Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 75
þankastrik03/03
heilbrigðisþjónustu – alltaf! Hjúkrunarfræðin gaf mér nefnilega
hugsjón. Hugsjón sem ég vissi ekki af fyrr en fyrir stuttu og kannski er
þá eitthvað til í þessu íhaldssama sjónarmiði sem ég minntist á hér að
framan, þó svo að ég tengi mig síður við nokkuð íhaldssamt.
Það er alltaf verið að segja manni að setja sér markmið því að
með markmiðssetningu nái fólk raunverulegum árangri. Hver sem
er getur náð árangri þó að leiðirnar séu mismunandi. Sumir hafa
hátt um sín markmið og enn hærra um þann árangur sem næst.
Aðrir eru með þetta allt planað en eru ekkert endilega gangandi um
með gjallarhornið, þið vitið. Allur árangur er því alltaf árangur en
að hugsa stórt er alltaf fyrsta skrefið í rétta átt. Ég ætla að leyfa mér
að hugsa stórt fyrir heilbrigðiskerfið. Ég ætla að setja mér markmið
um að taka þátt í uppbyggingu á öflugu heilbrigðiskerfi sem verður
hundrað prósent fyrir alla, alls staðar. Það eru alltaf sveiflur, það er
partur af þessu. Núna erum við á botninum í niðursveiflu og það sem
við búum við núna í heilbrigðiskerfinu má ekki draga úr þeim frábæru
eiginleikum sem hjúkrunarfræðingar hafa.
Varðandi mig og hjúkrunina þá lít ég svo á að ég sé bara í pásu.
Einn daginn ætla ég aftur á spítalann af því að spítalaumhverfið er
klárlega eitt það mest spennandi sem fyrirfinnst og nóg af verkefnum
sem bíða.
Ég skora á Sólveigu Kristjánsdóttur að skrifa næsta þankastrik.
Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur
hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki
gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um
ýmislegt sem varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið.
Pistlarnir geta fjallað um ákveðin málefni, sögur af
kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitthvað sem
hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvaðeina
annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess.