Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 33
Fagið08/09
að sú þekking og færni, sem við leitumst við að laða fram hjá nem-
endum, sé tengd siðfræðilegum skilningi og þeim sjálfum. Það er sá
skilningur sem nemendur leggja til grundvallar er þeir beita þeirri
þekkingu sem þeir hafa tileinkað sér. Þá eru í forgrunni siðfræðilegar
spurningar sem tengjast því hvernig heilbrigðisþjónustan er skipulögð
og hvernig hjúkrun er útfærð til að hjálpa þeim sem þarfnast aðstoðar
til að líða vel.
Litið til framtíðar
Eftir því sem liðið hefur á tuttugustu og fyrstu öldina hefur komið
í ljós að heilbrigðisþjónustan verður stöðugt flóknari. Gerð er krafa
um breiðari þekkingu og skilning, notkun tækni hefur aukist og
skilningur á siðfræðilegum álitamálum eykur kröfur um færni í
samskiptum. Meðalaldur lengist en samhliða hækkandi aldri verða
veikindi margþættari og meðferð flóknari. Ýmis sálfélagsleg við-
fangsefni njóta nú meiri athygli og leitast er við að hjálpa fólki við að
takast á við erfiða reynslu. Hvatt er til þess að almenningur temji sér
heilsusamlega lifnaðarhætti. Þessar breytingar kalla á aukna menntun
hjúkrunarfræðinga og breyttar áherslur í hjúkrunarfræðinámi (Benner
o.fl., 2009). Hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar þurfa að búa yfir
yfirgripsmikilli þekkingu og geta nýtt sér möguleika upplýsingatækn-
innar til að finna bestu þekkingu sem völ er á. Þeir þurfa að kunna að
framkvæma flókin verk þar sem tekið er tillit til einstaklingsins sem
verkið beinist að. Loks þurfa nemendur að búa yfir siðfræðilegum
skilningi.
HeimiLdir
Aðalbjörg Finnbogadóttir og Christer
Magnusson (2014). Hneykslið í
Staffordshire og afleiðingar þess.
Tímarit hjúkrunarfræðinga, 90(1),
16-20.
Allen, D. (1997). Nursing, knowledge and
practice. Journal of Health Services
Research Policy 2(3), 190-193. DOI:
10.1177/135581969700200311.
Benner, P., Sutphen, M., Leonard, V., og
Day, L. (2009). Educating nurses: A
call for radical transformation. San
Francisco: Jossey-Bass.
Brooks, J., og Rafferty, A.M. (2010).
Degrees of ambivalence: Attitudes
towards pre-registration university
education for nurses in Britain,
1930-1960. Nurse Education Today,
30, 579-583.
Francis, R. (2013). The mid Staffordshire
NHS foundation trust public inquiry:
Excecutive summary. Sótt 12. janúar