Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 63
VIRK
Hver rannsóknin
á fætur annarri
síðustu áratugi hefur
sýnt að Íslendingar
fá allt of lítið af þessu
mikilvæga vítamíni úr
fæðunni og að styrkur
D-vítamíns í blóði þeirra
sem hvorki taka lýsi né
önnur fæðubótarefni
er töluvert undir
viðmiðunarmörkum.“
methionine (SAMe)) sem tengist ónæmi og
lundarfari35.
Svo virðist sem tölur um algengi B-12 skorts
séu nokkuð á reiki. Rannsóknir í BNA og
Bretlandi sýna að u.þ.b. 6% fólks sem er
eldra en 60 ára séu með B12 skort (B-
12 < 148 pmol/L) en nær 20% mælast á
mörkunum (B-12: 148–221 pmol/L) seinna
á lífsleiðinni36. Algengið er þó mun meira
samkvæmt stórri bandarískri rannsókn sem
enn er í gangi (Framingham Offspring Study)
og tekur til 3.000 manns á aldrinum 26 til
83 ára. Tæp 40% þátttakenda mælast með
lág gildi B-12 vítamíns (˂258 pmol/L) og tæp
9% með staðfestan skort. Rannsakendur
telja að B-12 skortur sé vangreindur og setja
fram vangaveltur varðandi hver klínísk mörk
skorts ættu að vera37.
Grænmetisætur eru í meiri hættu en aðrir að
fá B-12 skort sem yfirlitsrannsókn Pawlak
og félaga frá árinu 2014 staðfesti m.a. og
mæla þeir með því að skimað sé fyrir B12
skorti á meðal þessa hóps38. Á vef Harvard
Medical School er fjallað um B-12 skort
og að alvarlegur skortur geti valdið miklu
þunglyndi (deep depression), ofsóknar-
brjálæði og ranghugmyndum ásamt minnis-
skorti, þvagleka, minnkuðu bragð- og
lyktarskyni, dofa og náladofa í útlimum auk
jafnvægisvanda1.
loftháðrar getu í dýrum og mönnum sem
er talið skýrast helst af minnkaðri getu til
súrefnisflutnings. Orka og framleiðni var
einnig minnkuð og stafar líklega af blóðleysi
og minnkaðri súrefnisflutningsgetu. Höf-
undar telja að þeir líffræðilegu þættir sem
liggja að baki áhrifum járnskorts á vinnugetu
séu nægjanlega sterkir til að réttlæta
inngrip til að bæta járnbúskap vinnuaflsins
almennt33.
Viðmiðanir varðandi greiningu og meðferð
járnskorts eru mjög breytilegar. Peyrin-
Biroulet og félagar rýndu allar tiltækar
viðmiðanir varðandi meðhöndlun járnskorts
á heimsvísu. Niðurstaðan var að svo virðist
sem miða skuli við 100 μg/L sem járngildi í
blóði í flestum tilfellum þegar um járnskort
er að ræða34.
B-12 skortur
B12-vítamín, einnig nefnt kóbalamín, er eitt af
B-vítamínunum átta sem hjálpa líkamanum
að breyta fæðu í eldsneyti eða glúkósa sem er
notaður til að mynda orku. B-12 er sérstaklega
mikilvægt til að viðhalda heilbrigðum
taugafrumum og aðstoðar við fram-
leiðslu erfðaefnis líkamans; DNA og RNA.
B-12 ásamt B-9 aðstoða við myndun rauðra
blóðkorna, stuðla að betri nýtingu járns í
líkamanum og mynda efni (S-adenosyl-
63virk.is