangri
sem starfsemi VIRK
einkennist af.
Ég lærði hagfræði af því að ég vildi
vera sjálfstæð og geta séð fyrir mér,“ svarar
Vigdís þegar ég spyr hana, í framhaldi af
ofannefndri hugsun, hvers vegna hún hafi
valið hagfræðinám að loknu stúdentsprófi
frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði.
„Síðasta prófinu í menntaskóla, tvöföldu
frönskuprófi, lauk ég sautjánda desember
1984. Svo fór ég upp á fæðingardeild og ól
son þann nítjánda desember. Tuttugasta og
fyrsta desember fékk ég að fara út og setja
upp stúdentshúfuna með skólasystkinum
mínum – síðan aftur upp á deild í þrjá daga.
Þá lágu sængurkonur á fæðingardeild í
fimm daga,“ segir Vigdís og hellir kaffi í bolla
fyrir mig.
„Satt að segja var ég óviss hvað ég ætti að
læra eftir stúdentsprófið,“ bætir hún við.
„Ég hafði haft áhuga á læknisfræði, var góð
í líffræði og stærðfræði. Síðustu önnina í
Flensborg tók ég hagfræðiáfanga og fannst
sú grein líka áhugaverð. Reyndar hef ég
42 virk.is