Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Side 56

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Side 56
námskeiðið en sú niðurstaða skrifast á mig sjálfa. Farið var í Word, Excel og eitt- hvað fleira á þessu byrjunarnámskeiði – ég hreinlega náði ekki að fylgjast með að gagni. Hugmyndin að baki tölvunáminu var að ef ég hefði tölvukunnáttu gæti ég hugsanlega unnið á skrifstofu. Það hefði ég ekki getað. Ég sagði bæði ráðgjafanum hjá VIRK og kennaranum á námskeiðinu frá þeirri niðurstöðu minni. Eigi að síður þótti mér þetta bæði skemmtileg og áhugaverð reynsla.“ Ertu búin að ná heilsu? „Ef ég passa mig og geri bakæfingar sem mér voru kenndar þá gengur þetta. Fyrir kemur að ég leggst á bakið í vinnunni og geri æfingar. Um daginn voru tvær dömur í sundlauginni. Þær sáu mig á gólfinu og fóru að hvíslast á. Svo komu þær til mín til að athuga hvort ekki væri allt í lagi með mig. Ég sagði svo vera – ég væri bara að gera æfingar.“ Þú ert sem sagt farin að vinna? „Já, ég er komin í vinnu og það fyrr en ég bjóst við. Ég fékk starf við Sundlaug Sjálfs- bjargarheimilisins að Hátúni 12. Þessi vinna var auglýst. Ég var þá í sundleikfimitímum Gigtarfélagsins í umræddri sundlaug. Ég fór að spyrja um þessa vinnu, í hverju hún fælist og svo framvegis. Svo hugsaði ég: „Æ – ég er ekkert að sækja um þetta.“ Nokkru síðar kom ég í sundleikfimi og frétti að búið væri að ráða í starfið. Í sumar kom ég svo í laugina í leikfimi hjá Gáska. Ég var að fara ofan í laugina þegar sundlaugarvörðurinn kallaði á mig og bað mig að ræða við sig. Ég gerði það. „Þú sóttir aldrei um vinnuna?“ sagði vörðurinn. Nei, ég sagðist ekki hafa gert það. „Hefur þú áhuga á starfinu?“ Já, ég kvaðst hafa það. „Viltu þá ekki bara fara upp og tala við yfirmanninn?“ Jú, ég vildi það. „Má ég samt ekki klára tímann fyrst og fara svo?“ sagði ég. Það var velkomið. Ég ræddi svo við yfirmanninn og niðurstaðan varð að ég gerðist sundlaugarvörður við Sjálfsbjargarlaugina. Segja má að ég hafi farið „upp úr djúpu lauginni og stokkið svo beint út í hana aftur“. Mér líkar þetta starf harla vel. Það var vel tekið á móti mér. En starfið er ólíkt því sem ég hef áður stundað. Ég hef þurft að venjast því að taka það mun rólegar en áður – miðað við starfið á öldrunarheimilinu.“ Væri ekki í vinnu nema fyrir VIRK Hvað viltu segja um reynslu þína af samstarfinu við VIRK? „Þegar ég fékk starfið sem sundlaugarvörður var ég komin á það stig að ráðgjafinn og ég vorum farin að ræða um að ég mætti fara að líta í kringum mig – sækja um og þannig lagað. Svo fékk ég bara þessa vinnu upp í hendurnar. Ég er í hundrað prósent vinnu og ræð við það. Slíkt hefði ég ekki getað hefði ég ekki leitað til VIRK. Gott er líka að vita að ég get rætt við ráðgjafann minn ef ég þarf næsta árið. Hvað snertir reynslu mína af VIRK þá var það „heildarpakkinn“ sem virkaði fyrir mig. Sú samhæfing sem sérfræðingar VIRK hafa komið á fyrir fólkið sem leitar þar samstarfs. Öll meðferðarúrræðin sem mér voru fengin unnu svo vel saman að þau hafa hjálpað mér til betri heilsu og nýs lífs. Framtíðarsýnin er því björt.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir 83% Eru ánægð með þjónustu VIRK 90% Finnst viðmót ráðgjafa VIRK gott 83% Finnst ráðgjafar VIRK vera hvetjandi Úr þjónustukönnun Gallup meðal einstaklinga í þjónustu VIRK haustið 2017. 56 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.