Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 67
Fagið09/14
hefur í kjölfarið breytt verklagi sínu. Allir sjúklingar sem falla undir
90% í súrefnismettun á sex mínútna gönguprófi fara í röltpróf til að
meta þörf fyrir súrefnismeðferð á göngu utan deildar.
Sjúklingur sem fer í röltpróf fær leiðbeiningar um að ganga á
eigin hraða og tala ekki á meðan á prófinu stendur. Vegalengdin er
156 metrar, en starfsmaður gengur með sjúklingnum og fylgist með
breytingum á púls og súrefnismettun. Hvíldargildi súrefnismettunar
og hvíldarpúls eru skráð og síðan mesta breyting á gildum á göngunni
eða í lok hennar. Að röltprófi loknu er sjúklingurinn spurður um
ýmis einkenni (almenna þreytu, þreytu í fótum, mæði og þyngsl fyrir
brjósti) og hann beðinn að meta styrkleika einkenna á kvarðanum
0-10 (VAS). Ef súrefnismettun hefur fallið undir sett viðmiðunarmörk
(oftast 90%), er röltpróf endurtekið með það í huga að stilla inn
súrefnisgjöf. Niðurstöður röltprófs eru skráðar á sérstakt eyðublað,
vistaðar í sjúkraskrá og verða þannig aðgengilegar öllum meðferðar-
aðilum í teyminu.
Næring lungnasjúklinga
Næringarástand skiptir máli hvað varðar framgang LLT og því er
næringarstuðningur mikilvægur hluti af alhliða lungnaendurhæfingu
(Cafarella o.fl., 2012). Þyngdarstjórnun skiptir einnig máli varðandi
heilsu, líðan og breytingu á lífsmáta, hvort sem sjúklingar eru of léttir
eða of þungir.
Sjúklingar með LLT eru taldir of léttir ef líkamsþyngdarstuðull
(Body Mass Index, BMI) er undir 21 kg/m2 eða ef fitulaus þyngdar-
stuðull (Fat Free Mass Index, FFMI) er undir 16 kg/m2 hjá körlum og
undir 15 kg/m2 hjá konum. Lungnasjúklingar með BMI yfir 30 kg/
m2 eru taldir of þungir. Þar sem öndun lungnasjúklinga er erfið og
krefst mikillar orku hafa þeir almennt mikla grunnorkuþörf (10-15%
meira en almennt). Þeir sem eru of þungir eru mæðnari í hvíld og
heilsuveilli en aðrir og ofþyngd getur aukið álag á líkamann (Schols
o.fl., 2014). Lélegt næringarástand veikir mótstöðuafl líkamans gegn
sýkingum og hefur áhrif á vöðvastyrk sem minnkar vegna þess að
vöðvarnir rýrna. Lungnasjúklingar með lélegt næringarástand þurfa
að bæta samsetningu fæðunnar og huga sérstaklega að próteinríku
fæði. Þannig geta þeir bætt næringarástand sitt, aukið mótstöðuafl
líkamans og brotið upp vítahring mæði og vannæringar.