Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 59
VIRK
Heimildir
1. Waddell, G. Burton, A.K. og Kendall,
N.A.S. (2008, bls. 40). Vocational
rehabilitation. What works, for whom,
and When? https://www.gov.uk/
government/uploads/system/uploads/
attachment_data/file/209474/hwwb-
vocational-rehabilitation.pdf
2. Klínískar leiðbeiningar frá National
Institute for Health and Care
Excellence (NICE): https://www.nice.
org.uk/guidance
3. Alþjóðlega flokkunarkerfið um færni,
fötlun og heilsu (ICF-International
Classification of Functioning,
Disability and Health): https://www.
landlaeknir.is/tolfraedi-og-rannsoknir/
flokkunarkerfi/icf/
4. Hæfnirammi um íslenska menntun
(2016). https://www.stjornarradid.is/
media/menntamalaraduneyti-media/
media/frettatengt2016/Haefnirammi-
um-islenska-menntun.pdf
5. Embætti landlæknis (sótt 13.2.2018)
á: https://www.landlaeknir.is/
gaedi-og-eftirlit/heilbrigdisstarfsfolk/
klininskar-leidbeiningar/
6. ICF (sótt 13.2.2018) á: https://www.
landlaeknir.is/tolfraedi-og-rannsoknir/
flokkunarkerfi/icf/
7. Áhugasviðsgreining: http://www.
naestaskref.is/
8. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins: http://
frae.is/
Um 100 símenntunaraðilar um allt land
veita ráðgjöf og fræðslu sem auka möguleika
einstaklinga á vinnumarkaði. Þjónustan felur
meðal annars í sér áhugasviðsgreiningar7,
hæfnigreiningar, raunfærnimat, nám á
vottuðum námsleiðum8 auk fjölmargra
styttri námsleiða og námskeiða sem auka
möguleika á vinnumarkaði.
Fjöldi þjónustuaðila veitir einnig atvinnu-
tengda þjónustu og má þar helst nefna
vinnuprófanir, úttekt og ráðgjöf og stuðning
á vinnustað við endurkomu til vinnu sem og
úrræði sem miða að því að búa einstaklinga
undir atvinnuleit. Eins veita fjölmargir fag-
aðilar ýmsa ráðgjöf og meðferð. Hópur
útlendinga leitar einnig til VIRK og er veittur
ýmiss sértækur stuðningur fyrir þennan hóp
t.d. túlkaþjónusta og íslenskunámskeið.
VIRK er með samning við átta starfsendur-
hæfingarstöðvar um allt land en það er liður
í því að tryggja að til staðar sé fagleg þekking
og reynsla á sviði starfsendurhæfingar um
allt land. Á starfsendurhæfingarstöðvum er
unnið með þær hindranir sem eru til staðar
og samhliða því unnið með styrkleika
einstaklings og þeir tengdir við möguleg
störf á vinnumarkaði. Samstarf VIRK og
starfsendurhæfingastöðva byggist á reglu-
legum þverfaglegum rýnifundum þar sem
farið er markvisst yfir mál einstaklinga sem
eru í þjónustu starfsendurhæfingarstöðva
á vegum VIRK. Farið er yfir hvað hefur
áunnist og lagðar línur varðandi framhaldið.
Markmið samvinnunnar er að auka og bæta
upplýsingaflæði á milli endurhæfingaraðila,
auka skilvirkni og fagleg vinnubrögð með
það fyrir augum að bæta þjónustu við
einstaklinginn. Þetta aukna samstarf hefur
gefið góða raun.
Kaup VIRK á þjónustu fagaðila hafa aukist
mikið á undanförnum árum en árið 2017
námu þau rúmlega 1.259 milljónum króna
og hækka frá árinu áður eins og sjá má
á mynd 2. Hækkun milli ára skýrist að
stærstum hluta vegna fjölgunar einstaklinga
í þjónustu auk þess sem enn stærri hópur
glímir við fjölþættan vanda. Kostnaður
vegna sálfræðiþjónustu hefur til að mynda
aukist og má rekja hækkunina meðal
annars til þyngri hóps í þjónustu. Vorið
2017 var haldin hugmyndasamkeppni til
að auka fjölbreytni í þjónustu fyrir ungt fólk.
Í kjölfarið hefur orðið aukning á kaupum
á slíkri þjónustu. Einnig hefur kostnaður
vegna aðkeyptrar þjónustu hækkað í takt
við almennar launahækkanir. Mynd 3
sýnir skiptingu útgjalda milli mismunandi
tegunda af þjónustu á árinu 2017.
Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2017
vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum
Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum
um allt land á árunum 2010-2017
Sálfræðiþjónusta
Sjúkraþjálfun
Sérhæfð starfsendurhæfingar-
úrræði
Nám og námskeið
Heilsuefling / líkamsrækt
Atvinnutengd úrræði
Önnur úrræði
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Útgjöld á ári
í millj. kr.
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Mynd 2
Mynd 3
19%
5%
62%
7%
3%
2% 2%
59virk.is