Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 18
Fólkið03/06
myndsköpunin verður til
„Myndsköpunin er byggð á aðferðum Carl Gustav Jungs, sem hafði
mikil áhrif á listamenn á sínum tíma. Þetta nýtist best þeim sem eiga
erfitt með að tjá sig munnlega, eru langþreyttir, eða með langvinna
verki eða hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun. Gott fyrir fólk sem
upplifir depurð, þunglyndi og kvíða eða er haldið streitu og öðrum
sálrænum vandamálum,“ útskýrir Gréta.
„Í myndsköpuninni nægir einn dagur til að læra aðferðina. Fólkið
hér velur sér að fara í myndsköpunina og svo finnst því þetta vera
gefandi og gaman og það smitar út frá sér þannig að það kemur aftur
og fleiri koma. Það er mjög gaman að koma aftur því þá veit fólk út á
hvað þetta gengur,“ segir Gréta og brosir. „Í myndsköpuninni er fólk
að vinna með liti og hver litur stendur fyrir ákveðnar tilfinningar. Blár
er heilun og grænn er líka heilun, kærleikurinn er svo bleikur. Gulur
er til dæmis gleðin og þekking, maður á að vera í gulu þegar maður
fer í próf,“ segir Gréta glettin á svipinn.
Það sem gerist í myndsköpuninni
„Fólkið kemur, fær málningu og pensla, byrjar á hugleiðslu til að
öðlast ró og fókusa inn á við. Ég fer yfir ákveðin atriði með þeim til að
opna fyrir hvað þau eru að fara út í. Fólk er hérna fyrir sig. Svo byrjar
það að mála. Þetta er algjör galdur og alveg heilagt. Algjör þögn og
það má helst ekki tala eða trufla aðra. Þau mega nota hendurnar,
svampa og grófa pensla til að mála með. Ef þau nota litla pensla þá
eru þau farin að nota heilann en ekki tilfinningarnar. Ég vil að þau
láti flæða, skvetti og liti og hugsi alls ekki neitt, noti tilfinninguna til
að velja litina,“ segir hún og baðar út höndunum af áhuga.
Hugleiðslan og táknin
„Áður en þau byrja nota ég hugleiðslu, jing og jang. Hringinn, tákn
fyrir konuna, sem snýr inn á við og örina sem er karleðlið og snýr út
á við. Ég blanda gjörhyglinni með, það er gott að anda inn núinu og
reyna að sætta sig við það. Hringurinn er það að halda utan um. Við
konurnar notum karleðlið til að vera ákveðnar, setja okkur markmið
og fara þangað. Hér á heilsustofnunum búum við til nýja hringi,
náum í kraft til að geta gert það. Myndsköpunin er fyrir einstak-
linginn sjálfan til að tjá sig, tilgangurinn er ekki greining. Í hverri