Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 37
Fólkið02/03 Háskólinn á Akureyri og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins munu í haust bjóða upp á nýja námsbraut fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja sérhæfa sig í heilsugæsluhjúkrun. Samningur um námið var undirritaður á Akureyri af Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra, Svanhvíti Jakobsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Eyjólfi Guðmundssyni rektor Háskólans á Akureyri. Sigríður Sía Jónsdóttir, lektor við HA, mun hafa umsjón með náminu. Námið er til eins árs og lýkur með 60 eininga diplómagráðu. Sigríður Sía segir að undirbúningur námsins hafi staðið yfir í nokkuð langan tíma. „Upphaflega hóaði Stefán Þórarinsson fyrrverandi yfirlæknir á Egilsstöðum saman fólki til að velta því fyrir sér hvað væri hægt að gera til að efla heilsugæsluna, sérstaklega á landsbyggðinni. Þessi hópur hittist nokkrum sinnum og lagði grunn að þverfaglegri fræðilegri námslínu; Heilsugæslu í héraði. Þegar Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hafði samband, varð úr að þróa tvískipta námslínu, annars vegar fræðilega og hins vegar þetta sérnám í heilsugæsluhjúkrun sem samningur- inn nær til.“ Sérnámið samanstendur af fræði- legu námi við Háskólann á Akureyri og klíniskri þjálfun á heilsugæslustöð hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins undir handleiðslu lærimeistara. „Markmiðið er að efla klíníska hæfni hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu og styrkja þannig þverfaglega teymisvinnu innan heilsugæslunnar, svo sem í bráða- þjónustu, þjónustu við tiltekna sjúklingahópa og á sviði forvarna og heilsuverndar. Með þessu er námsframboð í hjúkrunarfræði aukið og nýir möguleikar skapast fyrir sérhæfða starfsmenn til að mennta sig samhliða starfi,“ segir Sigríður Sía. sigríður sía jónsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, mun hafa umsjón með náminu. Hún segir að væntanlegt nám komi til með að efla heilbrigðiskerfið enn frekar. Myndir: Karl Eskil Pálsson.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.