Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Side 49

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Side 49
 VIÐTAL uppgötvað hluti um sjálfa mig sem ég vissi varla að væru til, svo sem sköpunarþrána. Ég fæ útrás fyrir hana til dæmis í prjónaskap – en þó miklu fremur í tónlist. Fólk sem hefur verið í þjónustu hjá VIRK talar stundum um að sköpun hafi fært því bata. Sköpunargleðin er án efa ein af leiðum fólks til betra lífs. Það er mikilvægt að geta nýtt þá hæfileika sem búa með manni.“ Hverskonar tónlist stundar þú? „Maðurinn minn gaf mér harmóniku í af- mælisgjöf þegar ég varð fertug. Ég talaði stundum í gríni um að læra á nikku þegar ég yrði gömul. Honum fannst ég ekki þurfa að bíða með það. Sem stelpa var ég í kór Öldutúnsskóla og fékk þar ákveðið tónlistaruppeldi. Einnig lærði ég í stuttan tíma á píanó. Svo komu börnin og námið til sögunnar – ég hef þó alltaf verið í kórum af og til – sem „mjóróma altrödd,“ ef svo má segja. Þegar ég fékk harmónikuna fór ég til Karls Jónatanssonar til að læra á hana. Við vor- um þrjú saman í tímum hjá honum, einn bifvélavirki, útfararstjóri og svo ég. Þetta var hið skemmtilegasta. Kalli var mjög hvetjandi og sagði fljótlega við mig að ég gæti orðið góður harmónikuleikari. Þótt ég hafi gaman af músik og dansi er ég samt ekkert náttúrubarn í tónlist. Ég hef þurft að hafa fyrir að læra á nikkuna og ég geri það bara fyrir mig. Kannski hefur maðurinn minn stundum verið þreyttur á að hlusta á mig hjakka á nikkuna. En mér fór fram. Svo var ég svo heppin að kynnast Hildi Petru Friðriksdóttur og hef spilað talsvert með henni og við gáfum saman út harmónikudisk fyrir nokkrum árum síðan. Einnig hef ég æft talsvert undanfarið með Haraldi Reynissyni, Halla Reynis – við erum raunar nýlega búin að taka upp lag saman – Motherland. Þar syngur hann og spilar á gítar og ég sé um harmónikuna og syng aðeins bakrödd. Við stefnum að því að taka upp fleiri lög og gefa út disk á þessu ári.“ Er tónlistariðkunin góð útrás fyrir stjórnandann? „Já hún er það. Stundum þegar ég spila finn ég innra með mér ríka hamingjutilfinningu. Sú tilfinning kemur ekki til manns á hverjum degi. Ég segi ekki að ég sé ekki ham- ingjusöm í starfi mínu hjá VIRK – en það er öðruvísi hamingja. Ég veit að á einhverjum tímapunkti fer VIRK frá mér – en ég vona að harmónikan yfirgefi mig aldrei.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Fólk sem hefur verið í þjónustu hjá VIRK talar stundum um að sköpun hafi fært því bata.“ Hildur Petra og Vigdís við upptökur. 49virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.