Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 56
FÉlagið02/04
aðalFundur FÉlags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn á
Grand hóteli í Reykjavík, föstudaginn 18. maí 2015. Á dagskrá voru
venjuleg aðalfundarstörf. Á fundinn mættu 99 félagsmenn. Á fund-
inum voru samþykktir ársreikningar félagsins og óbreytt félagsgjöld
fram að næsta aðalfundi. Einnig voru samþykktir ársreikningar
minningarsjóða Kristínar Thoroddsen og Hans Adolfs Hjartarsonar
og Rannsókna- og vísindasjóðs hjúkrunarfræðinga. Engar tillögur
að lagabreytingum bárust fyrir fundinn. Ástæðan er fyrst og fremst
sú að endurskoða á lögin í heild sinni á næsta starfsári og verða þær
breytingar lagðar fyrir aðalfundinn 2016.
Samþykkt var starfsáætlun stjórnar FÍH 2015-2016. Eftirfarandi
eru helstu áherslur í starfi félagsins næsta starfsár:
Ákvarðanir og eftirfylgd kjaraviðræðna og kjarasamninga FÍH
við samningsaðila.
Úrvinnsla og eftirfylgd verkefnisins Ímynd, áhrif, kjör.
Undirbúningur heildarendurskoðunar á lögum félagsins fyrir
aðalfund 2016.
Aukaáhrif FÍH í ráðum og nefndum um skipulagningu
heilbrigðisþjónustu.
Unnið að fjölgun hjúkrunarfræðinga á Íslandi.
Vinna að stefnumótun FÍH varðandi:
w Símenntun og endurmenntun hjúkrunarfræðinga.
w Jafnréttismál.
w Alþjóðlegt samstarf.
Starfsáætlanir fagsviðs og kjara-og réttindasviðs sem og annarra
þátta í starfsemi félagsins má sjá á vefsvæði félagsins.
Á hverju ári er kosinn hluti stjórnar, en ekki fara allar kosningar
fram á aðalfundi félagsins. Á því ári, þegar oddatala er, er kjörinn
formaður félagsins og fulltrúar svæðisdeilda í stjórn. Formaðurinn er
kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu og fulltrúar svæðisdeilda eru kosn-
ir á aðalfundum svæðisdeilda. Aðeins eitt framboð barst til formanns
FÍH og var það frá sitjandi formanni, Ólafi G. Skúlasyni. Ólafur var
því sjálfkjörinn sem formaður félagsins til næstu tveggja ára.
Nýir fulltrúar svæðisdeilda í stjórn eru:
Austurlandsdeild: Ragnhildur Rós Indriðadóttir
Norðurlandsdeild: Kristín Thorberg