Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 20
Fólkið05/06 „Kynning eftir hádegið er alveg jafn merkileg og málningin, þá geta aðrir í hópnum rætt þær tilfinningar sem koma þegar farið er yfir hverja mynd fyrir sig. Ekki tilfinningar þess sem gerði myndina heldur hvaða tilfinningu myndin speglar. Þetta er góð sjálfstyrking, jákvæð og rétt því fólk vill vera jákvætt. Það að fá að sitja og spekúlera í litunum og myndunum með hinum er gott. Þá eru líka allir saddir,“ segir hún og skellihlær. Það sem myndsköpunin gefur fólki „Það sem fólk fær út úr þessu er að þetta bætir svefn, losar um og er úrvinnsla tilfinninga,“ segir Gréta. „Það að nota liti, leyfa sálinni eða undirvitundinni að velja litina er losandi, maður verður sáttari við sjálfan sig. Verkirnir hverfa ef fólk stendur og málar, það gleymir sér algerlega og að nota sinn eigin sköpunarkraft gefur lífinu annað veldi, opnar dyr inn í betri líðan, eykur sjálfstilfinningu. Mér finnst það að fá betri sjálfs- tilfinningu vera svo mikilvægt, líka í stuðningsviðtölum“ segir hún. „Þegar fólk er í angist út af sjúkdómi getur fólk málað sig burt frá því. Áföll geymast ómeðvitað í minnisbankanum og maður þarf að anda inn og anda frá sér eins og hringrás náttúr- unnar til að hreinsa þetta frá sér. Ég nota mikið náttúruna í hugleiðsl- unum, þú ert jörðin, tréð og hafið sem er með þessa undiröldu, sem í er kraftur falinn. Undiralda sem þú sýnir ekki, ert að fela, en vatnið gusast svo á klettana og myndar brim. Það þarf að leyfa briminu að fara út og nota litina til þess. Stundum er alveg þoka og þú sérð ekki neitt, þá verður maður líka að geta beðið rólegur,“ segir hún sefandi röddu, alveg komin á kaf í efnið. „Sjáðu til,“ segir Gréta, „mörgum líður illa vegna streitu, hafa of mikið að gera, of mikið áreiti, þetta þekkja allir og við það dofnar sjálfstilfinningin. Þegar við sköpum eykst ímyndunaraflið, sem er hjá fullorðnu fólki, tengingin við lífskraftinn. Þegar þessi kraftur er notaður þá losnar um innri höft, líkamshiti eykst, blóðið streymir og „mörgum líður illa vegna streitu, hafa of mikið að gera, of mikið áreiti, þetta þekkja allir og við það dofnar sjálfstilfinningin.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.