Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 75
VIÐTAL
„Hér líkar mér rosalega vel, mjög gott fólk
hérna,“ segir Bergljót, starfið hjá Bakkanum
er ekki fyrsta RTR hennar, hún vann t.d.
áður á Vitatorgi og víða í afleysingum. „Hér
er mjög gott viðmót starfsmanna og ég fékk
góðar leiðbeiningar þegar ég byrjaði. Hér
hjálpa allir öllum og mér skilst að þeir séu
mjög ánægðir með mig.“
Bergljót vinnur frá kl. 10 til 13 hvern virkan
dag og segir vinnuna gera manni gott,
sérstaklega á svona góðum stað. „Það
er mjög gott að hafa Geysi vegna þess að
rútínan sem fylgir því að mæta þar hjálpar
manni út í lífið aftur. Klúbburinn Geysir er
þannig að þegar maður kemur og er ekki
alveg til í að gera eitthvað þá er maður alltaf
hvattur til þess að gera eitthvað, taka þátt.
Og ef einhver treystir sér ekki þá gerum við
það saman.“
Þórunn Ósk framkvæmdastjóri Klúbbsins Geysis og Bergljót starfsmaður Bakkans.
Klúbburinn Geysir
er þannig að þegar
maður kemur og er
ekki alveg til í að gera
eitthvað þá er maður
alltaf hvattur til þess að
gera eitthvað, taka þátt.
Og ef einhver treystir sér
ekki þá gerum við það
saman.“
með 25% starfshlutfall sem hefur hentað
mjög vel. Fólk er með misjafna getu og
mikilvægt er að geta byrjað í lágu starfs-
hlutfalli, fengið reynsluna og fundið að það
geti meira.“
„Starfsfólk klúbbsins lærir störfin fyrst og
þjálfar svo einstaklingana í störfin sem þeir
síðan gegna í allt að eitt ár,“ segir Þórunn
Ósk „Við fylgjum einstaklingunum mjög
vel eftir fyrstu skrefin á vinnustaðnum og
viðkomandi er ekki einn í vinnu fyrr en
hann treystir sér til. Við erum líka í mjög
góðu sambandi við vinnuveitandann og
veitum stuðning líka, erum alltaf til staðar.
Einstaklingurinn er á sömu forsendum og
almennir starfsmenn, nýtur sömu kjara og
réttinda, en ef hann getur ekki sinnt starfinu
sökum síns sjúkdóms þá hlaupa starfsmenn
klúbbsins í skarðið fyrir viðkomandi eða
félagar sem hafa gegnt starfinu áður.
Þannig er tryggt að sjúkdómurinn verður
ekki til þess að viðkomandi missi vinnuna
og vinnuveitandanum er tryggt 100%
vinnuframlag.“
RTR ráðningarfyrirkomulagið er notað víða
um heim með mjög góðum árangri, bæði fyrir
félaga klúbbhúsanna og atvinnurekendur.
Frá upphafi hafa um 50 Geysisfélagar starfað
í Ráðningu til reynslu. Yfir 100 félagar stunda
nú vinnu á almennum vinnumarkaði.
„Auðveldara er að ná í störfin en erfiðara að
halda þeim. Það kemur oftar en ekki fyrir
að viðkomandi einstaklingur er svo rosalega
góður í starfi sínu að fyrirtækið getur ekki
hugsað sér að missa hann og ræður til
framtíðar í fullt starf en Klúbburinn Geysir
„missir“ viðkomandi starf og þarf að finna
nýtt starf. Þá þurfum við að leita að nýjum
störfum sem er reyndar lúxusvandamál,“
sagði Þórunn Ósk.
Vinnan gerir manni gott
Ársrit VIRK leit einnig við í Bakkanum vöru-
hóteli og tók Bergljótu Elíasdóttur tali sem
hóf störf þar í gegnum Klúbbinn Geysi og
Ráðning til reynslu í nóvember 2016.
75virk.is