Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 44
Fagið03/06
hendinni með útvegun hjúkrunarnema á þeim spítölum, sem hingað
til hafa verið í samvinnu við það, þá mætti grein þessi vera órituð, því
ekki er unt að ráða bót á því sem liðið er. En álit mitt er það, að þrátt
fyrir mikla misnotkun á hjúkrunarnemunum, sé það ekki rétt að neita
hinum stærri sjúkrahúsum landsins um þá hjálp, sem bæði er þeim
ódýrari og mun hentugri að mörgu leyti en annaðhvort vinnustúlkna-
hjálp eða eingöngu lærðra hjúkrunarkvenna. Einnig ætti flutningur
hjúkrunarnemanna að vera þeim sjálfum til mikils gagns, bæði hvað
þroska snertir og möguleika til þess að öðlast náin kynni af ýmsum
sérsjúkdómum þessara sjúkrahúsa (berkla, geðveiki etc.).
Á Landsspítalanum er gert ráð fyrir að væri 6 vikna forskóli og
eiga því allir hjúkrunarnemar, sem teknir verða til náms, að byrja
þar og dvelja fyrsta árið á
deildum Landsspítalans.
Annað árið er gert ráð fyrir að
nemarnir verði fluttir á milli
annara sjúkrahúsa og þriðja
árið eiga þeir að fara aftur til
Landsspítalans og ljúka námi
sínu þar, með munnlegu og
verklegu prófi. Þetta er vissu-
lega hagnaður fyrir sjúkrahúsin, því með því móti losna þau alltaf við
að fá nýja nema, en til þess að koma jöfnuði á námið, er stjórn F.Í.H.
neydd til að fækka nokkuð nemum á sjúkrahúsunum.
Nú vil ég leyfa mér að gera ofurlitla grein fyrir því, sem mér finnst
hafa farið aflaga í sambandi við hjúkrunarnámið undanfarin ár, og
vona ég að allir málsaðilar taki það með skilningi, og tel ég engan
vafa á því, að með því að ræða það í blaðinu, takist okkur að ráða
nokkra bót á því, sem miður hefir farið. Ég vil taka það fram, að ég
hefi þráfaldlega á fundum félagsins talað um þetta mál, svo þessi
„kritik“ mín hefir ekki farið fram á bak við tjöldin, enda vonaði ég í
lengstu lög, að ég myndi losna við að skrifa um það. Ég hefi undan-
farin ár haft með höndum umsóknir hjúkrunarnema, flutning þeirra
á milli spítala og loks komið þeim fyrir til lokanáms á erlendum
sjúkrahúsum. Mér er því kunnugt um undirstöðumenntun hjúkr-
unarnemanna þegar þeir sækja til námsins og einnig eru mér gefnar
skýrslur frá forstöðukonum erlendu sjúkrahúsanna, sem taka á móti
„Nú vil ég spyrja: Er þetta
ástand verjandi eða samboðið
núverandi menningarviðleitni
íslensku þjóðarinnar?“