Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 45

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 45
 VIÐTAL starfsemi og hversu flókið starfið yrði. Við hjá VIRK erum að taka á móti veiku fólki og það gerir maður ekki hvernig sem er. Við komum inn í ýmis kerfi sem fyrir voru, svo sem heilbrigðiskerfi, félagskerfi og stéttarfélög. Það flækir málið síðan að menn eru ekki alltaf sammála um það hvernig beri að skilgreina starfsendurhæfingu og hver beri ábyrgð á hverju. En leiðarljós okkar hjá VIRK var að við ættum að koma til viðbótar þeirri þjónustu sem fyrir hendi var og markmiðið var skýrt – að koma sem flestu fólki aftur út á vinnumarkaðinn. Hvernig átti að gera þetta og hverjar áherslurnar ættu að vera var ekki eins ljóst. Við höfum á þeim tíma sem VIRK hefur starfað verið að finna út úr þessu og ég vil meina að þeirri vegferð sé ekki lokið. Við erum ennþá að átta okkur á hvar við eigum að vera og það er ekki undarlegt – tíu ár er ekki langur tími í slíkt verkefni.“ Hvernig gekk í upphafi? „VIRK hóf starfsemi sína á miklum um- brotatímum í íslensku samfélagi, rétt í þann mund sem bankahrunið varð. Á sama tíma og byggja átti þessa nýju þjónustu upp var verið að skera niður fjármagn til ýmissa ríkisstofnana. Mörgum fannst því að það fé sem VIRK fékk hefði átt að fara í annað. Ég hef skilning á þessu sjónarmiði en hef ávallt bent á það að fjármagnið sem fór í VIRK var ekki tekið frá öðrum stofnunum heldur kom til viðbótar frá atvinnulífi og lífeyrissjóðum. Þessar aðstæður ollu því hins vegar að erfitt gat verið að fá fólk til samstarfs við VIRK í upphafi. Áhugi Velferðarráðuneytisins á VIRK var einnig lítill á þessum tíma – ég var til dæmis ekki boðuð á fund sem ráðuneytið boðaði til þar sem fjallað var um starfsendurhæfingu. Þegar Guðbjartur Hannesson varð vel- ferðarráðherra breyttist margt. Hann var einstakur maður. Ég minnist þess að hann kom í heimsókn til okkar í VIRK og sagði: „VIRK er til og verður til og nú skulum við vinna saman.“ Eftir það varð samstarfið við hið opinbera betra. Vissulega finnum við þó stundum enn fyrir því að vera ekki ríkisstofnun. Á móti kemur að aðilar vinnumarkaðarins og stéttarfélögin standa við bakið á starfsemi VIRK og hafa barist fyrir henni. Hún snertir þeirra hagsmuni og það ber ekki að vanmeta. Þetta hefur verið ómetanlegur stuðningur í þeim ólgusjó sem VIRK hefur siglt, það hefur ekki alltaf verið eining um hvert stefna beri.“ Niðurskurður sem varð í kjölfar hrunsins í heilbrigðisgeiranum hefur til dæmis valdið því að við erum að fá til okkar hjá VIRK of veikt fólk. Það er vandi sem þarf að vinda ofan af í samstarfi við heilbrigðiskerfið. Fólk á að fá betri hjálp áður en það kemur til Ég ákvað að mæta þessu með því að spýta í. Þeir Gylfi Arnbjörnsson og Vilhjálmur Egils- son voru sammála mér þar – sögðu sem svo: Nú þarf fólk virkilega á þessari þjónustu að halda.“ af stjórnun, vinnu með heilbrigðisstéttum, sem hefði innsýn inn í störf stéttarfélaga og fleira mætti telja. Ég gerði samt ekkert í málinu fyrr en umsóknarfrestur var nánast runninn út. Þá datt mér allt í einu í hug að senda inn ferilskrá og lét fylgja að hún mætti vera með ef henta þætti. Svo var ég kölluð í viðtal. Það var að vissu leyti skondin upplifun. Ég reyndi ekki að „selja mig“ á nokkurn hátt – sagðist meira að segja ekki vera viss um að ég hefði áhuga á þessu starfi. Þessu var ótrúlega vel tekið og ég vandlega upplýst um hvað starfið fæli í sér. Ég hlustaði og sagði fátt. Í lok viðtalsins sagði ég þó: „Mér leiðist að fara með lofræður um sjálfa mig – ég hef hins vegar alltaf náð árangri í því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Þið getið hringt í meðmælendur og fengið það staðfest.“ Þegar ég kom út varð ég ergileg út í sjálfa mig, fannst að ég hefði getað sagt meira um áhuga minn á starfinu. Svo ég sendi póst, þakkaði fyrir viðtalið og sagði að mér þætti þetta starf mjög áhugavert. Nokkur tími leið. Talað var við fleiri af þeim fimmtíu sem sóttu um starfið og ég var send í persónuleikapróf. Það er gjarnan gert þegar ráðið er í svona störf. Síðan var haft samband við mig og mér boðið starfið. Áður en ég byrjaði hjá VIRK en eftir að ég var búin að ráða mig fór ég í frí með manninum mínum til Svartfjallalands. Í flugvélinni fékk ég mér hvítvínsglas og fannst ég allt í einu verða svo frjó í huga gagnvart hinu nýja starfi að ég yrði að skrifa hugmyndir mínar niður. Eina sem ég gat skrifað á voru ælupokarnir frá Croatia Airlines. Þannig skrifaði ég fyrstu drögin að starfsemi VIRK og öðru hvoru rekst ég á þessa poka þegar ég fletti gömlum skjölum.“ Skýrt markmið að koma sem flestum út á vinnumarkað „Þegar ég kom til starfa byrjaði ég á að kaupa fartölvu og settist með hana inn í skrifstofuhorn hjá ASÍ. Ég fékk fjármagn í hendurnar og hóf hikandi starfsemina. Ég vissi satt að segja á þessum tímapunkti harla lítið út í hvað ég væri að fara. Þá þegar hafði ég þó rætt við sérfræðinga í endurhæfingu og hélt því nú áfram. Ég vildi eiga samvinnu við til dæmis lækna, sálfræðinga og sjúkraþjálfara. Ég hafði ekki hugmynd um hvers konar fólk myndi leita til VIRK. Ég held að enginn hafi þá gert sér grein fyrir hversu mikil þörf væri á þessari Ekkert lát á eftirspurn Óx VIRK hratt? „Já, mjög hratt, á tímabili voru langir bið- listar eftir þjónustu og sú er einnig raunin í dag því miður. Ég hélt lengi vel að verið væri að „taka kúfinn“ af þörfinni hjá fólki eftir starfsendurhæfingu. En það er ekkert lát á eftirspurninni eftir samstarfi við VIRK hjá þeim sem einhverra hluta vegna eru ekki lengur úti á vinnumarkaðinum.“ Hverjar eru helstu orsakir þess að fólk leitar til VIRK? „Flest fólk sem leitar eftir þjónustu VIRK á í vanda vegna stoðkerfis eða geðrænna kvilla. Mjög mörgum tekst í samstarfi við VIRK að endurhæfast og komast til starfa á vinnumarkaðinum. En það er þó alltaf einhver hópur sem ekki tekst að endurhæfa. Orsökin liggur stundum í því að fólk er of veikt þegar það kemur til okkar. Það hefði þurft að fá meiri hjálp innan heilbrigðiskerfisins áður en það færi í starfsendurhæfingu eða heilsubresturinn er það alvarlegur að endurkoma á vinnumarkað er ekki raunhæf. 45virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.