Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 39
Fagið03/03
í júlí og ágúst, og algengustu komudagar eru þriðjudagar og laugar-
dagar. Karlar eru í meirihluta þeirra sem koma á bráðamóttöku, eða
55%. Athygli vekur að frá 2010 hefur orðið 5% aukning í aldurs-
hópnum 60 ára og eldri. Á sama tíma hefur orðið mjög mikil aukning
erlendra skemmtiferðaskipta til Reykjavíkur, en mögulega gæti það
skýrt hluta aukningarinnar í þessum aldurshópi. Vonir standa til að
hægt sé að nýta niðurstöðurnar við þróun viðeigandi þjónustu út frá
þörfum erlendra ferðamanna, auk þess að skipuleggja markvissar
forvarnir út frá greiningu á aðstæðum slysa og veikinda, að sögn
Guðbjargar.
Erlendir ferðamenn þurfa meiri þjónustu og hjúkrun
Fram kom að skortur er á rannsóknum á erlendum ferðamönnum á
bráðamóttöku, hjúkrunarþörfum þeirra og úrræðum sem þeim standa
til boða. Þörf er á að byggja upp betri þjónustu og bæta skráningu
ferðamanna sem leita til bráðamóttöku að sögn Helgu Þóreyar
Friðriksdóttur og Dagnýjar Lóu Sighvatsdóttur, fjórða árs nema í
hjúkrunarfræði. Þær rannsökuðu hjúkrunarþarfir og úrræði erlendra
ferðamanna á tímabilinu 21. maí til 31. ágúst í fyrrasumar í kjölfar
þess að ákveðið var að bæta skráningu á þjónustu við ferðamenn á
bráðamóttöku. Reynslan hefur sýnt að erlendir ferðamenn, með sam-
bærilegar komuástæður og Íslendingar, þurfi meiri þjónustu og hjúkr-
un. Helstu niðurstöður þeirra eru að hjúkrunarþarfir ferðamanna
geta verið flóknari vegna kröfu spítalans um varnareinangrun þeirra
einstaklinga sem hafa verið á sjúkrahúsi erlendis síðustu sex mánuði.
Enn fremur eru hjúkrunarþarfirnar vegna tungumálaörðugleika, ólíks
menningarbakgrunns, vegna aukinnar umönnunar aðstandenda og
sálrænnar skyndihjálpar – þá sér í lagi í kjölfar alvarlegra atburða.