Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Side 47
VIÐTAL
Við erum með núna um tvö þúsund og
fjögur hundruð einstaklinga í þjónustu. Þeir
hafa snertifleti við alla þessa fjölmörgu aðila
í kerfinu. Það fer ekki hjá því að í leiðinni
verðum við hjá VIRK vör við ýmsa bresti í
öllu þessu kerfi.“
Hvernig gengur að fá vinnu hjá
fyrirtækjum fyrir þjónustuþega VIRK?
„Það er farið að ganga betur, sérstaklega
eftir að við fórum markvisst af stað til að
leita eftir slíku. Hluti af starfsmönnum VIRK
í Guðrúnartúni eru svokallaðir atvinnu-
lífstenglar. Þeir fara með fólki út í fyrirtækin
og leita eftir störfum. Bjóða samstarf við
VIRK. Þegar losnar starf sem hentar er haft
samband. Við hjá VIRK eigum líka að láta
vita þegar til okkar kemur fólk sem við teljum
að geti verið eftirsóknarverðir starfskraftar
í ákveðin störf. Stundum fer fólk til vinnu
með svokallaðan starfssamning, þ.e. Trygg-
ingastofnun ríkisins borgar á móti fyrirtæk-
inu. Hitt er þó alveg eins algengt að fyrirtæki
borgi launin að fullu.
Þessi vaxandi þáttur í okkar starfsemi
hefur gengið vonum framar. Við getum
ekki ætlað fólki sem á við vanda að
stríða, jafnvel ævina á enda, að fara út á
vinnumarkaðinn hjálparlaust. Þess vegna
höfum við undanfarið lagt aukna áherslu á
að hjálpa þessu fólki lengra út í atvinnulífið
og við lítum á það sem hluta af starfs-
endurhæfingarferlinu. Á því sviði tel ég að
VIRK muni m.a. vaxa. Á sama tíma stöndum
við vörð um ráðgjafana okkar sem eru í
hinum persónulega stuðningi og beinist
aðallega að því að byggja upp sjálfsmynd
einstaklingsins. Þetta er því margþætt.“
Er mikil þörf á að styrkja innviði kerfisins?
„Já, það er víða þörf á að styrkja innviði en
hér er líka verið að gera margt vel. Því má
ekki gleyma né vanmeta. Það er til staðar
mikið af þjónustu þar sem unnið er gott
starf. Þar sem við þurfum sérstaklega að
gera betur er á sviði geðheilbrigðisþjónustu
og heilsugæslu. Ef til dæmis boðið væri upp
á sálfræðiþjónustu fyrr í ferlinu þá myndu
færri þurfa að koma til okkar í VIRK. Stjórn-
völd hafa lýst því yfir að einmitt á þessu
sviði ætli þau að gera betur svo ég leyfi mér
að vera bjartsýn hvað það varðar.“
Manneskjan bak við
stjórnandann
Hvernig líður þér þegar þú nú horfir yfir
tíu ára vegferð VIRK?
„Ég er fyrst og fremst þakklát og finnst það
ákveðin forréttindi að hafa fengið tækifæri
til að gera þetta. Mér þykir mjög vænt um
VIRK. Ég hefði ekki lagt mig meira fram þótt
ég hefði átt þetta fyrirtæki sjálf. Ég er líka
Við getum ekki
ætlað fólki sem á
við vanda að stríða,
jafnvel ævina á
enda, að fara út á
vinnumarkaðinn
hjálparlaust. Þess
vegna höfum við
undanfarið lagt
aukna áherslu á
að hjálpa þessu
fólki lengra út í
atvinnulífið og við
lítum á það sem
hluta af starfsendur-
hæfingarferlinu.“
Vigdís hlaut stjónendaverðlaun Stjórnvísi árið 2015.
47virk.is