Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 57
VIRK
ÞJÓNUSTUAÐILAR
ÁSTA SÖLVADÓTTIR verkefnisstjóri hjá VIRK
V
IRK átti sem fyrr í árangursríku
samstarfi við fagfólk um land
allt á árinu 2017. Rúmlega
500 þjónustuaðilar störfuðu
sem samstarfsaðilar VIRK á landsvísu á
árinu og tekur fagfólk á hverju landsvæði
virkan þátt í þróun faglegrar þjónustu í
starfsendurhæfingu í samvinnu við ráðgjafa
og sérfræðinga VIRK.
Á árunum 2017-18 er unnið að því
að þrepaskipta faglegri þjónustu í
starfsendurhæfingu á vegum VIRK. Með
því að þrepaskipta þjónustu er hægt að
mæta þörfum einstaklinga á sem bestan
hátt með því að bjóða upp á þjónustu sem
er sniðin að heilsubresti/ hindrunum hvers
og eins. Má þar nefna allt frá almennri
þjónustu sem hentar flestum, til sérhæfðs
þverfaglegs inngrips ef um alvarlegan
vanda er að ræða1. Þrepaskiptingin er liður
í innleiðingu nýs upplýsingakerfis hjá VIRK
sem tekið verður í notkun á vormánuðum
2018 og er ætlað að auka skilvirkni og gæði
þjónustunnar. Við þróun á þrepaskiptingu
þjónustu í starfsendurhæfingu hjá VIRK
voru eftirfarandi leiðbeiningar hafðar
til hliðsjónar: Klínískar leiðbeiningar í
sálfræðimeðferð og sjúkraþjálfun frá
National Institute for Health and Care
Excellence (NICE)2, ICF flokkunarkerfið
(Alþjóðlega flokkunarkerfið um færni,
fötlun og heilsu)3, Hæfnirammi um íslenska
menntun4 og gæðahandbók VIRK.
Klínískar leiðbeiningar (clinical guidelines)
eru leiðbeiningar um verklag, unnar á
kerfisbundinn hátt, til stuðnings starfsfólki
í heilbrigðisþjónustu og almenningi við
ákvarðanatöku við tilteknar aðstæður. Þær
taka mið af bestu þekkingu á hverjum tíma
og eru lagðar fram í því skyni að veita sem
besta meðferð með sem minnstri áhættu
án óhóflegs kostnaðar5. ICF flokkunarkerfið
er gefið út af Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni WHO til að samræma skráningu á
heilsutengdri færni og færniskerðingu og
lýsir færni frá ólíkum sjónarhornum6.
ÁRANGURSRÍKT
SAMSTARF VIÐ
FAGFÓLK UM
LAND ALLT OG NÝ
ÞREPASKIPTING
ÞJÓNUSTU Í
STARFSENDUR-
HÆFINGU
57virk.is