Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 64
Fagið06/14
Minni kvíði og þunglyndi
Færri innlagnir á sjúkrahús
Minni kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið.
Rannsókn sem gerð var á Reykjalundi sýndi góðan árangur
endurhæfingar í að draga úr mæði (Elfa Dröfn Ingólfsdóttir, 2010).
Endurhæfing getur einnig gefið sjúklingnum von um bætta getu
til sjálfsumönnunar (Coster og Norman, 2009). Þó að árangur
lungnaendurhæfingar sé ekki síst metinn huglægt af sjúklingi og
meðferðaraðila eru til ýmsir spurningalistar sem nýtast einnig til að
meta árangur. Þeir helstu eru:
SOBQ (Shortness of breath questionnaire/MAT listinn) til að
meta mæði
HAD listinn (Hospital anxiety and depression scale) til að
meta kvíða og/eða þunglyndi
CAT listinn (COPD Assessment test) til að meta áhrif sjúk-
dómsins á líðan og daglegt líf
Epworth til að meta dagsyfju.
endurhæfing og hvað svo?
Endurhæfing á lungnasviði Reykjalundar tekur yfirleitt 4-6 vikur. Á
þeim tíma er mikilvægt að undirbúa útskrift vel og þann félagslega
stuðning, hjúkrun og aðra meðferð sem sjúklingur þarf eftir að heim
er komið. Með því má styðja sjúkling í að vinna áfram að langtíma-
markmiðum sínum hvað varðar lífsmáta og bætta heilsu.
eftirfylgd
Eftirfylgd eftir útskrift getur átt sér stað í gegnum síma, með komu
á göngudeild Reykjalundar eða frá öðru heilbrigðisstarfsfólki, til
dæmis á göngudeild lungnasjúklinga á LSH eða í heimabyggð.
Þekking og yfirsýn hjúkrunarfræðinga gagnast vel til samhæfingar
þjónustu (Helga Jónsdóttir o.fl., 2011) og getur hjúkrun þannig styrkt
sjúklinga í að takast á við heilsufarsvanda. Þjónusta við langveika og
aðstandendur þeirra krefst samvinnu og samráðs milli fagfólks og
stofnana með áframhaldandi stuðningi til að mæta aðsteðjandi ógn
flókinna, langvinnra sjúkdóma. Slíkt samráð á vel við eftir lungnaend-
urhæfingu á Reykjalundi.