Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 43
Fagið02/06
Þegar Landspítalinn tók til starfa 1930 varð mikil breyting á tilhögun
hjúkrunarnáms á Íslandi. Hér er endurbirt grein sem fjallar um
stöðu mála á þeim tíma. Í haust verður kennt eftir nýrri námskrá í
hjúkrunarfræðideild HÍ og því ástæða til að rifja upp eldri umræður
um námið. Sigríður Eiríksdóttir, höfundur greinarinnar, var mikil
kjarnakona og starfaði ötullega fyrir hjúkrunarfélagið. Hún var móðir
Vigdísar Finnbogadóttir og er þessi birting tileinkuð Vigdísi á 85 ára
afmælisári hennar. Vigdís var enn ungbarn þegar Sigríður ritaði
eftirfarandi grein og birti í Tímariti Félags íslenskra hjúkrunarkvenna í
nóvember 1930.
UndanFarin ár hefir tilhögun íslensks hjúkrunarnáms
verið nokkuð frábrugðin hjúkrunarnámi annara þjóða, er
hafa þriggja ára nám á stefnuskrá sinni. Orsökin til þessa
er sú, að íslensk sjúkrahús hafa hingað til ekki getað veitt
fullkomið hjúkrunarnám í samræmi við kröfur þær, sem
nú eru gerðar um hinn menntaða heim. Hafa íslenskir
hjúkrunarnemar því eftir tveggja ára hjúkrunarnám á
Íslandi orðið að ferðast til nágrannalandanna og taka
lokanám sitt þar.
Þessi ráðstöfun mun nú vera flestum íslenskum
hjúkrunarkonum kunn og er því ekki ástæða til að
orðlengja um hana hér, en tilgangur minn með grein
þessari er sá, að leiða athygli félagssystra minna að því, að hjúkr-
unarnámið á íslenskum sjúkrahúsum til þessa ekki hefir verið eins
ákjósanlegt og skyldi. Tel ég mjög áríðandi að ræða mál þetta í
hjúkrunarblaðinu einmitt nú, þar sem allmikil breyting verður á
hjúkrunarnáminu þegar Landsspítalinn tekur til starfa. Í því sambandi
er það mér ánægja að geta gefið félagskonum þær upplýsingar, að nú
lítur út fyrir að langþráð von okkar sé að rætast, sem sé að íslenskt
hjúkrunarnám fari fram eingöngu hér á landi. Stjórn F.Í.H. og starf-
rækslunefnd Landsspítalans hefir haft fund saman og nefndin hefir á
þeim fundi samþykkt í öllum aðalatriðum tillögur stjórnarinnar um
nám íslenskra hjúkrunarkvenna. Um leið hefir starfrækslunefndin
farið þess á leit við stjórn F.Í.H. að hún, eins og að undanförnu, ráði
hjúkrunarnemana og hafi umsjón með flutningi þeirra og námi.
Væri nú svo, að íslenskt hjúkrunarnám ætti eingöngu að fara fram á
Landsspítalanum og félagið hefði í hyggju að kippa algerlega að sér
Sigríður Eiríksdóttir