Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 50
AUÐUR ÞÓRHALLSDÓTTIR sviðsstjóri mannauðsmála hjá VIRK
HJÁ VIRK STARFA NÚ 45 STARFSMENN
Í 40,2 STÖÐUGILDUM, 42 KONUR OG
3 KARLAR. RÁÐGJAFAR VIRK SEM
STARFA HJÁ STÉTTARFÉLÖGUM OG
LÍFEYRISSJÓÐUM UM ALLT LAND ERU
51 TALSINS Í 49,4 STÖÐUGILDUM, 47
KONUR OG 4 KARLAR.
MANNAUÐUR
VIRK
VELFERÐ
OG LIÐSHEILD ER LYKILL AÐ
FARSÆLD
Síðustu ár hefur VIRK unnið markvisst að bættri velferð og eflingu liðsheildar
meðal starfsmanna til að auka vellíðan og starfsánægju.
Samskiptasamningur
Á vordögum síðasta árs var haldin vinnustofa með starfsmönnum um mikilvægi
góðra samskipta á vinnustað og við gerðum með okkur „Samskiptasamning“.
Tilgangur með gerð svona samnings er að starfsmenn upplifi vellíðan í vinnu
og sálrænt öryggi og ákveði í sameiningu hvernig hegðun þeir vilji að ríki á
vinnustaðnum. Afurð þessa dags voru níu innihaldsríkar setningar sem við
erum stolt af og starfsmenn hvattir til að starfa eftir, ásamt gildum VIRK sem
eru metnaður, virðing og fagmennska.
Skipulagður sveigjanleiki
VIRK fór einnig í lok síðasta árs af stað með tilraunaverkefni til sex mánaða
sem kallast „Skipulagður sveigjanleiki“. Þetta verkefni miðar að því að því að
auka starfsánægju og aðstoða starfsmenn við að takast á við vinnutengt álag.
Við viljum vera í fararbroddi vinnustaða sem stíga fram og takast á við þá streitu
sem er á vinnumarkaði og tölur VIRK vitna til um.
50 virk.is