Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 70
Fagið12/14
Áhugahvetjandi samtal
Stutt áhugahvetjandi samtal er gagnreynd aðferð til að leitast við
að fá fólk til að lýsa vanda sínum með eigin orðum. Með því má
hjálpa sjúklingum að átta sig á hvað þarf til að yfirstíga hindranir.
Breytingakenning Prochaska og DiClemente (1992) er hjálpleg til að
mæta sjúklingi í breytingaferlinu, en þessi kenning lýsir hugarástandi
fólks sem þarf að breyta lífsmáta sínum.
Á Reykjalundi fá sjúklingar ráðgjöf, stuðning og hvatningu til
að ná því markmiði að vera reyklausir fyrir innskrift. Einnig fá þeir
meðferð við tóbaksfíkn á endurhæfingartímanum. Til að viðhalda
þeim góða árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum á Íslandi og bæta
hann, liggur beinast við að horfa til heilsugæslunnar, sem fyrsta skref.
Þar er veitt góð þjónusta sem almenningur ber mikið traust til og þar
gefast augljós tækifæri til að hlusta eftir „breytingatali“ í anda áhuga-
hvetjandi samtalstækni (Miller og Rose, 2009).
Í samtalinu er mikilvægt að spyrja um reykingar sjúklingsins sjálfs
og óbeinar reykingar hans núna eða áður og skrá pakkaár (1 pakkaár
= 1 sígarettupakki á dag í eitt ár). Meta þarf hvar hann er staddur í
breytingaferlinu, ráðleggja honum að hætta samkvæmt því, bjóða að-
stoð og benda á mögulegt skipulag. Ef heilbrigðisstarfsmaður treystir
sér ekki í slíkt samtal eða ráðgjöf fyrir sjúklinga er samt mikilvægt að
hann skrái upplýsingar um tóbaksneyslu. Hann segi síðan setninguna
„ég ráðlegg þér að hætta, heilsu þinnar vegna“.
Önnur ráð til að losna við tóbak
Reyklaust tóbak er ekki kostur fyrir sjúklinga með LLT frekar en
aðra því það eykur einnig hættu á öðrum alvarlegum sjúkdómum.
Munntóbak og neftóbak er mjög ávanabindandi og neytendur þess
hafa oft ríka þörf fyrir sérstök bjargráð til að losa sig við þann vana að
finna fyrir tóbakinu í munni eða nefi. Nikótíntyggjó, tungurótartöflur
eða munnsogstöflur geta gagnast þeim vel. En sá sem nær að losa sig
við neyslu munn- eða neftóbaks finnur mjög fljótt fyrir betri líðan í
munni eða nefi.
Síðustu ár hafa svonefndar rafrettur komið á markaðinn
og vilja sumir að þær verði viðurkenndar sem meðferðar-
tæki við tóbaksfíkn. Rafrettur eru ekki löglegar á Íslandi og
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir gegn notkun þeirra.