Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 65

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 65
Fagið07/14 Langvinn lungnateppa Tíðni LLT hefur aukist ört á undanförnum árum og var árið 2014 algengasta ástæða innskriftar á lungnasviði Reykjalundar. Á Íslandi eru mun fleiri með LLT en þeir sem eru greindir með sjúkdóminn (Bryndís Benediktsdóttir o.fl., 2007) og reykingar eru helsta orsök hans. Helstu einkennin eru hósti, slímuppgangur og óeðlilega mikil mæði við áreynslu, sem hefur mikil áhrif á daglegt líf sjúklingsins og fjölskyldu hans. Einkennin ágerast hægt, yfir ár og áratugi, þannig að sjúklingurinn gerir sér oft ekki grein fyrir því að hann er með sjúkdóminn. Fyrsta skrefið til að snúa þessu ferli við er að upplýsa fólk um einkennin og greina hvort sjúkdómur er til stað- ar. Því næst þarf að fjarlægja orsaka- valda ef hægt er og hefja meðferð til að koma í veg fyrir frekari skerðingu og fötlun (Global initiative for chronic obstructive lung disease, 2015) Sjúkdómsgreining LLT er staðfest með öndunarmælingu sem hægt er að gera á öllum heilsugæslustöðvum á landinu. Allir sem eru eldri en 40 ára og hafa reykingasögu og einkenni frá öndunarfærum ættu að fara í þá ein- földu rannsókn. Mæling ein og sér, og samtal um niðurstöður hennar, getur verið hvatning til breyttra lífshátta hjá sjúklingi, til dæmis að hann hætti tóbaksneyslu. LLT er til staðar þegar hlutfall fráblásturs á einni sekúndu (FEV1) miðað við heildarútöndun (FVC) er undir 70% eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfja. Sjúkdómurinn er síðan flokkað- ur niður í fjögur alvarleikastig miðað við FEV1: „ I stig (væg teppa) - FEV1 ≥ 80% af áætluðu „ II stig (meðalteppa) - 50% ≤ FEV1 < 80% af áætluðu Langvinn lungnateppa (LLT) er algengur sjúkdómur í lungum sem hægt er að fyrir- byggja og meðhöndla. Sjúkdómurinn einkennist af þrálátri teppu í lungum sem ágerist yfirleitt smám saman og henni tengjast vaxandi bólguviðbrögð í lungna- vef við ertandi ögnum eða lofttegundum. Versnandi ástand og fylgikvillar geta aukið alvarleika sjúkdómsins (Global initiative for chronic obstructive lung disease, 2015).

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.